Morgunblaðið - 19.07.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.07.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2022 Hreinsum allar yfirhafnir, trefla, húfur og fylgihluti STOFNAÐ 1953 Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380 „NÚ ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐINN ATVINNUKRIMMI GETURÐU DREGIÐ REIKNINGINN FRÁ LÖGFRÆÐINGNUM FRÁ SEM KOSTNAÐ.“ „ÞAÐ EINA SEM ÉG SAGÐI VAR AÐ MÉR LÍKAR BARA VIÐ HELMING LAGANNA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fagna alltaf nýju ári með þér. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann KÆRI JÓLI, OF BLAA KÆRI HERRA, SÆLL HVÍTSKEGGUR,OFFORM- LEGT ÉG KANNAST EKKI VIÐ ÞENNAN GAUR. MIG GRUNAR AÐ HANN SÉ FLUGUMAÐURÓVINANNA! MATURINN ER TILBÚINN! FRÁBÆRT! GRUNURINN STAÐFESTUR! ur segir, fengist við ýmsa miðla. Á sýningunni má finna allt frá gjörn- ingum, vídeólist, grafík, fjölfeldi og klippimyndum, til stórra verka í al- mannarými og málverka á öllum skala, sem hafa unnið Erró verð- ugan sess í evrópskri listasögu. Er þetta umfangsmesta sýning sem sett hefur verið upp á verkum lista- mannsins hérlendis eins og fram kemur á heimasíðu Listasafns Reykjavíkur. Sýning þessi rekur listamannsferil Errós eftir tímabil- um og þemum og er afrakstur sjö áratuga vinnu. Hún endurspeglar glæsilegan feril listamannsins og byggist að mestu á gjöf hans til safn- ins 1989. Þegar sýningunni lýkur verður hún opnuð víðar í Evrópu og verður meðal annars í ARoS-safninu í Árósum í apríl 2023. Fjölskylda Eiginkona Errós er Vilai Permic- hit, f. 1954 í Taílandi. Dóttir Errós með fyrrverandi eiginkonu sinni, Myriam Bat-Josep, er Tura, f. 15.3. 1960, læknir í París. Hún á dótturina Eloise. Faðir hennar er Leon Milo tónskáld. Hálfsystkini Errós, sam- mæðra: Lárus Siggeirsson, f. 25.6. 1936, bóndi á Kirkjubæ á Kirkubæj- arklaustri; Kristinn Siggeirsson, f. 6.3. 1939, d. 19.2. 2017, bóndi á Hörgslandi; Gyða Siggeirsdóttir, f. 27.6. 1941, húsmóðir í Reykjavík. Hálfsystkini Errós, samfeðra: Ein- ar, f. 11.8. 1932, leirkerasmiður í Reykjavík; Yngvi Örn, f. 19.12. 1938, fyrrverandi umsjónarmaður fast- eigna Hafnarfjarðarbæjar; Auður Valdís, f. 19.6. 1943; Ari Trausti, f. 3.12. 1948, þingmaður, jarðeðlis- fræðingur, rithöfundur og fjölmiðla- maður og Egill Már, f. 27.1. 1952, d. 10.10. 2019, arkitekt í Reykjavík. Foreldrar Errós voru Guðmundur Einarsson frá Miðdal, f. 5.8. 1895, d. 23.5. 1963, listamaður í Reykjavík, og Soffía Kristinsdóttir, f. 16.6. 1902, d. 1.2. 1969, húsmóðir á Kirkjubæj- arklaustri. Erró Sigríður Stefánsdóttir húsfreyja á Arnarbæli Bjarni Ögmundsson bóndi á Arnarbæli í Grímsnesi Sigfríður Bjarnadóttir húsfreyja í Miðengi Kristinn Guðmundsson bóndi í Miðengi í Grímsnesi Soffía Kristinsdóttir húsfreyja á Kirkjubæjarklaustri Kristrún Jónsdóttir húsfreyja á Miðengi Guðmundur Jónsson bóndi í Miðengi SigríðurTómasdóttir húsfreyja á Bárekseyri Jón Guðmundsson form. á Bárekseyri á Álftanesi Valgerður Jónsdóttir húsfreyja í Miðdal Einar Guðmundsson bóndi í Miðdal Vigdís Eiríksdóttir húsfreyja í Miðdal Guðmundur Einarsson hreppstjóri í Miðdal Ætt Errós Guðmundur Einarsson frá Miðdal listmálari og myndhöggvari í Reykjavík Davíð Hjálmar Haraldsson er gott ljóðskáld, hefur ljóð- formið á valdi sínu og er alltaf skemmtilegur. Sjöunda Davíðsbók, Ljóð af léttara tagi, er komin út og stendur vel undir nafni. Eða eins og hann sjálfur segir: Þessi bók er fantafríð sem fyrri bindin. Hún er ljóðræn listasmíð, lúmsk og fyndin. Ég greip bókina, og las veð- urvísu: Opnar dyrnar upp á gátt Ingveldur í Sogni. Naumast blæs þar nokkur átt nema í stafalogni. Davíð Hjálmar fór til Grímseyjar 23. júní 2019: Í Grímsey lifir þolgóð þjóð – þar er fátt til baga – er sýpur egg og selablóð sumarlanga daga. Hér er limra um tíkina Týru: Hún Týra var löt að leita að lömbum og uppnefnd „Feita“ og ánum að smala var ekki um að tala: „Nei, fyrr skal ég hundur heita.“ Konur ná fram jafnrétti á æ fleiri sviðum: Jafnrétti er konum kært, í karla spor þeim vel er fært; launaháar, lærðar og leggjast margar inn á Vog. Davíð Hjálmar gekk á Kerlingu, hæsta fjall í byggð á Norðurlandi, og kvað þegar upp var komið: Takmarkinu tókst að ná með töf við nokkra staði. Kerlingu nú er ég á í einu svitabaði. Fuglaskoðun að vetrarlagi: Við Hvalfjörð sá Filippus fálka og fýl, þar var teista og álka, hann sá dúfu hjá Þyrli og dáðist að smyrli en datt fyrir björg; það var hálka. Menn verða gleymnir þegar þeir fullorðnast: Ég eldist en alltaf mig spjara þótt örðugt sé stundum að svara ef einhver mig spyr hér úti við dyr: Hvort ertu að koma eða fara? Kona nokkur sagðist ekki kvíða ellinni því börnin hennar hefðu lof- að að kaupa fyrir hana áfengi færi hún á elliheimili: Þótt hún sturlist, missi mátt, muni ekkert, sjái fátt, hönd sé köld en holdið blátt og hárið líkist ösku brosir hún, – því börnin kaupa flösku. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ljóð af léttara tagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.