Morgunblaðið - 22.07.2022, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022
„EF ÞÚ VILT FARA, MÓEIÐUR, MUN ÉG
EKKI HINDRA ÞIG.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að hugsa til hans með
ást í hjarta.
HÓ! HÓ! HÓ!
HEY, ÉG ER
AÐ BORÐA!
VANTAR ÞIG SÍÐBÚNAR
JÓLAGJAFAHUGMYNDIR,
LITLI VINUR?
TAKK
JÓLA-LÓI!
MÝFLUGUR ERU
FRÁBÆRAR
SMÁGJAFIR!
ERTU EKKI GLÖÐ AÐ SJÁ MIG
ÁN BJÓRKRÚSAR Í HÖND?
ÉG ER EKKI VISS
„NEI, ÉG PANTAÐI LASAGNAÐ.
EINHVER ANNAR HEFUR PANTAÐ
LEIGUMORÐINGJANN.“
tækið erum ekki miklir kokkar sjálf
en erum frekar þjónustumiðuð í
staðinn.“
Jón hefur lengi verið virkur í
félagsstörfum og verið félagi í frí-
múrarareglunni frá 2012 og var þar
að auki í Rótarýklúbbi Keflavíkur
frá 2001 til 2013 og situr í stjórn
Krabbameinsfélags Suðurnesja. Jón
er staddur í Hollandi um þessar
mundir þar sem hann mun fagna af-
mælisdeginum með vinahóp frá Ís-
landi.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Júlía Jóns-
dóttir, f. 26.4. 1979, sölumaður. Þau
eru búsett í Keflavík. Foreldrar Júl-
íu eru Jón Ágúst Pálmason, f. 21.12.
1954, grafískur hönnuður og Hildur
Nanna Jónsdóttir, 17.3. 1961, hús-
móðir og bókari. Þau skildu. Sam-
býlismaður Hildar Nönnu er Sig-
tryggur Leví Kristófersson þyrlu-
flugmaður. Börn Jóns og Júlíu eru:
1) Ívar Snorri Jónsson, f. 2005. 2)
Jón Ágúst Jónsson, f. 2007. 3) Hild-
ur Nanna Jónsdóttir, f. 2013.
Sonur Jóns úr fyrra sambandi er
Axel Jónsson, f. 1997. Júlía átti fyrir
soninn Davíð Þór Elvarsson, f. 1997.
Dóttir Davíðs er Kolbrún Júlía Dav-
íðsdóttir, f. 2017. Móðir hennar er
Helga Sóley Halldórsdóttir, f. 1997.
Systir Jóns er Fanný Sigríður Ax-
elsdóttir, f. 7.12. 1978, mannauðs-
og samskiptastjóri Skólamatar ehf.
Foreldrar Jóns eru hjónin Axel
Jónsson, f. 5.3. 1950, veitingamaður,
og Þórunn María Halldórsdóttir, f.
24.9. 1950, húsmóðir. Þau eru búsett
í Keflavík.
Jón Axelsson
Baldey Reginbaldsdóttir
húsmóðir á Sævarlandi í Skagafirði
Jónas Vilhelm Lárusson
bóndi á Sævarlandi í Skagafirði
Sigríður Björg Vilhelmsdóttir
húsfreyja, kaupmaður og
prjónakona í Keflavík
Halldór Friðriksson
sjómaður og síðar málari í Keflavík
Þórunn María
Halldórsdóttir
húsmóðir í Keflavík
Þórunn María
Þorbergsdóttir
húsmóðir á Látrum í Aðalvík
Katarínus Friðrik Finnbogason
bóndi og sjómaður á Látrum í
Aðalvík, síðast bús. í Keflavík
Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Gísli Gíslason
vinnumaður á Seltjarnarnesi,
síðar bakari í Hafnarfirði
Jóna Sigríður Gísladóttir
húsfreyja, saumakona og
matráður í Hafnarfirði
Jón Axelsson
kaupmaður, búsettur í
Sandgerði og síðar í Keflavík
Þorbjörg Ágústa Einarsdóttir
húsfreyja á Grund, Hvalnessókn,
síðar á Borg í Sandgerði
Axel Jónsson
kaupmaður á Borg í Sandgerði
Ætt Jóns Axelssonar
Axel Jónsson
veitingamaður í Keflavík
Einar K. Guðfinnsson sendi mér
góðan póst um íslenska fjárhund-
inn:
„Jón Kristjánsson fyrrverandi al-
þingismaður og ráðherra skrifaði á
Facebook-síðu sína:
Ég heyrði í útvarpinu að nú væri
dagur íslenska fjárhundsins. Ég
minnist þess að á Alþingi kom
nefndur hundur til umræðu þegar
ég var þar. Guðni Ágústsson flutti
tillögu um að auka veg hans og
virðingu og sagði í framsögu að
hann væri lifandi listaverk og aug-
un í honum höfðuðu til réttlætis-
kenndar. Guðni lagði til að málinu
yrði vísað til allsherjarnefndar Al-
þingis.
Friðjón Þórðarson dró efni ræð-
unnar saman í vísu sem var svo-
hljóðandi:
Þú íslenski fjárhundur, lifandi listaverk
með ljómandi augu, sem höfða til rétt-
lætiskenndar.
Með hringaða rófu og hálsband um
loðna kverk,
ég heiti á þig að komast til allsherjar-
nefndar.
Ég er því miður hræddur um að
málið hafi sofnað í nefnd.“
Jón Jens Kristjánsson segir á
Boðnarmiði: „Bjór sem springur
tekinn úr sölu. Sjá Fréttablaðið.“
Veit ég um einn vænan kór
vel hann einatt syngur
þegar hann hefur bragðað bjór
sem bólgnar út og springur.
Undir þetta getum við öll tekið
með Bjarna Sigtryggssyni:
Kófið er illvígur ári,
sem angrar konur og menn.
Megi því fjandans fári
fara að ljúka senn.
Hrafndís Bára yrkir og ekki er
það gott:
Barist er á boðnarskjá
ber á miklu væli.
Virðist mér ég vera á
vitleysingahæli.
Hallmundur Guðmundsson um
Bögusmíð:
Á ævikvöldi fyrir finn,
fjörbrotum í húminu.
Þá andagiftar afurð spinn
– aðallega í rúminu.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson orti:
Í mannfjöldann Magnús á Grund
missti sinn kolóða hund
er geltandi beit
eitt barn sem þá leit
upp úr símanum svolitla stund.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Íslenski fjárhundurinn
og sprengibjór