Morgunblaðið - 19.07.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.07.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2022 Afríkumót karla Úrslitaleikur: Egyptaland – Grænhöfðaeyjar ........... 37:25 Leikur um þriðja sætið: Túnis – Marokkó .................................. 24:28 Leikur um 5. sætið: Gínea – Alsír ......................................... 26:27 _ Egyptaland, Grænhöfðaeyjar, Marokkó, Túnis og Alsír verða fulltrúar Afríku á HM 2023. E(;R&:=/D KNATTSPYRNA Besta deild karla: Meistaravellir: KR – Fram.................. 19.15 Í KVÖLD! D-RIÐILL: Ísland – Frakkland................................... 1:1 Ítalía – Belgía............................................ 0:1 Lokastaðan: Frakkland 3 2 1 0 8:3 7 Belgía 3 1 1 1 3:3 4 Ísland 3 0 3 0 3:3 3 Ítalía 3 0 1 2 2:7 1 _ Frakkland mætir Hollandi í átta liða úr- slitum og Belgía mætir Svíþjóð. Markahæstar á EM: Beth Mead, Englandi.................................. 5 Alessia Russo, Englandi ............................. 3 Grace Geyoro, Frakklandi.......................... 3 Alexandra Popp, Þýskalandi...................... 3 Leikir í 8-liða úrslitum: 20.7. England – Spánn .............................. 19 21.7. Þýskaland – Austurríki .................... 19 22.7. Svíþjóð – Belgía ............................... 19 23.7. Frakkland – Holland ........................ 19 EM KVENNA 2022 _ Hallbera Guðný Gísladóttir lands- liðskona í knattspyrnu skýrði frá því eftir leikinn gegn Frökkum í Rother- ham í gærkvöld að það hefði verið hennar síðasti landsleikur. Hallbera sagði frá þessu á Instagram en hún lék sinn 131. landsleik í gærkvöld og er þriðja leikjahæst frá upphafi. _ Sænski knattspyrnumaðurinn Zlat- an Ibrahimovic hefur samið við Ítalíu- meistara AC Milan um að leika áfram með þeim tímabilið 2022-’23. Zlatan verður 41 árs í október og sleit kross- band í hné í vor, þannig að hann verður ekki leikfær með liðinu fyrr en eftir næstu áramót. _ Brasilíski knattspyrnumaðurinn Fred Saraiva hefur samið við Framara um að leika áfram með þeim næstu þrjú árin. Fred er þegar á sínu fimmta tímabili með Fram en hann kom til fé- lagsins árið 2018. _ Barcelona staðfesti í gær að pólski knattspyrnumaðurinn Robert Lew- andowski væri kominn til félagsins frá Bayern München. Hann hefur samið við félagið til þriggja ára en það greiðir Bayern 45 milljónir evra fyrir þennan mesta markaskorara í Evrópufótbolt- anum á undanförnum árum. _ Kolbeinn Höður Gunnarsson, spretthlaupari úr FH, var í verðlaunasætum í bæði 100 og 200 m hlaupi á móti á Möltu um síðustu helgi. Kolbeinn varð annar í 100 metra hlaupi á 10,65 sek- úndum og þriðji í 200 metra hlaupi á 21,28 sekúndum. Eitt ogannað Valsliðsins sem þótti líklegt til að slást um Íslandsmeistaratitilinn á þessu tímabili en situr í fimmta sæti eftir þrettán umferðir, fjórtán stig- um á eftir toppliði Breiðabliks. Auk þess eru Valsmenn fallnir út úr bikarnum þannig að Ólafur getur aðeins sett stefnuna á annað sætið, þar sem Víkingar sitja um þessar mundir, átta stigum fyrir ofan Val. Þriðja sætið er þó raunhæfara markmið sem stendur en það myndi gefa Evrópusæti ef annað tveggja efstu liðanna yrði bikarmeistari. Þar sem bæði Breiðabllik og Víkingur eru komin í átta liða úrslit eru tals- verðar líkur á því. Leikjahæstur í deildinni Ólafur mun halda áfram að bæta met sitt sem leikjahæsti þjálfari efstu deildar karla frá upphafi. Þar á hann þegar 324 leiki að baki sem þjálfari FH, Skallagríms, Vals og Stjörnunnar í deildinni. Logi Ólafsson er eini þjálfarinn auk Ólafs sem hefur stýrt liði 300 sinnum í efstu deild karla en Loga var sagt upp störfum hjá FH eftir 300. leikinn síðasta sumar. Heimir Guðjónsson, sem nú kveð- ur sviðið í bili, er þriðji hæstur í deildinni með 273 leiki sem þjálfari Vals og FH. Heimir hóf einmitt þjálfaraferilinn undir leiðsögn Ólafs en Heimir var aðstoðarþjálfari hans hjá FH árin 2006 og 2007. Þjálfari frá 24 ára aldri Ólafur er reyndasti knattspyrnu- þjálfari landsins, nýorðinn 65 ára, en hann hefur þjálfað meistaraflokkslið frá 23 ára aldri, með stuttum hléum inn á milli, því lengsta á árunum 1999 til 2002 þegar hann var í fríi frá þjálfun. Þá var hann í fríi frá félags- liðaþjálfun í fjögur ár þegar hann stýrði karlalandsliði Íslands í fjögur ár. Ólafur á að baki 541 leik sem þjálfari í þremur efstu deildum Ís- landsmótsins og hefur unnið fimm Íslandsmeistaratitla, þrjá með FH og tvo með Val, og þrjá bikarmeist- aratitla með sömu félögum. Þá stýrði Ólafur Skallagrími upp í efstu deild árið 1996 og fór með Einherja á Vopnafirði upp í næstefstu deild á fyrsta ári sínu sem þjálfari, 1981. Bjarni með fleiri leiki Einn þjálfari hefur þó vinninginn gegn Ólafi í fjölda deildaleikja hér á landi. Bjarni Jóhannsson náði fyrr í sumar þeim einstaka áfanga að stýra liði í 600 leikjum í deildakeppninni. Hann er þjálfari Njarðvíkur sem er á toppi 2. deildar og vann einmitt 6:0 sigur á KF í 600. leik Bjarna á dög- unum. Hann er kominn með 603 leiki í dag. Nú tekur Ólaf- ur við af Heimi - Hlutverkin snúast við á Hlíðarenda Morgunblaðið/Golli Reyndir Heimir Guðjónsson og Ólafur Jóhannesson eru tveir af þremur leikjahæstu þjálfurunum í sögu efstu deildar karla. ÞJÁLFARAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Sagan fer stundum í hringi. Þegar Ólafur Jóhannesson hætti störfum sem þjálfari knattspyrnuliðs FH í árslok 2007 eftir þrjá meistaratitla og einn bikarsigur á fjórum árum tók Heimir Guðjónsson við af hon- um. Þegar Ólafur hætti störfum sem þjálfari Valsmanna eftir tvo Íslands- meistaratitla og tvo bikarmeistara- titla á árunum 2015-2019 tók Heimir Guðjónsson við þjálfarastarfinu af honum. Í gærmorgun tilkynntu Valsmenn að Heimir Guðjónsson væri hættur störfum á Hlíðarenda eftir rúmlega tvö og hálft tímabil með Valsliðið sem varð Íslandsmeistari 2020 undir hans stjórn. Og hver tók við af honum? Að sjálfsögðu Ólafur Jóhannesson. Valsmenn voru nýbúnir að staðfesta brotthvarf Heimis þegar Ólafur var kynntur til leiks sem „nýr“ þjálfari Vals. Hann er ráðinn til loka tímabilsins þar sem verkefnið er að rétta hlut Þorleifur Úlfarsson var í hlutverki hetjunnar hjá Houston Dynamo í fyrrinótt, þegar liðið vann mikil- vægan útisigur á San Jose Earth- quakes, 2:1, í bandarísku MLS- deildinni í knattspyrnu. Þorleifur lék sem fremsti maður Houston í leiknum og skoraði sigurmarkið á 76. mínútu. Houston er nú í ellefta sæti af fjórtán liðum í vesturdeild MLS en í hnífjafnri deild er liðið að- eins tveimur stigum frá sjöunda sætinu, sem gefur keppnisrétt í úr- slitakeppninni. Liðið hefur leikið 21 leik af 34 í deildinni. Sigurmark Þor- leifs í San Jose Morgunblaðið/Hákon Mark Þorleifur Úlfarsson hefur skorað 4 mörk fyrir Houston. Spretthlauparinn Shelly-Ann Fras- er-Pryce frá Jamaíku hreppti í fyrrinótt sín tíundu gullverðlaun á heimsmeistaramóti í frjálsíþróttum þegar hún sigraði í 100 m hlaupinu í Eugene í Bandaríkjunum. Þar af er þetta fimmti sigur hennar í 100 metrunum, sem engin önnur hefur afrekað í sögu HM. Fraser-Pryce, sem er 35 ára, var fjarverandi í tvö ár þegar hún eignaðist son sem nú er fjögurra ára gamall. Jamaíka vann þrefalt því Shericka Jackson og Elaine Thompson-Herah fengu silfur og brons. Tíundu gullverð- launin á HM AFP Sigursæl Shelly-Ann Fraser-Pryce fagnaði vel sigrinum í Eugene. Víkingar og Blikar vita hvað bíður þeirra í þriðju umferð Sambands- deildar karla í fótbolta ef þeir kom- ast áfram úr 2. umferð keppninnar. Víkingar leika fyrri leik sinn gegn The New Saints frá Wales á Víkingsvellinum á fimmtudags- kvöldið. Sigurliðið í því einvígi dróst gegn sigurliðinu úr einvígi Lech Poznan frá Póllandi og Di- namo Batumi frá Georgíu. Breiðablik leikur fyrri leik sinn gegn Buducnost Podgorica frá Svartfjallalandi á Kópavogsvelli á fimmtudagskvöldið. Sigurliðið í því einvígi dróst gegn sigurliðinu úr einvígi Istanbul Basaksehir frá Tyrklandi og Maccabi Netanya frá Ísrael. Rétt eins og í 2. umferðinni myndu bæði Víkingur og Breiða- blik byrja á heimavelli en leikdagar eru 4. og 11. ágúst. Morgunblaðið/Óttar Geirsson Sambandsdeild Breiðablik og Víkingur spila bæði á fimmtudaginn. Pólland, Georgía, Tyrkland eða Ísrael Bjarni Helgason í Rotherham bjarnih@mbl.is „Mér fannst við spila vel og við fengum góð færi gegn þeim,“ sagði Agla María Albertsdóttir, leikmaður íslenska kvennalands- liðsins í knattspyrnu, í samtali við Morgunblaðið eftir 1:1-jafntefli liðsins gegn Frakklandi í lokaleik sínum í D-riðli Evrópumótsins á New York-vellinum í Rotherham í gærkvöld. „Það er fyrst og fremst svekkj- andi hvernig þetta mót hefur spilast fyrir okkur. Við höfum verið að gera góða hluti í þessum leikjun okkar en þetta hefur bara ekki fallið með okkur. Það er rosalegt að falla úr leik, án þess að tapa leik, en jafnteflið gegn Frökkum gefur okkur ótrú- lega mikið og það sýnir okkur að við getum svo sannarlega gefið þessum stærstu þjóðum heims al- vöru leiki,“ sagði Agla María. Agla María, sem er einungis 22 ára gömul, var að taka þátt í sínu öðru stórmóti. „Margt í leik okkar á þessu móti var mjög jákvætt, bæði sóknarlega og varnarlega. Þetta var mitt annað stórmót og ég fann að ég var miklu betur undir- búin núna en síðast. Þetta fer því allt í reynslubankann og við mæt- um ennþá tilbúnari til leiks á næsta stórmót,“ bætti Agla María við. Mjög margt jákvætt á þessu móti Morgunblaðið/Eggert Annað Agla María Albertsdóttir var á sínu öðru stórmóti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.