Morgunblaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022
✝
Lilja Jóhanns-
dóttir sjúkra-
liði fæddist á
Tröllanesi á Norð-
firði 25. nóvember
1938. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Fossahlíð á
Seyðisfirði 12. júlí
2022.
Lilja var dóttir
hjónanna Guðnýjar
Stefaníu Guð-
mundsdóttir, f. 28. ágúst 1907, d.
1. ágúst 1980 og Jóhanns Jóns-
sonar íþróttakennara, f. 22.
mars 1905, d. 10. janúar 1990.
Systkini hennar voru Halldór,
f. 16. júní 1932, d. 4. júní 2021 og
Sólveig, f. 5. júlí 1948, búsett í
Reykjavík.
Lilja giftist Tryggva Vil-
María, f. 5. desember 1981, 3)
Tryggvi, f. 1. júlí 1986.
c) Jóhann, f. 20. mars 1961,
giftur Jenný Sigrúnu Jörg-
ensen, f. 10. janúar 1961, þeirra
börn eru: 1) Stefán Jóhann, f. 12.
september 1980, 2) Karl Friðrik
Jörgensen, f. 11. febrúar 1986,
3) Bjartur Þór, f. 18. mars 1994,
4) Lilja Tekla, f. 18. september
1995.
d) Bjarni, f. 6. desember 1963,
hans börn eru: 1) Svanhildur
Jóna, f. 12. september 1980, 2)
Björn Natan, f. 11. ágúst 1987, 3)
Hörður Barðdal, f. 8. mars 1990.
e) Stefanía Marta, f. 10. mars
1965, lést 12. apríl 1967.
Barnabarnabörnin eru orðin
24 talsins.
Útför Lilju fer fram frá Norð-
fjarðarkirkju í dag, 22. júlí 2022,
klukkan 13.
Streymt verður frá útförinni
á Facebook-síðu Norðfjarðar-
kirkju.
mundarsyni, f. 12.
október 1938, d. 7
maí 2005, 18. des-
ember 1959.
Tryggvi var sonur
hjónanna Stefaníu
Mörtu Bjarnadótt-
ur, f. 18. september
1901, d. 13. október
1970 og Vilmundar
Sigurðssonar, f. 31.
ágúst 1889, d. 6. júlí
1978.
Börn Lilju og Tryggva eru:
a) Lilja, f. 30. desember 1956,
hennar dóttir er Heiða Dögg, f.
7. nóvember 1975.
b) Vilmundur, f. 20. mars
1961, giftur Gyðu Maríu Mar-
vinsdóttur, f. 10. ágúst 1960,
þeirra börn eru: 1) Guðrún
Halla, f. 21. júní 1979, 2) Ólöf
Þakklæti er það fyrsta sem
kemur upp í huga mér þegar ég
sit og hugsa til tengdamömmu
minnar Lilju Jóhannsdóttir, eða
Diddu eins og hún var alltaf köll-
uð. Mikið af ljúfum og skemmti-
legum minningum kom upp í
huga mér, þegar hún var að
koma og heimsækja okkur var
alltaf farið aðeins í Kringluna því
það bráðvantaði einhverja smart
skó eða einhverja lekkera peysu
sem væri gott að hafa í bílnum.
Tengdamömmu fannst bæði
gaman að syngja og dansa og það
var oft tekið lagið, dansað og svo
var hlegið á eftir. Didda var mikil
handavinnu- og listakona og voru
margar peysurnar prjónaðar og
heklaðar dúllur sem nauðsynlegt
var að eiga og ekki má gleyma
öllum fallegu myndunum sem
hún málaði. Eftir andlát Tryggva
flutti hún suður, eitt sinn sem
oftar kom hún í heimsókn til okk-
ar og þegar við vorum að fá okk-
ur kaffisopa þá heyrist í henni:
Mikið væri nú gaman að skreppa
til Kanarí, en þangað fóru þau
Tryggvi saman í mörg ár. Þá var
Visa-kortið tekið upp úr veskinu
og drifið í að panta flugmiða og
skellti hún sér ein og ég dáðist að
þessari hugrökku konu sem allt-
af hafði farið með Tryggva sín-
um. Didda var sátt og glöð með
þessa flottu ferð þar sem hún
hitti yndislegan dansfélaga sem
bauð henni síðan á þorrablót á
Seyðisfjörð og það er það lengsta
þorrablót sem ég veit um. Fyrir
fjórum árum fór heilsu Diddu að
hraka og var Knútur henni þar
ómetanlegur stuðningur. Með
þessum minningarorðum kveð ég
þig með söknuði og þakklæti fyr-
ir allt.
Margt ég vildi þakka þér
og þess er gott að minnast
að þú ert ein af þeim sem mér
þótti gott að kynnast.
(G.J.)
Gyða María.
Elsku besta „Didda amma“
mín hefur ávallt verið mér upp-
spretta lífsgleði og skemmtunar.
Ég man vel eftir heimsóknun-
um þegar amma og afi voru að
koma austur til okkar og þá valt
allskonar Kanaríglingur upp úr
töskunum frá síðustu Kanaríferð
og slagorðið var þetta var svo
„bilettutlegt“.
Ekki get ég hugsað til ömmu
án þess að rifja upp alla hundana
geltandi og gjammandi og amma
hlaupandi um allt hús með mat-
arskálina til að fá þá til að borða
eftir rúntinn frá Höfn.
Ég naut þess að eiga tíma með
þér þegar við bjuggum bæði í
Reykjavík. Þú komst með okkur
félögunum á KFC og þegar þú
varst að fara út með stelpunum
þá skutlaði ég þér reglulega á
Kringlukrána, sérstaklega þegar
Geirmundur var að spila fyrir
dansi.
Síðar varðst þú þeirrar gæfu
aðnjótandi að kynnast elskulega
Knúti í einu af þínum Kanarí-
ævintýrum og fluttir með honum
til Seyðisfjarðar. Þaðan flökkuð-
uð þið á húsbílnum um landið og
miðin og dönsuðuð undir ljúfum
tónum. Það var svo augljóst að
þér leið aldrei betur en þegar þú
varst dansandi.
Börnin mín eiga sínar ljúfu
minningar frá Seyðisfirði þar
sem langamma var búin að gera
pönnukökur handa öllum eða
bauð upp á súkkulaðirúsínur á
fimm mínútna fresti, hver elskar
það ekki.
Við munum sakna þín, elsku
amma, og rifja upp skemmtileg-
ar sögur frá tíma okkar með þér.
Farðu í friði.
Stefán Jóhann og
fjölskylda Svíþjóð.
Elsku amma, það er komið að
kveðjustund.
Takk fyrir allar góðu stund-
irnar, góðu ráðin og gleðina sem
umlukti þig ávallt.
Við stelpurnar vorum heppn-
astar í heimi að eiga ömmu sem
var svo mikil pæja að hún lánaði
okkur bæði föt og skó fyrir
djammið. Alveg frá því að við
vorum litlar fengum við að fara í
fataskápinn sem geymdi fallega
kjóla úr silki og pallíettum, há-
hælaða skó og alls kyns gersem-
ar. Amma hafði alltaf góðan fata-
smekk og fylgdi tískunni en á
sama tíma fannst henni voða gott
að vera í þægilegum fötum þegar
hún var í því stuðinu.
Amma vildi alltaf að öllum liði
vel í kringum sig og þessi góð-
mennska og gleði einkenndi hana
alla tíð. Við hlökkuðum alltaf til
þegar við vissum að við værum
að fara til ömmu og afa, og mað-
ur var nánast farinn að finna
ömmulyktina sem fylgdi faðm-
laginu um leið og maður loksins
kom. Það var alltaf gott að vera í
kringum ömmu og afa, ekki síst
vegna þess að maður fékk að
vera maður sjálfur og ástin var
algjörlega skilyrðislaus, en að
sama skapi höfðu þau einstakt
lag á að kenna manni heilræði og
að sjá hlutina í réttu ljósi án þess
að maður tæki eftir því.
Það var aldrei leiðinlegt að
fara með ömmu í búðir, hún sá
nefnilega notagildi í allskonar
hlutum sem enginn annar sá og
þá sagði hún iðulega að þetta
væri nú gott að hafa í bílnum.
Þar með var búið að réttlæta
kaupin og allir sáttir hvort sem
hluturinn var notaður eða ekki.
Við vorum glöð fyrir ömmu
hönd þegar hún kynntist Knúti
og ferðaðist með honum út um
allar trissur á húsbílnum að elta
uppi harmonikkuböll og dans-
leiki og við vissum líka að hún
fengi að njóta sín til fulls í þess-
um ferðalögum sem og í dansi og
söng eins og henni einni var lag-
ið.
Elsku amma, nú ertu komin á
betri stað og ert örugglega að
taka snúning og að syngja Sæsa-
valsinn og það yljar okkar um
hjartarætur.
Guðrún Halla, Ólöf María,
Karl Friðrik, Tryggvi,
Bjartur Þór, Lilja Tekla og
fjölskyldur.
Elsku langamma, það er kom-
ið að kveðjustund. Þó svo að
söknuður sé mikill þá munt þú
alltaf lifa með mér í minningunni.
Margar minningar koma upp i
huga minn þegar ég hugsa um
þig elsku langamma. Fallegasta
minningin mín sem lifir með mér
eru fallegu málverkin sem þú
dundaðir þér við að mála. Áður
en veikindin náðu þér varstu
dugleg í prjónaskapnum og
dýrkuðu allir að fá ullarsokka
eða vettlinga frá þér. Er þakklát
fyrir að hafa verið fyrir austan
síðasta tímann okkar svo ég gat
fengið að hitta þig og sjá þitt
fallega bros. Þú varst öll fallegu
lýsingarorðin sem til eru í orða-
bókinni.
Þitt elsta langömmubarn,
Martha Maria.
Lilja Jóhannsdóttir
✝
Þorbergur
Guðmundsson
fæddist í Reykjavík
27. september
1940. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 9. júlí
2022.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Árni Jónsson frá
Sogni í Kjós, f. 30.9.
1907, d. 19.3. 1989,
og Anna Andrésdóttir frá
Neðra-Hálsi í Kjós, f. 21.12.
1919, d. 8.4. 2009.
Bræður Þorbergs voru Gunn-
ar, f. 22.10. 1944, d. 3.3. 2002,
Magnús, f. 17.3. 1946, d. 9.10.
2021, og Jón Árni, f. 20.12. 1951,
d. 9.9. 1999.
Eftirlifandi eig-
inkona Þorbergs er
Ester Alberts-
dóttir, f. 29. apríl
1945. Börn þeirra
eru: Anna Lísa, f.
12.11. 1963, Jó-
hanna, f. 12.10.
1966, og Albert, f.
19.1. 1974. Afa-
börnin eru tíu og
langafabörnin tvö.
Þorbergur starf-
aði lengst af við sölu bifreiða,
fyrst hjá Kr. Kristjánssyni hf.,
síðan hjá Sveini Egilssyni hf. og
var svo einn stofnenda Suzuki
bíla hf. árið 1989.
Útför Þorbergs fer fram frá
Kópavogskirkju í dag, 22. júlí
2022, klukkan 13.
Fyrstu kynni mín af Þorbergi
Guðmundssyni voru þegar hann
kom til starfa hjá Ford-umboðinu
Sveini Egilssyni hf. árið 1975. Þar
áður hafði hann starfað hjá Ford-
umboðinu Kr. Kristjánsson hf.
frá árinu 1964 sem sölumaður
nýrra bíla. Þorbergur sameinað-
ist fljótt og vel samhentum hópi
starfsmanna Sveins Egilssonar
og tókst með okkur góður vin-
skapur sem aldrei bar skugga á.
Árið 1989 kom upp sú staða að
undirrituðum bauðst að kaupa
Suzuki-umboðið af Sveini Egils-
syni hf. sem þá var í endurskipu-
lagningu. Lá þá beinast við að fá
Þorberg til samstarfs um kaupin
þar sem hann hafði víðtæka
reynslu af bílaviðskiptum og átti
marga trausta viðskiptavini. Sú
ákvörðun varð heilladrjúg því
betri samstarfsfélaga var vart
hægt að finna og hélt það sam-
starf allt til starfsloka Þorbergs
fyrir tveimur árum. Það var ein-
staklega gott að hafa hann í
stjórn. Hann var einstakt ljúf-
menni og átti auðvelt með öll
mannleg samskipti sem kemur
sér vel í viðskiptum auk þess að
hafa víðtæka reynslu af bílgrein-
inni. Við starfslok Þorbergs var
hann líklega með einn lengsta
samfelldan starfsaldur í grein-
inni, allt frá 1964.
Þorbergur var vinamargur og
átti sér líka stóran hóp viðskipta-
vina sem höfðu fylgt honum
gegnum tíðina og leituðu ávallt til
hans þegar endurnýja þurfti bíla,
mörg þau viðskiptasambönd ent-
ust í tugi ára.
Þorbergur var vinsæll meðal
samstarfsmanna og var ávallt
hrókur alls fagnaðar þegar
starfsfólkið kom saman til að
skemmta sér. Hann var lengst af
mjög heilsuhraustur og hafði
reglusemi og gott skap eflaust
mikið um það að segja. Við áttum
ávallt ákaflega gott samstarf um
stjórn fyrirtækisins og ávallt var
hægt að leita í reynslubanka Þor-
bergs ef einhver vandamál komu
upp.
Ég votta eiginkonu og fjöl-
skyldu Þorbergs mína dýpstu
samúð. Góður og traustur maður
er genginn á vit feðra sinna.
Úlfar Hinriksson.
Kynni okkar Þorbergs hófust
fyrir rúmum 70 árum og tengd-
umst við tryggðaböndum frá
fyrsta degi.
Tobbi eins og hann var oftast
nefndur ólst upp á Nönnugötunni
og á Hálsi í Kjós, fór í sveit frá
unga aldri og fram yfir fermingu
eins og var algengt um miðja síð-
ustu öld. Líklega var það bíladella
sem gerði útslagið, báðir áhuga-
samir um bílamenningu. Gerðum
upp að mig minnir tvo eða þrjá
gamla bíla og var aðstaðan til við-
gerða að sjálfsögðu í hlöðunni á
Hálsi, en Kjósin var aldrei langt
undan í huga Tobba sem var
tryggur sinni heimasveit alla ævi.
Ævistarfið tengdist bílum á
einn eða annan hátt. Fyrsta al-
vöru vinnan var með Bóa frænda
fyrir Varnarliðið í innkaupadeild
hersins. Ófáar ferðir keyrði ég
með honum eftir gamla Keflavík-
urveginum sem var bæði holóttur
og krappur.
Í framhaldinu fór Tobbi að
vinna fyrir FORD og upp úr því
stofnuðu þeir nokkrir félagar
SUZKI umboðið sem var alla tíð
farsælt bílaumboðsfyrirtæki.
Þorbergur var heppinn í maka-
vali og samband hans og Esterar
Albertsdóttur var til fyrirmyndar
og farsælt mjög.
Mér er mikill söknuður að
Tobba og með þessum fátæklegu
línum vil ég senda samúðarkveðj-
ur til Esterar, Önnu Lísu, Jó-
hönnu og Alberts Þorbergsbarna
og fjölskyldna þeirra. „Far vel,
gamle vend.“
Jón Hermannsson (Jónsi).
Þorbergur
Guðmundsson
Kynni mín af
Guðmundi Magnús-
syni hófust þegar
hann flutti að sunn-
an í heimabyggðina á Reyðarfirði
1977 og tók þar við starfi fræðslu-
stjóra Austurlands. Um þær
mundir vann ég m.a. að skólamál-
um eystra, bæði á grunnskóla- og
framhaldsskólastigi. Framundan
var lokaundirbúningur að
Menntaskólanum á Egilsstöðum
sem tók til starfa 1979 og jafn-
framt var unnið að stefnumörkun
um framhaldsskólastigið í fjórð-
ungnum undir forystu Gerðar G.
Óskarsdóttur skólastjóra í Nes-
kaupstað. Við tókum þegar upp
samstarf við Guðmund sem ný-
ráðinn forstöðumann Fræðslu-
skrifstofu Austurlands, sem var á
Reyðarfirði. Meginverkefni henn-
ar varðaði grunnskólastigið, sem
lagði til efniviðinn í væntanlega
framhaldsskóla í fjórðungnum.
Það var mikill happafengur að fá
Guðmund til forstöðu skrifstof-
Guðmundur
Magnússon
✝
Guðmundur
Magnússon
fæddist 9. janúar
1926. Hann lést 8.
júlí 2022.
Guðmundur var
jarðsunginn 20. júlí
2022.
unnar, reyndan
skólamann úr höfuð-
staðnum og öllum
hnútum kunnugan á
Austurlandi frá fyrri
tíð. Fyrstu árin var
skrifstofan í þröngu
húsnæði að Mána-
götu 14 á Reyðar-
firði, en var flutt um
set yfir í Hermes
1985. Þar kom ég
sem þingmaður oft
við hjá Guðmundi á leið gegnum
kauptúnið næsta áratuginn.
Eftir að Guðmundur flutti
ásamt fjölskyldu sinni frá Reyð-
arfirði hóf hann fljótlega að vinna
að ritun á sögu Reyðarfjarðar allt
frá árinu 1883, og kom bók hans út
árið 2003. Um það leyti vann ég að
árbók um Austfirði fyrir Ferða-
félag Íslands. Reyndist rit Guð-
mundar mér mikið og gott vega-
nesti um sögu Reyðarfjarðar, m.a.
varðandi hernámsárin 1940-1945,
sem höfundurinn mundi vel eftir
frá sínum unglingsárum þar á
staðnum.
Eftirlifandi eiginkonu Guð-
mundar, Önnu Arnbjörgu Frí-
mannsdóttur, og afkomendum
þeirra vottum við Kristín samúð
við fráfall þessa merka Austfirð-
ings.
Hjörleifur Guttormsson.
Elsku hjartans eiginkona mín, móðir okkar
og dóttir,
ÞÓRHALLA ARNARDÓTTIR
framhaldsskólakennari,
lést fimmtudaginn 14. júlí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 29. júlí klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Minningarsjóð Örvars Arnarsonar
og Ljósið.
Kolbeinn Már Guðjónsson
Örn Hrafnsson Margeir Hrafnsson
Björg Sóley Kolbeinsdóttir Backman
Örn Karlsson Ingibjörg Ósk Óladóttir
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR BIRNA LÁRUSDÓTTIR,
Hveralind 2,
lést á Hjartadeild Landspítalans
mánudaginn 18. júlí í faðmi fjölskyldunnar.
Útförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi
miðvikudaginn 27. júlí klukkan 13.
Aðstandendur vilja senda sérstakar þakkir til starfsfólks
Hjartadeildar Landspítalans fyrir einstaka alúð í veikindum
hennar. Athöfninni verður streymt á www.lindakirkja.is/utfarir.
Einnig má nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat.
Bjarni Lárus Harðarson Nína Vilborg Hauksdóttir
Kristján Þór Harðarson Geirlaug B. Geirlaugsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
BJÖRN JÓNSSON,
Faxatúni,
Borgarlandi 3, Djúpavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Uppsölum
fimmtudaginn 14. júlí. Útförin fer fram frá Djúpavogskirkju
þriðjudaginn 26. júlí klukkan 14.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hjúkrunarheimilisins
Uppsala á Fáskrúðsfirði fyrir ómetanlega umönnun og hlýju í
hans garð. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta
Hjúkrunarheimilið Uppsali njóta þess.
Ingveldur Björk Björnsdóttir Magnús Hreinsson
Jón Rúnar Björnsson Jonah Marchadesch
Kristín Sigrún Halldórsdóttir
Guðmundur Árni Sigurðsson Sigurbjörg Sigurðardóttir
Elín Lára Sigurðardóttir
Ásta Sigríður Sigurðardóttir Sigurbjörn Árnason
barnabörn og barnabarnabörn