Morgunblaðið - 19.07.2022, Qupperneq 32
Ferðaskrifstofa eldri borgara býður
nú í fyrsta skipti upp á ferð til suður
Englands þar sem við heimsækjum
fagrar sveitir East Sussex og Kent.
Gist verður á 4* hótelinu Jurys Inn sem er við ströndina í
miðborg Brighton. Farið verður í skoðunarferðir um sveitir
landsins, kastalar heimsóttir auk dagsferðar til Kantara-
borgar (Canterbury) og Chapel Down vínekranna. The
Seven Sisters klettabeltið við Ermasundi er eitt af undrum
veraldar og sjón er sögu ríkari.
Mjög fjölbreytt dagskrá alla daga. Innifalið: Flug með
Icelandair til London Gatwick (aðeins 30 mín. akstur til
Brighton.) Gisting í 4 nætur á Jurys INN ásamt morgunverði
og kvöldverði alla daga. Allar skoðunarferðir, leiðsögn og
íslensk fararstjórn.
BRIGHTON og
Kantaraborg
Eldri borgarar
Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu
eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301,
einnig með tölvupósti í gegnum netfangið
hotel@hotelbokanir.is og á
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
Sérferð
eldri borgara um
sveitir suður
Englands
Verð 219.500 á mann*
m.v. gistingu í tveggja manna herbergi
• aukagjald fyrir eins manns herbergi er kr. 49.000
11.-15. september – UPPSELT
Aukaferð 25.–29. september
– Mikil upplifun
Dúó Edda kem-
ur fram á tón-
leikum í Lista-
safni Sigurjóns
Ólafssonar í
kvöld kl. 20:30.
Tónleikarnir eru
hluti af sum-
artónleikaröð
safnsins. Dúóið
skipa þær Vera
Panitch á fiðlu
og Steiney Sig-
urðardóttir á
selló, en báðar
skipa þær leið-
arastöður við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Undir merkj-
um Dúós Eddu leggja þær áherslu á að flytja tónlist frá
Norðurlöndunum og er markmið þeirra að flytja að
minnsta kosti eitt norrænt tónverk á hverjum tón-
leikum. Á efnisskrá kvöldins eru verk eftir Reinhold
Glière, Maurice Ravel og Johan Halvorsen.
Sumartónar Dúós Eddu í kvöld
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 200. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Heimir Guðjónsson hætti störfum í gær sem þjálfari
karlaliðs Vals í knattspyrnu, eftir slæmt gengi þess að
undanförnu í Bestu deildinni. Ólafur Jóhannesson, sem
þjálfaði Valsmenn í fimm ár, snýr aftur á Hlíðarenda og
tekur við af Heimi. »26
Ólafur í stað Heimis á Hlíðarenda
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Hanakamburinn er kominn í tísku og
jafnvel líka hermannakipping,“ segir
Sveinn Fannar Brynjarsson klippari á
Stúdíó 110 í Reykjavík. „Alls konar
stílar, form og litir fá í dag að njóta sín
í hári fólks og í sjálfu sér er allt leyfi-
legt. Sumir vilja núna til dæmis vera
með sítt að aftan en jafnvel lítið í hlið-
unum. Alls konar strípur eru einnig
teknar í hárið og augabrúnir snyrtar.
Í gegnum samfélagsmiðla er fólk er
fljótt að meðtaka nýjungar tískunn-
ar.“
Rétti staðurinn og
góður mannskapur
Níu rakarar starfa á Stúdíó 110
sem er í einni álmu jarðhýsanna í Ár-
túnsbrekku. Í liði þessu er einn með
meistarabréf í faginu, sveinarnir eru
fimm og nemarnir þrír og bráðum
fjórir. Þeir Sveinn og Gunnar Malm-
quist Þórsson eiga staðinn og leigja
síðan út stóla og aðstöðu.
„Við Gunnar lærðum fagið á sama
tíma í hárakademíu Hörpu Ómars-
dóttur, sem rekur stofuna Blondie við
Síðumúla. Hugur okkar stóð síðan
alltaf til þess að fara út í eigin rekstur
og við fórum víða um bæinn í leit að
húsnæði sem hentaði. Þegar við svo
komum hingað í jarðhýsin, vissum við
strax að þetta væri rétti staðurinn. En
við lögðum okkur líka eftir því að fá
með góðan mannskap – sem eru
strákar milli tvítugs og þrítugs. Mark-
hópur okkar er þessi sami aldur.“
Góður félagsskapur
Jarðhýsin í Ártúnsbrekku voru
reist fyrir bráðum áttatíu árum og
voru þá kartöflugeymslur Reykvík-
inga. Í tímans rás hefur ýmis starf-
semi verið í þessum byggingum, sam-
anber að tímarnir breytast og
mennirnir með. Nú eru þarna til
dæmis gallerí, veislusalur, jógasetur,
húðflúrsstofa og kaffihús. Vel hæfir,
segir Sveinn, að hársnyrtar séu í þess-
um góða félagsskap og staðsetningin
er líka góð. „Nafnið á staðnum, Stúdíó
110, kom nánast af sjálfu sér enda er-
um við í Árbæjarhverfi og póstnúm-
erið hér er 110. Hér inni viljum við
líka hafa líflega stemningu, því klipp-
ing á að vera skemmtileg. Meðan beð-
ið er, geta menn hér farið í billjarð eða
pílu – og svo látum við skemmtilega
tónlist óma. Oft er hér líka spjallað
um fótbolta og við strákarnir hér
höldum hver með sínu liðnu. Þessi
formúla virðist líka virka, því nú þeg-
ar er stúdíóið okkar hér orðin ein
stærsta klippistofa landsins og þó er-
um við bara rétt að byrja,“ segir
Sveinn Fannar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Klipparar Strákarnir í Stúdíó 110 frá vinstri talið: Atli Kristjánsson, Dagur Guðjónson, Helgi Snær Ásgrímsson,
Gunnar Malmquist Þórsson, Macklenin Ramirez, Sveinn Fannar Brynjarsson, sem er fyrir miðju, og sitjandi í stóln-
um, Magnús Andri Ólafsson, Gunnar Jónas Hauksson og Ægir Líndal Unnsteinsson. Vanir menn og vandvirkir.
Með alls konar strípur
- Klipping nú í
gömlu kartöflu-
geymslunum
Ártúnsbrekka Gallerí, veislusalur, jógasetur, tattústofa og hársnyrting.