Morgunblaðið - 19.07.2022, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2022
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Mikill kraftur er í framkvæmdum
við nýjar gestastofur Snæfells- og
Vatnajökulsþjóðgarða á Hellissandi
og á Kirkjubæjarklaustri.
„Nú, þegar ferðafólk þeysist um
landið þvert og endilangt, er full
ástæða til að varpa ljósi á tvær bygg-
ingar sem nú rísa undir merkjum
Framkvæmdasýslunnar-Rík-
iseigna,“ segir í tilkynningu á heima-
síðu stofnunarinnar.
Á Hellissandi hillir nú undir lok
byggingar þjóðgarðsmiðstöðvar fyr-
irSnæfellsjökulsþjóðgarðs. Bygg-
ingin mun hýsa þjónustumiðstöð
þjóðgarðsins með sýningar- og
kennsluaðstöðu fyrir gesti, auk rýma
fyrir starfsmenn þjóðgarðsins, svo
sem skrifstofur, geymslur og að-
stöðu fyrir þjóðgarðsverði, alls um
710 fermetrar. Kostnaður við fram-
kvæmdirnar er áætlaður ríflega 600
milljónir króna. Er það verktakafyr-
irtækið Húsheild sem byggir og hafa
framkvæmdir gengið vel. Byggingin
er hönnuð af Arkís, en stofan sigraði
í hönnunarsamkeppni sem fór fram
árið 2006.
Byggingin verður umhverfis-
vottuð. Samhliða byggingarferlinu
fer fram vottunarferli í samstarfi við
BREEAM-stofnunina.
Á Kirkjubæjarklaustri rís nú
gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs.
Gestastofan mun veita upplýsingar
til ferðamanna um þjóðgarðinn og
nágrenni hans, auk þess sem þar
verður fræðslusýning um náttúru og
mannlíf svæðisins. Byggingin er á
einni hæð með kjallara undir hluta
hennar. Uppsteypu hússins er að
mestu lokið og frágangur innanhúss
að hefjast. Byggingin er 765 fer-
metrar að stærð en kostnaður er
áætlaður 852 milljónir króna.
Gestastofan er hönnuð af Arkís og
verður líkt og þjónustumiðstöðin á
Hellissandi BREEAM-umhverfis-
vottuð.
Þessar framkvæmdir eru liður í
uppbyggingu ríkisins á ferðamanna-
stöðum víðs vegar um land. Á undan-
förnum misserum hafa staðið yfir
framkvæmdir við göngustíga sem
auðvelda aðgang að náttúruperlum á
borð við Gullfoss, Geysi, Dynjanda
og Dyrhólaey, að því er fram kemur
á heimasíðu FSRE.
Tvær nýjar gestastofur rísa
- Nýjar miðstöðvar þjóðgarða landsins eru nú í byggingu á Hellissandi og á Kirkjubæjarklaustri
Hellissandur Nýja byggingin setur mikinn svip á umhverfi sitt. Hún er alls
710 fermetrar og hýsir aðstöðu fyrir gesti þjóðgarðsins og starfsfólk hans.
Ljósmyndir/FSRE
Klaustur Hin nýja miðstöð rís í nágrenni við Skaftá og mun falla vel inn í
landslagið fullbyggð. Húsið er 765 fermetrar og er hið nýtískulegasta.
Sigurður Bogi Sævarson
sbs@mbl.is
Nærri þrjátíu manns á vegum ÞG-
verks starfa um þessar mundir við
að byggja nýjar brýr á hringveg-
inum, það er yfir Hverfisfljót og
Núpsvötn, fyrir austan Kirkjubæj-
arklaustur. Vegagerðin bauð út
þetta verkefni á síðasta ári í einum
pakka, enda þótti það koma vel út.
Óvænt mál að glíma við
„Gangurinn í framkvæmdunum er
góður, enda þótt okkar menn hafi
þurft að glíma við margt óvænt, rétt
eins og fylgir þegar verið er að brúa
jökulfljót. Slíkt getur fylgt í svona
verkefnum,“ segir Þorvaldur Giss-
urarson, framkvæmdastjóri ÞG-
verks, í samtali við Morgunblaðið.
Við Hverfisfljót er verkefnið að
byggja þriggja hafa 74 metra metra
langa stálbitabrú með steyptu gólfi.
Brúin er ögn neðan við þá sem nú
stendur og því fylgir að lagður er
nýr vegur á þessum stað, rúmlega
tveggja kílómetra spotti. Gert er ráð
fyrir að mannvirki þetta verði tilbúið
í september næstkomandi.
Verkefnið við Núpsvötn er öllu
viðameira. Þar er byggð 138 metra
brú, rétt ofan við þá sem nú stendur.
Vinnuflokkur ÞG-verk, sem Sig-
urður Guðjónsson fer fyrir, kom á
svæðið í apríl síðastliðnum. Er nú
búið að steypa báða landstöpla og
þrjá af fjórum millistöplum, sem á
verður steypt gólf í fimm höfum.
Lagður er nýr vegur að brúnni, 1,9
kílómetra langur kafli, auk þess sem
útbúinn er útsýnisstaður á vestur-
bakka jökulfljótsins.
Tafir á Sólheimasandi
Auk brúnna yfir Hverfisfljót og
Núpsvötn sá ÞG-verk einnig um
smíði nýrrar brúar yfir Jökulsá á
Sólheimasandi. Sú er 163 metra löng
og er nánast tilbúin. Tafist hefur þó-
að opna fyrir umferð vegna viðgerða
sem kom í ljós að ráðast þyrfti í eftir
að steypumót voru fjarlægð. Úr því
er nú verið að bæta. Um helgina
voru múrarar á svæðinu að bæta úr
því sem þarf í köntum við handrið.
Brúin yfir Jökulsá verður opnuð
síðsumars. Nánari tímasetning ligg-
ur ekki fyrir, samkvæmt upplýs-
ingum frá Vegagerðinni í gærdag.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Framkvæmdir Búið er að steypa þrjá af fjórum millistöplum brúar yfir Núpsvötn. Framkvæmdir á Sólheimasandi eru lengra komnar en þar voru menn að pússa steyptan kant um helgina.
Þrjár nýjar brýr
á hringveginum
- Einbreiðum brúm fækkar enn
- Jökulsá, Hverfisfljót og Núpsvötn