Morgunblaðið - 19.07.2022, Page 18

Morgunblaðið - 19.07.2022, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2022 ✝ Margrét S. Guðmunds- dóttir fæddist á Húnsstöðum í A- Hún. 19. maí 1946. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 7. júlí 2022. Foreldrar henn- ar voru Guðmund- ur Eyberg Helga- son, f. 14.11. 1924, d. 26.5. 1979, og Ingibjörg Margrét Kristjáns- dóttir, f. 4.10. 1926, d. 18.1. 2014. Margrét var elst sjö systkina. Systkini hennar eru: Kristján, f. 21.5. 1948, eiginkona Helga Jör- undsdóttir, f. 7.3. 1952; Davíð Þór, f. 7.5. 1950, d. 7.1. 2012, eft- irlifandi eiginkona Hrafnhildur Þorleifsdóttir, f. 22.4. 1955; Bjarni Rúnar, f. 14.3. 1952, eig- inkona Ragnheiður Austfjörð, f. 6.9. 1951; Ásgeir Pétur, f. 11.5. 1954, eiginkona Ásthildur Jóns- dóttir, f. 7.9. 1954; Örlygur Atli, f. 21.12. 1962, eiginkona Hólm- fríður G. Magnúsdóttir, f. 17.6. 1965; Nína Hrönn, f. 8.1. 1968, eiginmaður Tjörvi Dýrfjörð, f. 2.12. 1967. Margrét giftist hinn 14.11. 1970 Þorgeiri Sæmundssyni, f. 20.11. 1947. Foreldrar hans Þórey Ingvarsdóttir, f. 14.11. 2004. e) Krummi Týr Gíslason, f. 16.1. 2004. Faðir þeirra er Gísli Ólafsson, f. 3.2. 1972. 3) Halla Eyberg, f. 28.3. 1978, eiginmaður Bárður Smárason, f. 7.4. 1975. Börn Höllu eru: a) Ciara Mar- grét Eyberg Valdimarsdóttir, f. 17.8. 2000, unnusti Stefán Jó- hannesson, f. 30.1. 1996. b) Áróra Eyberg Valdimarsdóttir, f. 16.5. 2006. c) Jökull Eyberg Valdimarsson, f. 14.12. 2008. Faðir þeirra er Valdimar Sveinsson, f. 17.6. 1973. Margrét ólst upp á Ytri- Kárastöðum á Vatnsnesi í V- Hún. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Reykjaskóla í Hrútafirði og þaðan fór hún í Kvennaskólann á Blönduósi. Hún lauk síðan sjúkraliðaprófi frá Landakots- spítala árið 1968. Margrét starf- aði sem sjúkraliði nánast alla sína tíð. Hún vann m.a. á Landa- kotsspítala, Borgarspítalanum, St. Jósefsspítala í Hafnarfirði, Grensásdeild, Hrafnistu og Sól- vangi í Hafnarfirði. Hún vann lengst á St. Jósefsspítala, eða í allt að 20 ár, en einnig sem dag- mamma, í Ásmundarbakaríi, á leikskóla og á sambýli þegar dæturnar voru litlar. Hún var afar listræn, spilaði á gítar og söng. Einnig var hún mikil garð- yrkjukona. Útför Margrétar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 19. júlí 2022, klukkan 13. Jarðsett verður í kirkjugarði Hafnarfjarðar. voru Sæmundur Breiðfjörð Helga- son, f. 23.10. 1916, d. 3.6. 1998, og Ragnhildur Þor- geirsdóttir, f. 1.2. 1922, d. 11.6. 2005. Börn Margrétar og Þorgeirs eru: 1) Ragnhildur Anna, f. 29.9. 1970, maki Helgi Páls- son, f. 4.3. 1968. Börn þeirra eru: a) Atli Páll, f. 2.5. 1991, maki Hrönn Guð- mundsdóttir, f. 13.12. 1993. b) Margrét, f. 11.8. 1998, maki Emil Snær Hafþórsson, f. 6.1. 1996. c) Helga Sara, f. 24.6. 2001. 2) Bára Kristín, f. 17.10. 1972, eiginmaður Geir Bjarnason, f. 30.6. 1966. Börn Báru eru: a) Guðbjartur Ísak Ásgeirsson, f. 18.9. 1989, faðir hans er Ásgeir Jón Guðbjartsson, f. 16.12. 1968. Eiginkona Guðbjarts Ísaks er Sandra Dögg Friðriksdóttir, f. 1.8. 1989, börn þeirra eru: Úlf- rún Irja, f. 5.9. 2016, og Ásgeir Óðinn, f. 1.8. 2019. b) Hekla Lydía Gísladóttir, f. 20.11. 1994, maki Anna María Stefánsdóttir, f. 5.7. 1994. c) Ólafur Jarl Gísla- son, f. 26.5. 1996. d) Þorgeir Sær Gíslason, f. 16.1. 2004, unnusta Þú fórst óvænt frá okkur en skildir svo mikið eftir. Við komum seint inn í stórfjölskylduna og kvæntumst dætrum þínum. Við fundum það frá því við hittum þig fyrst hve mikið þú elskaðir dætur þínar og við fengum því ómælda ást og umhyggju frá þér. Þú vildir öllum svo vel í kringum þig og sýndir öllum ást og stuðning og bera dætur þínar þann arf áfram til barna sinna og barnabarna þinna. Við minnumst þín sérstaklega fyrir hefðirnar. Amma Gréta vissi alltaf hver átti afmæli og öll börn, barnabörn og barnabarnabörn fengu gjafir á afmælisdegi sínum. Matarboðin á tímamótum þar sem stórfjölskyldan hittist skipti þig máli og munum við viðhalda þeim góðu hefðum áfram. Kæra tengdamóðir, við munum standa okkur og hugsa vel um af- komendur þína og Þorgeir verður ekki undanskilinn þeirri ábyrgð okkar. Þú fórst allt of fljótt frá okkur og það var svo margt sem við áttum eftir að gera. Þú munt lifa í okkur öllum og þannig taka þátt í lífinu áfram. Ljóðið Líkn eft- ir Stefán Finnsson segir hug okk- ar en í hjarta okkar er sorg og söknuður. Lát þú líkn mig vefja og láttu mig orð þín dreyma. Og huga minn hefja hátt til þín og engu gleyma. Og láttu mig muna miskunn í dagsins önnum. Sárum sorgum una og sjá von í breyskum mönnum. Geir Bjarnason, Bárður Smárason. Magga er ein sú hjartahrein- asta manneskja sem ég hef á æv- inni hitt. Ég er alveg viss um að það eru ekki til nema fáar mann- eskjur í heiminum, sem hafa þetta hjartalag. Allir sem hana þekktu vita þetta. Ef hún var ekki viss um að allt væri í lagi allstaðar, þá ein- faldlega hringdi hún í alla til að vera viss um að svo væri. Á tíma- bili var slökkvistöð Hafnarfjarðar skammt frá heimili þeirra. Því gátu verið allmörg símtöl í viku til að athuga hvort allt væri í lagi ef mikið gekk á hjá sjúkrabílunum. Það er stórt skarð höggvið í fjölskylduna alla, þar sem Magga var með alla þræðina á hreinu, hvaða barn hvers og eins átti af- mæli og voru gjafir sendar lands- horna á milli ef því var að skipta. Væntumþykjan gagnvart fólkinu sínu var ósvikin. Magga var hrókur alls fagnað- ar og þegar hún datt í gírinn lágu allir veltandi um af hlátri. Ég hafði dálítið gaman af því að stríða henni lítillega, saklaus stríðni auð- vitað, sem hún tók nú yfirleitt vel. En hún gat líka svarað fyrir sig og þá var það alltaf beint í mark. Eitt sinn náði hún sér niðri á mér og þóttist vera að láta sníða á mig jakkaföt. Hnausþykk gróf brún flauelsjakkaföt, með þykkum leð- urbótum á olnbogunum. Hún var svo sannfærandi að ég var farinn að trúa henni og kveið því að ganga í þessu til þess að móðga hana ekki. Ég kveð elsku tengdamömmu mína með miklum söknuði en líka með þakklæti fyrir að fá að kynn- ast þessari einstöku manneskju. Helgi Pálsson. Elsku besta amma mín, elsku amma Gréta. Mér finnst þetta allt svo ótrú- legt ennþá. Hitti þig bara tveimur dögum áður en allt gerðist og ég þá á leiðinni til Spánar. Þú komst og gafst mér svo fallegt umslag sem á stóð nafnið mitt og: Góða ferð, með hjarta. Í umslaginu voru 40 evrur sem þú vildir gefa mér í gjaldeyri. Ég keypti handa þér sex pör af sokkum á Spáni. Þú varst svo mikil sokkakona ha ha. Ég valdi eitt par sem þú ert í núna, og mér þykir svo vænt um það. Bláir með litlum bleikum hjörtum efst. Blár var líka uppá- haldsliturinn þinn, elsku amma. Þér þótti alltaf svo gaman að spjalla og þú varst líka mjög for- vitin. Það og fleira áttum við sam- eiginlegt. T.d. vorum við líka í sama stjörnumerki og því vorum við oft kallaðar nautin eða forvitnu nautin í fjölskyldunni. Eins og afi sagði við mig um daginn, þá vor- um við svo miklar trúnaðarvin- konur. Það var alltaf svo gott og gaman að heimsækja þig og spjalla við þig. Þú þekktir næstum allar vinkonur mínar og þær þig og sumar höfðu fengið að koma í heimsókn með mér og fá allskonar gott í svanginn. Þú talaðir alltaf fallega um allt og alla og varst alltaf svo góð við alla. Þú varst líka með afar græna fingur og átt fallegasta garð í heimi. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig, elsku amma mín. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig. Ég elska þig og það komst eng- inn fram hjá því að þykja vænt um þig, enda varst þú svo stórkostleg manneskja. Þú varst svo falleg og varst svo mikið góð. Elsku amma Gréta, þín er og verður svo sárt saknað. Þú varst sú allra besta í heimi og ég mun alltaf elska þig. Þín ömmustelpa, Áróra Eyberg. Elsku besta amma Gréta. Ég elska þig svo mikið og mun alltaf gera. Ég trúi þessu ekki ennþá og ég mun örugglega ekk- ert gera það alveg strax. Takk fyr- ir allt sem þú gerðir fyrir mig, elsku amma mín. Takk fyrir evr- urnar um daginn og fallega um- slagið, ég ætla alltaf að eiga það. Þú varst alltaf svo góð við mig og alla aðra í þínu lífi. Þegar ég eignast börn ætla ég sko að segja þeim allar sögurnar um þig. Takk fyrir öll skiptin sem ég fékk að gista hjá þér, takk fyrir að eiga alltaf eitthvað gott handa mér. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Ef ég eignast stelpu ætla ég að skíra hana í höfuðið á þér. Ég ætla alltaf að biðja bænirnar og tala við þig á kvöldin áður en ég fer að sofa. Þú varst besta amma í heimi og verður það alltaf. Elska þig alltaf. Þinn ömmustrákur, Jökull Eyberg. Elsku besta og fallegasta mamma í öllu heiminum. Engin okkar er tilbúin að skrifa þessa grein og mikið vildum við að tilefnið væri annað enda varstu hlæjandi og kát fyrir nokkrum dögum. Í ferð með einni okkar, gefandi maka annarrar okkar af- mælisgjöf og prangandi pilsi inn á þá þriðju. Við vitum ekki hvernig lífið á eiginlega að ganga sinn vanagang án þess að hafa þig með. Öll þín umhyggja, ást og kærleik- ur. Þú varst lítið villibarn og elsk- aðir náttúruna, svo full af ást á öllu og öllum. Mesta jólabarnið, mesta sumarbarnið og elskaðir smáfuglana og gafst þeim að borða allan ársins hring. Þú varst elst sjö systkina, ólst upp á Vatnsnesinu og elskaðir alltaf þann stað sem og Hvamms- tanga. Þú sagðir okkur sögur af lífinu í sveitinni og það var mikill systkinakærleikur á milli ykkar systkina og við höfum fengið að njóta þess að þekkja vel fólkið þitt. Við erum ekki að meðtaka þetta allt saman, enda allt of snöggt og óendanlega sárt fyrir okkur þrjár sem og okkar maka, börn og barnabörn. Þú kvaddir í faðmi fjölskyld- unnar og þú kvaddir fallega og friður var yfir öllu. Við fundum að þú gafst okkur einhvern ótrúlegan aukastyrk elsku mamma, á þessari erfiðu stundu. Það sem þú varst dásamleg og gefandi mamma, hvattir okkur allar áfram í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur. Þú varst alltaf til staðar fyrir alla. Styrktir allt og öll félög eða einstaklinga sem voru í fjáröflun. Þú fórnaðir þér svo allt of mikið, og má þar t.a.m. nefna þegar ein okkar bað um pössun fyrir all- nokkrum árum. Hún hringdi í þig og spurði og svarið var auðvitað já! Þegar komið var með börnin sást að þú varst í fínum kjól, búin að farða þig og við það að klára að taka af þér allt skart. Þú varst á leiðinni á árshátíð hjá Sólvangi með þínum vinnufélögum, þar sem þú starfaðir þá. En nei, þú ætlaðir að sleppa því og passa frekar barnabörnin. Þetta fór jú auðvitað þannig að sú okkar sem átti í hlut sá til þess að þú færir á árshátíðina, en þetta varst þú í hnotskurn. Alltaf boðin og búin til að fórna öllu fyrir okkur eða okkar fólk, fólkið þitt. Við þökkum þér fyrir alla þá ást og umhyggju sem þú sýndir ávallt mönnunum okkar. Alltaf tilbúin með einhverjar veitingar, úthugs- aðar afmælis- og jólagjafir. Ein- stök tengdamamma í alla staði. Við þökkum þér fyrir allt tengt börnunum okkar, allar ykkar stundir saman, allar gistinæturn- ar, öll ástin og umhyggjan. Þú varst alltaf til staðar fyrir þau öll. Núna minnir allt á þig: Jólin, sumarið, smáfuglarnir, þvottur á útisnúru, álfar og smáhlutir í garðinum sem og innandyra, og auðvitað allt á sínum stað. Við gætum haldið áfram endalaust. Okkur langar að lokum til að þakka þér fyrir allt, elsku besta mamma. Takk fyrir að vera besta mamma í heimi. Takk fyrir að vera besta amma í heimi. Takk fyrir að vera besta langamma í heimi. Takk fyrir að vera besta tengdamamma í heimi. Takk fyrir að vera þú! Þú varst einfaldlega allra best. Elskum þig út í hið óendanlega. Þínar mömmustelpur, Halla, Bára og Ragnhildur. Jöklarnir sem bráðnuðu undan brosi þínu bindast nú flóði tára þeirra sem þig þekktu. Líkt og farfuglarnir sem heimsóttu þig í vor, höldum við heim með tóm í hjarta. Öðruvísi yrði ómögulegt að koma fyrir öllum þeim kærleik og ógleymanlegu minningum sem þú skilur eftir þig. Fyrir okkur að rifja upp, varðveita og nýta sem lím á brotin hjörtu þeirra sem þess munu þarfnast. Í anda þín, sem varst klettur allra sem á þurftu að halda. Áhyggjufull en aldrei óttaslegin. Jákvæð en aldrei óraunsæ. Amma Gréta, en aldrei annað en fyrirmyndin mín og besta vinkona. Þinn ömmustrákur að eilífu. Guðbjartur. Amma, þú varst engri lík, með risastórt hjarta úr gulli og hugs- aðir ávallt svo vel um allt og alla í kringum þig. Að eiga þig sem ömmu var eins og að vinna í lottói og gott betur en það. Þú varst góðmennskan uppmáluð og kenndir okkur svo margt sem við munum varðveita um alla tíð. Við gátum öll hlegið að því hvað þú hafðir alltaf miklar áhyggjur af okkur og enduðu símtölin eða heimsóknirnar yfirleitt á „farðu varlega“. Við munum öll sakna þess að heyra þessi tvö orð sem þú varst vön að segja við okkur og lofum þér því að fara ætíð varlega og drekka aldrei úr dós úti á sumrin. Það eru ekki til nógu stór orð til að lýsa því hversu sárt við munum sakna þín, elsku amma, og þú skil- ur eftir risastórt skarð sem verður aldrei hægt að fylla. Við munum samt alltaf minnast þín með bros á vör og vera þakklát fyrir allar þær fallegu stundir sem við áttum saman. Við lofum að passa upp á afa, dætur þínar og hvort annað. Þar til við hittumst aftur. Þín, Guðbjartur Ísak, Sandra Dögg, Hekla Lydía, Anna María, Óli Jarl, Þorgeir Sær, Þórey, Krummi Týr, Úlfrún Irja og Ásgeir Óðinn. Elsku amma Gréta, þú hefur nú kvatt okkur og þennan heim og mikið sem við söknum þín. Við vorum sérlega heppin að eiga þig að en hjartahlýrri manneskju er vart hægt að hugsa sér. Við áttum svo notalegar stund- ir saman hvort sem það var yfir kaffibolla á Álfaskeiðinu eða hvít- vínsglasi í fellihýsinu eða á Hvammstanga. Það var alltaf svo gott að koma á Álfaskeiðið og spjalla um daginn og veginn og alltaf birtust á borðinu skálar með öllu því góðgæti sem var í uppá- haldi hjá manni. Það finnst okkur lýsa þér svo vel því þú passaðir alltaf svo vel upp á að allir í kring- um þig hefðu það gott. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur og hjá þér fann maður ætíð fyrir ómældri væntumþykju. Hvíldu í friði elsku amma okk- ar, við yljum okkur nú við allar góðu minningarnar, takk fyrir þær. Þín ömmubörn, Atli Páll, Margrét og Helga Sara. Elsku besta systir mín. Þú kvaddir okkur alltof snemma að okkur finnst og tóma- rúmið stórt og mikið við þitt frá- fall. Við yljum okkur þó við góðar stundir er við áttum saman og á sama tíma erum við afar þakklát fyrir að hafa átt samleið með þér á göngu okkar í þessu jarðlífi. Allir bera þér vel söguna enda ekki annað hægt, einstaklega hjartahlý og kærleiksrík, falleg og vel gefin kona, ávallt stutt í spaugið og hlát- urmild. Aldrei bar skugga á vin- áttu okkar, alltaf varstu hlý og vin- gjarnleg og hafðir ómældan tíma fyrir allt þitt fólk og fjölskyldu. Það mætti segja sem svo að þú hafir verið límið í stórfjölskyld- unni, þú varst manneskjan er hafði reglulega samband við sem flesta og varst með alla afmælis- daga á hreinu enda skráðir þú samviskulega niður allar slíkar upplýsingar. Eins náðir þú að skipuleggja og koma í fram- kvæmd sameiginlegum verkefn- um stórfjölskyldunnar en þó ávallt mildilega og áreynslulaust. Mér er minnisstætt hversu dugleg og hjálpsöm þú varst í veikindum móður okkar og annarra er hafa átt erfitt í lífinu, þetta gerðir þú allt án þess að barma þér eða ætl- ast til einhvers til baka sem er afar lýsandi fyrir hjartahlýju þína og góðmennsku. Mér þykir einnig vænt um það þegar þið hjónin birt- ust óvænt á pallinum hjá okkur Fríðu í Hveragerði núna í júní og nú þegar þú ert farin frá okkur verður sú stund okkur afar dýr- mæt í minningunni. Okkur þótti einnig mjög vænt um hvað þú sýndir litlu frænku þinni mikla at- hygli, henni Esju Eyberg, fyrsta barnabarni okkar. Því miður náð- uð þið aldrei að hittast, en þarna sá maður enn og aftur hvað þú varst kærleiksrík og ástrík þínu fólki. Það er svo margs að minnast, öll ættarmótin heimsóknir og ferðalög. Ferðalag okkar til Kúbu með mörgum af stórfjölskyldunni mun ávallt lifa með okkur enda einstaklega skemmtileg ferð og virkilega gaman að ferðast með ykkur hjónum og vinum og ætt- ingjum á þessum framandi slóð- um, hefðum ekki viljað missa af því. Það er viðbúið að við sem stöndum þér næst verðum einkar umkomulaus og berskjölduð nú þegar þú ert horfin héðan á braut, elsku Magga okkar. Það hefur verið höggvið stórt skarð í fjölskylduna enn á ný en við þökkum fyrir svo margt. Hjartagæska þín, umburðarlyndi og mildi mun aldrei gleymast og þú munt ávallt búa í hjarta vor allra. Örlygur Atli Guðmundsson og fjölskylda. Að skrifa þessi orð er erfiðara en tárum taki, en í dag kvaddi ég elsku bestu uppáhaldssystur mína sem reyndist mér og mínum börn- um svo vel. Hún var tæplega 22 ára þegar ég sjöunda barnið bætt- ist í hópinn en við systurnar vor- um tvær og fimm bræður á milli okkar. Magga var flutt að heiman þeg- ar ég fæddist og bjó meirihluta ævi sinnar í Hafnarfirði með Þorgeiri og dætrum sínum þremur. Ragn- hildur, elsta dóttirin, fæddist tveimur árum á eftir mér og urðum við miklar vinkonur og urðu ferð- irnar og gistinæturnar í Hafnar- firði hjá Möggu systur ótrúlega margar og ógleymanlegar. Bára dóttir þeirra fæddist fjórum á eftir mér og Halla þegar ég var 10 ára og á ég miklar vinkonur í þeim. Það var alltaf svo skemmtilegt í Hafnarfirðinum, þar var hægt að fara upp á Hamar og skauta á Læknum eða sulla í honum, var elsku Magga oft með lífið í lúk- unum á meðan en það lýsti henni dálítið vel þar sem hún var oft og iðulega með áhyggjur af sínu fólki. Þegar ég eltist fékk ég oft hringingu ef eitthvað gerðist ein- hvers staðar og ég hafði verið þar á svipuðum tíma og þá hringdi hún og athugaði hvort allt væri í lagi. Margir í ættinni fengu þann- ig símtal en Magga var alltaf að passa upp á sitt fólk og var ljúf- asta kona sem ég hef hreinlega kynnst á lífsleiðinni. Þegar ég varð eldri og eignaðist mín fimm börn þá passaði hún alltaf upp á gjafirnar hvort sem hún mætti í veisluna eða ekki og hringdi hún þegar við öll áttum afmæli. Okkar samband var alltaf gott og aldrei á okkar 54 ára systra og vináttu- sambandi kom skuggi eða rifrildi og skiptumst við á afmælis- og jólagjöfum öll þessi ár. Þegar mamma okkar systkin- anna dó þá fór hún að skrifa á gjafirnar til Aþenu dóttur minnar frá ömmu Grétu í gamni en hún gat auðveldlega verið amma henn- ar og jafnvel langamma miðað við aldursmuninn á þeim en Aþena er 11 ára. Magga lét covid ekki stoppa sig í gjafmildinni, þegar enginn mátti koma í afmæli þá sendi hún Aþenu gjöf í pósti við mikla gleði. Þegar brúðargjöfin mín kom frá henni og dætrum þá sátu þær mæðgur úti í bíl með grímur, hringdu í mig og voru búnar að koma gjöfinni fyrir við útidyrahurðina. Þetta lýsir Möggu svo vel, alltaf að gleðja og passa upp á allt og alla. Við hringdum alltaf í hvor aðra oftast vikulega en stundum oft á dag og þegar við slitum samtalinu hringdi síminn reglulega aftur: heyrðu eitt enn. Við hlógum stundum hér heima þegar síminn hringdi strax aftur og einhver hér sagði þetta er Magga, vildi óska að hún gæti hringt í mig. Ég á svo margar skemmtilegar (t.d. sagan um Eirík Fjalar), ljúfar, sárar og fallegar minningar með henni sem hafa mótað mig og munu hafa áhrif á líf mitt til framtíðar. Eins og segir í laginu; Þú fagra minn- ing eftir skildir eina, sem aldrei gleymist meðan lífs ég er. Hver minning minning er dýrmæt perla Margrét S. Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.