Morgunblaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022 Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfi ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma mín. Gesturinn með grimma ljáinn glöggt hefur unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notið, finn hve allt er beiskt og brotið burt er víkur aðstoð þín, elsku góða mamma mín. Allt sem gott ég hefi hlotið, hefur eflzt við ráðin þín. Þá skal ekki víla og vola, veröld þótt oss brjóti í mola. Starfa, hjálpa, þjóna, þola. Það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín. Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærust blysin þín. Flýg ég heim úr fjarlægðinni, fylgi þér í hinzta sinni, krýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. Okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá guði skín. (Árni Helgason/Móðir mín) Þín elskandi dóttir, Ágústa. Elsku mamma mín. Þó ég hafi vitað að það styttist í sumarland- ið hjá þér, kveið ég mikið fyrir því. Ég var svo glöð að vera fyrir sunnan og hitta þig í nokkra daga, áður en þú veiktist mikið. Árný Elsa Tómasdóttir ✝ Árný Elsa Tómasdóttir fæddist 14. október 1940. Hún lést 5. júlí 2022. Útför Elsu fór fram 20. júlí 2022. Minningarnar eru margar og ég hugsa mikið um þær. Þeg- ar við fórum til Dan- merkur og lentum í þvílíkum ævintýr- um, einnig þegar við fórum til Portúgals- ,hvað þú elskaðir ströndina. Þú varst viðstödd fæðingar barnanna minna, þegar við héldum að þú þyrftir að taka á móti „miðju“-barninu mínu, þá hlóg- um við mikið. Í gegnum árin urð- uð þið „miðju“-barnið mitt mikl- ar vinkonur og þú fórst með henni í skákferð til Tyrklands. Þú varst mikill dýravinur og voru hjá þér í gegnum árin hundar og kettir, og okkar dýr voru alltaf velkomin til þín. Það var gott að koma til þín og var það fastur lið- ur að koma til þín fyrir miðnætti á gamlárskvöld því þú varst með besta útsýnið yfir borgina. Þú kenndir mér margt þó ég væri nú ekki sú þolinmóðasta. Ég sé þig fyrir mér dansa, þér þótti alltaf svo gaman að dansa. Nú ertu komin til ömmu og afa sem þú talaðir mikið um undir það síð- asta. Elsku elsku mamma, við eig- um eftir að hittast í sumarland- inu. Með þökk. Þín gullnu spor yfir ævina alla hafa markað langa leið. Skilið eftir ótal brosin, bjartar minningar sem lýsa munu um ókomna tíð. (Hjartalag/Hulda Ólafsd.) Guðbjörg Kristín Valdimarsdóttir (Kiddý). Elsku besta amma mín, þú varst mín allra besta vinkona. Söknuðurinn er svo sár og langar mig svo að fá knúsið þitt og koss- ana aftur. Ég reyni að hlýja mér við allar þær góðu minningar sem ég á með þér, þær eru ótelj- andi margar. Ég gæti skrifað endalaust, ég er þér svo óendanlega þakklát, varst alltaf til staðar fyrir mig og hafðir endalausa trú á mér í öllu. Stelpurnar mínar gátu ekki feng- ið betri langömmu sem gerði allt fyrir þær, litli kall mun eiga allra stærsta engilinn á himninum sem mun alltaf passa hann, verða ófá- ar sögurnar sem hann fær af þér, elsku amma mín. Ég kveð þig með mikilli sorg og þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Ég veit þú munt passa upp á okkur og allt þitt fólk, enda varstu með stærsta hjarta sem til er. Ég elska þig alltaf elsku amma mín. Elsa María Kristínardóttir. Elsku amma Elsa, nú er komið að kveðjustund hjá okkur. Hugs- um við til allra þeirra frábæru minninga sem við eigum um þig, til dæmis eru allar heimsóknirn- ar í Hólabergið ógleymanlegar eða þegar við mættum alltaf til þín í Blikahóla um áramót að fagna með þér. Með sorg í hjarta kveðjum við og vitum að þú vakir yfir okkur. Valdimar og Margrét Rún. Elsku yndislega fallega og hjartahlýja amma okkar. Takk fyrir að hafa alltaf verið til staðar. Takk fyrir að hafa ver- ið svona yndisleg, skemmtileg og góð amma. Það er svo aðdáun- arvert hvað þú varst mikill dýra- og mannvinur og mættu allir taka sér þig til fyrirmyndar. Þú varst svo hæfileikarík, glæsileg, hjálpsöm og dugleg. Þú hvattir okkur til að elta drauma okkar og auðvitað máttum við alls ekki vera svangar eða leiðar á leiðinni að þeim. Þú hefur alltaf stutt okkur í þessu lífi. Það skipti ekki máli hvað það var, hversu galið, hversu erfitt, alltaf fékk maður stuðning frá þér. Það eru fáir sem hafa látið manni líða jafn vel og þú gerðir. Þvílíkur lífsins peppari sem þú varst. Þín verður sárt saknað, elsku amma Elsa okkar. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. (Halldór Jónsson frá Gili) Þú varst, ert og verður alltaf svo elskuð. Með sól í hjarta, Heiðdís og Andrea Elsa. Þegar ég sest niður og skrifa minningarorð um hana Elsu vin- konu mína er mér efst í huga þakklæti fyrir allar samveru- stundirnar í gegnum árin. Kynni okkar hafa varað í áratugi, við unnum saman og bjuggum í sömu blokk í Árbæ. Samgangur var mikill meðal okkar frum- byggjanna og börnin okkar léku sér saman. Elsa var heimsins mesti dýravinur og elskaði öll dýr. Coco var þar efst á blaði og alltaf með í för. Seinni árin fór- um við reglulega í bíltúra, fórum á kaffihús og spjölluðum og aldr- ei vantaði umræðuefnin. Það er skrítið að eiga ekki eftir að njóta slíkra samverustunda framar en gott að geta yljað sér við góðar minningar og svo sannarlega var þessi langa vinátta dýrmæt okk- ur báðum. Ég votta börnum hennar og fjölskyldu mína dýpstu samúð og óska vinkonu minni góðrar ferðar í sumarland- ið. Þín vinkona, Sigríður Sigurborg Guðmundsdóttir (Sigga). Þegar mjög göm- ul manneskja deyr, þá deyr með henni tímaskeið, sem lifði áfram í henni, þótt það væri í raun löngu liðið (óþekkt. höf.). Segja má að þessi orð eigi ágætlega við um tengdaföður minn, Guðmund Kristin Gunnars- son, sem ólst upp á heiðarbýlinu Gestsstöðum í Sanddal í Borgar- firði, elstur fjögurra systkina. Guðmundur hafði fæðst í hið alda- gamla íslenska bændasamfélag en hugur hans stefndi ekki í það að gerast afdalabóndi. Þannig var að orði komist um afa Guðmundar í líkræðu nokkrum árum fyrir fæð- ingu hans. Guðmundur ætlaði að mennta sig. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og naut aðstoðar ætt- ingja sem gátu hýst unga mann- inn úr afdölum Borgarfjarðar. Guðmund langaði líka í háskóla- nám, en námslán voru ekki komin til sögu. Það var því ekkert annað í stöðunni en að sækja um vinnu til að hafa í sig og á. Hann gerðist kennari við Héraðsskólann á Laugum í Reykjadal. Þar kynnt- ist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Þórhildi A. Jónasdóttur frá Helluvaði Mývatnssveit. Þeim varð tveggja dætra auðið, þær eru Kristín Hólmfríður og Elín Gunn- Guðmundur Krist- inn Gunnarsson ✝ Guðmundur Kristinn Gunn- arsson fæddist 30. ágúst 1930. Hann lést 9. júlí 2022. Út- för Guðmundar fór fram 20. júlí 2022. hildur, sem síðar varð konan mín. Guðmundur hafði gaman af því að ferðast og dreif því fjölskylduna í ótal ferðalög. Oft voru þetta líka ferðir í stærri hópum, hvort sem það var með fjölskyldum systk- ina sinna eða fjöl- skyldu konunnar. Mér skilst að varla sé til sá vegs- potti á landinu sem þau hafa ekki farið eftir, nema ef til vill torfær- ustu leiðir á hálendinu. Þessar ferðir voru á þeim tímum þar sem ekki voru til nútíma þægindatól eins og tjaldvagnar eða fellihýsi. Gist var í tjöldum við alls konar veður og frekar einfalda mat- reiðslu. En það dró ekki úr ánægju né áhuga á slíkum ferðum nema síður væri. Guðmundur var bókmaður mikill, víðlesinn og fróður um sögu þjóðarinnar og alþjóðamál, eins og ég komst að eftir að hafa kynnst honum. Við áttum margar skemmtilegar umræðustundir, enda kom það mér ekki á óvart að hann hafi gjarnan verið valinn í lið til að taka þátt í ýmsum spurn- ingakeppnum þar sem lið hans stóð oftar en ekki uppi sem sig- urvegari. Þrátt fyrir mikinn fjölda ferða um land allt með ættingjum og vinum og sem leiðsögumaður hafði Guðmundur ekki gengið á Súlur sem tróna yfir Akureyri, heimili Guðmundar og fjölskyldu hans í hartnær fimmtíu ár. Það var því ein síðasta gönguferð hans þegar ég dreif hann með mér upp á fjallið. 77 ára gamall komst hann næstum því alla leið og geri aðrir betur. Síðustu ár í lífi Guðmundar voru róleg en hann var ávallt það ljúfmenni sem ég þekkti frá því ég kynntist honum fyrst. Eitt af því síðasta sem ég sá hann taka eftir var gömul mynd í tímariti með fólki sem hélt á hrífum fyrir fram- an heysátu, eitthvað sem hann hafði örugglega oft séð í æsku. Þessi sjón lifði greinilega áfram í Guðmundi þótt tímaskeið slíks heyskapar væri löngu liðið, eins og orð hins ókunnuga höfundar vísa til í upphafi þessara orða. Hvíl í friði, Guðmundur. Lúðvík Eckardt Gústafsson. Hjá afa á Akureyri var enginn asi. Hjá honum kynntumst við Fóu og Fóu feykirófu og fleiri þjóðsögum. Í vösum hans voru rauður tób- aksklútur og vasahnífur sem var notaður til að tálga af litunum sem amma lánaði okkur. Það var skrít- ið. Af hverju notaði afi ekki ydd- ara? Dagurinn hans byrjaði með sundferð og endaði með dagbók- arskrifum og lestri. Og hann var alltaf með bækur á ferðinni og nýj- um bókum þurfti að fletta á ákveð- inn hátt áður en þær voru lesnar. Í rauðri Lödu Sport var farið í ferðir um landið. Við krakkarnir vildum helst vera í afabíl því þar átti hann alltaf mola handa okkur. Með afa borðuðum við eftirmat, ávaxtagraut með rjóma eða niður- soðna ávexti. Jarðarberjagrautur- inn var bestur. Og myndavélin var aldrei langt undan. Skemmtilegast var þegar afi setti upp slidesmyndasýningu í stofunni. Hann sagði okkur frá landinu og fjöllunum á myndunum en flottast var að sjá sjálfan sig á stóra hvíta tjaldinu. Afi vissi svarið við flestu og ef hann vissi það ekki fann hann bók þar sem hann gat flett svarinu upp. Og við fylgdumst spennt með þátt- töku hans í hinum ýmsu spurn- ingakeppnum því oftar en ekki var hann í sigurliðinu. Elsku afi, takk fyrir allar góðu stundirnar sem svo gott er að minnast. Við sjáumst aftur síðar. Arnhildur Eyja, Borghildur Ína og Gunnar Óli. Nú ríkir kyrrð í djúpum dal þótt duni foss í gljúfrasal. Í hreiðrum fuglar hvíla rótt, þeir hafa boðið góða nótt. (Magnús Gíslason) Um 1970 fór neðra Breiðholt að byggjast upp, þá fluttu í hverfið ungar fjölskyldur með lítil börn. Við vorum margar bíllausar, heimavinnandi hús- mæður og kynntumst því fljót- lega og fórum að umgangast reglulega. Tíu konur tengdust sérstökum vináttuböndum á þessum árum og höfum við haldið hópinn síðan. Við köllum okkur „Gufusystur“ og höfum í gegnum þessi 45 ár, brallað ýmislegt saman og hist reglu- lega. Á haustin er ávallt farið í sumarbústaðaferð, einnig reglulega farnar ferðir til út- landa og ekki má gleyma jóla- brönsinum ómissandi og alltaf skemmtum við okkur vel. Helga naut sín sérstaklega vel í þessum ferðum. Hún hafði ein- staklega fallegt bros og góða nærveru og var sannkallaður gleðigjafi. Hugur okkar er hjá börnum Helgu og fjölskyldu sem hafa sýnt henni svo mikla umhyggju og ást í erfiðum veikindum. Megi Helga vinkona okkar vera Guði falin. Gufusystur: Arnbjörg (Adda), Arnbjörg (Arna), Bryndís, Erla, Ingibjörg (Inga), Inga-Lill, Guðjóna (Jóna), Jóna Guðmunda (Munda) og Þórhildur. Okkar kæra Helga, með fal- lega brosið sitt, hefur kvatt. Minningarnar streyma og margs er að minnast, en kynni okkar hófust í Brúarlandsskóla í fallegu sveitinni Mosfellssveit árið 1960. Við ólumst flestar upp á bæjum þar sem búskapur og garðyrkja var stunduð og er einstaklega dýrmætt að hafa Helga Aðalsteinsdóttir ✝ Helga Að- alsteinsdóttir fæddist 21. sept- ember 1950. Hún lést 11. júlí 2022. Útför Helgu fór fram 20. júlí 2022 fengið að kynnast því. Helga skóla- systir okkar og vinkona hafði ein- staklega góða nær- veru með sínu fal- lega brosi og persónutöfrum, hún heillaði alla í kringum sig. Helga átti heima á Korpúlfsstöðum sem voru stórbýli á þeim tíma og var það ævintýri líkast að koma í heimsókn til Helgu og finna hlýjar móttökur móður hennar. Fermingardagurinn er okk- ur bekkjarsystrunum eftir- minnilegur, þá mættum við í lagningu með okkar síða hár til dóttur kaupfélagsstjórans hennar Lovísu, og skunduðum svo í Lágafellskirkju þar sem Bjarni Sigurðsson á Mosfelli fermdi okkur. Vinátta okkar skólasystranna hefur verið fal- leg og höfum við átt margar góðar stundir saman og hist reglulega hin síðari ár og deilt því sem hefur verið að gerast í lífi hver annarrar. Ein af okk- ur, hún Þuríður, hefur búið í Skotlandi og voru mikill sam- gangur milli Helgu og hennar fjölskyldu og mikið ferðast. Þegar Þuríður kom til landsins nýttum við skólasysturnar tækifærið til að hittast og alltaf var það jafn gaman, alveg eins og við hefðum hist í gær. Einn- ig ferðuðust þær Helga og Ásta mikið saman hin síðari ár ásamt Foldu, systur Helgu. Kæra vinkona, takk fyrir áratuga vináttu sem aldrei bar skugga á. Vertu allra ljósa ljós lýstu í glöðu og stríðu. Vertu allra rósa rós reifaðu allt með blíðu (GG) Þetta litla ljóð skrifaði Helga í minningabók einnar okkar í barnaskóla. Kæra fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Minningin lifir í hjörtum okkar. Ásta Jónsdóttir, Hjördís Leósdóttir, Ingibjörg Leósdóttir, Katrín Ólafsdóttir, Sigríður Erlendsdóttir og Þuríður Guðjónsdóttir. Okkar ástkæra og hjartahlýja dóttir og systir, SÓLRÚN LÁRA SVERRISDÓTTIR, Kirkjubæjarklaustri II, lést af slysförum föstudaginn 8. júlí. Hún verður jarðsungin frá Prestsbakkakirkju á Síðu laugardaginn 23. júlí klukkan 13. Fanney Ólöf Lárusdóttir Sverrir Gíslason Sigurður Gísli Sverrisson Ásgeir Örn Sverrisson Okkar ástkæra móðir, amma og langamma, VALGERÐUR KARLSDÓTTIR frá Fáskrúðsfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ mánudaginn 11. júlí. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Agnes Ásta Grétarsdóttir Vala Margrét Grétarsdóttir Ólafur Örn, Ingi Sigurður, Ruth, Sigurbjörn, Sonja Rut, Magnús Grétar, Heiðar Steinn og barnabarnabörn Minningar og andlát Á minningar- og andlátsvef mbl.is getur þú lesið minningargreinar, fengið upplýsingar úr þjónustuskrá auk þess að fá greiðari aðgang að þeirri þjónustu sem Morgunblaðið hefur veitt í áratugi þegar andlát ber að höndum. Andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar eru aðgengilegar öllum. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.