Morgunblaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vík Umsvifin mikil og vaxandi.
Ríkið þarf að koma að styrkingu ým-
issa innviða í Vík í Mýrdal, þangað
sem á góðum degi koma nú allt að
5.000 ferðamenn. Segja fulltrúar
sveitarfélagsins að styrkja þurfi
vegakerfi, löggæslu og heilbrigðis-
þjónustu. Fráleitt sé því að miða um-
fang opinberrar þjónustu við fjölda
skráðra íbúa. Taka verði ferðamenn
inn í breytuna.
„Allt er krökkt af fólki frá morgni
til kvölds,“ segir Einar Freyr Elín-
arson sem um mánaðamótin tekur
við starfi sveitarstjóra Mýrdals-
hrepps. Skráðir íbúar í sveitarfé-
laginu eru nú 850 en voru um 460
fyrir áratug. Stór hluti nýrra íbúa er
fólk af erlendum uppruna, sem
starfar við ferðaþjónustu. »10
Mikil fjölgun
í Mýrdalnum
- Ríkið styrki svæðið
F Ö S T U D A G U R 2 2. J Ú L Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 170. tölublað . 110. árgangur .
MEÐ ENDURNÝJAÐ
ÖKUSKÍRTEINI OG
HEILL HEILSU
SVIPTIR HULUNNI
AF EINSTÖKUM
FYRIRBRIGÐUM
FEGURÐ OG
SVEITARÓMANTÍK Í
FORGRUNNI
WEBB-SJÓNAUKINN, 14 REYKHOLTSHÁTÍÐ 28JENS ALBERT 100 ÁRA 4
Tveir leikmenn og þjálfari svartfellska knattspyrnuliðsins
Buducnost fengu að líta rauða spjaldið í Evrópuleik gegn
Breiðabliki á Kópavogsvellinum í gærkvöld. Mikill hiti var í
leikmönnum og forráðamönnum Buducnost og lögregla
þurfti að skakka leikinn þegar flautað hafði verið til leiksloka
og þeir hugðust veitast að leikmönnum Breiðabliks.
Leikurinn endaði með 2:0 sigri Breiðabliks. Sama gilti um
Víkinga sem sigruðu velsku meistarana The New Saints 2:0 á
Víkingsvellinum. Íslensku liðin standa þvi bæði vel að vígi eft-
ir fyrri leiki sína í annarri umferð Sambandsdeildar Evrópu
og fara með tveggja marka forskot í seinni leikina. Þeir fara
fram ytra næsta fimmtudag. »27
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Æstir Svartfellingar á Kópavogsvellinum
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Hagkvæmustu loftslagsaðgerðir
stjórnvalda felast í landgræðslu,
skógrækt og endurheimt mýrlendis,
en á hinn bóginn eru ívilnanir vegna
kaupa á rafbílum, bann við urðun á
lífrænum úrgangi og efling innlendr-
ar grænmetisframleiðslu beinlínis
óhagkvæm og stuðla lítt að því að
markmiðum aðgerðanna sé náð.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands,
en samkvæmt henni er afar misjafnt
hversu hagkvæmar loftslagsaðgerð-
ir stjórnvalda eru.
Vægi hagkvæmni til árangurs
Þar er ekki aðeins um að ræða
fjárhagslega hagsmuni landsmanna,
heldur skiptir hagkvæmnin máli
gagnvart loftslagsmarkmiðunum.
„Óhagkvæmar loftslagsaðgerðir
rýra ekki aðeins hag landsmanna,
heldur draga þær úr getu þeirra til
þess að beita þeim ráðum í loftslags-
málum sem borga sig,“ segir í inn-
gangi skýrslunnar. Þar er vendilega
rökstutt hvað einstakar aðgerðir
kosta og hver ávinningur af þeim sé,
bæði í fjárhagslegu tilliti og eins
gagnvart loftslaginu. Þar kemur
vafalaust sumt á óvart, eins og að
stuðningur við innlenda grænmetis-
framleiðslu sé til lítils nýtur að þessu
leyti eða að borgarlínan, sem á að
vera knúin rafmagni og metani,
gagnist loftslagsmarkmiðum ekki
sérstaklega.
Ræktarsemi við landið hagkvæmust
- Loftslagsaðgerðir stjórnvalda mjög mishagkvæmar að mati Hagfræðistofnunar
Morgunblaðið/Kristinn
Skógur Skógrækt er hagkvæm
loftslagsaðgerð ásamt annarri rækt. MMisjafn árangur … »6
fjölgun, haft í för með sér að íbúa-
fjöldinn verði kominn í 385 þúsund
um áramótin.
Nærri íbúafjöldi Hafnarfjarðar
Gangi það eftir yrði það fjölgun
um 29 þúsund íbúa frá desember-
byrjun 2018 sem jafnast næstum á
við íbúafjölda Hafnarfjarðar.
Flestir innflytjendur á Íslandi
koma frá Evrópu. Hagþróun í
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íbúar landsins urðu í fyrsta sinn
rúmlega 380 þúsund í sumarbyrjun.
Þeim hefur fjölgað um ríflega 4.700
frá áramótum, eða á við íbúafjölda
Seltjarnarness, og eru íbúar lands-
ins nú um 381 þúsund.
Þörf er á aðfluttu vinnuafli og
gæti það, ásamt náttúrulegri íbúa-
Evrópu, ekki síst á evrusvæðinu,
gæti því haft áhrif á aðflutninginn.
Það gæti því ýtt undir aðflutning
til landsins að horfur á evrusvæðinu
á síðari hluta árs hafa versnað og að
staða efnahagsmála er betri hér.
Christine Lagarde, bankastjóri
evrópska seðlabankans, ræddi efna-
hagshorfurnar er hún gerði grein
fyrir 0,5% vaxtahækkun bankans,
þeirri fyrstu í ellefu ár, í gær.
Lagarde gaf til kynna að vextir
hækki meira í haust en hún sagði
hækkandi orkuverð, í kjölfar inn-
rásar Rússa í Úkraínu, hafa ásamt
öðru ýtt undir verðbólgu í álfunni.
Þá boðaði hún stuðningsaðgerðir
til handa þeim ríkjum evrusvæðisins
sem höllustum fæti standa en Ítalía,
eitt stærsta hagkerfi álfunnar,
glímir nú við stjórnarkreppu og
íþyngjandi ríkisskuldir. »12
Jafnast á við íbúafjölda Seltjarnarness
- Landsmönnum fjölgar hratt í ár - Ólga í Evrópu gæti ýtt undir aðflutning