Morgunblaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022
VIKUR
Á LISTA
3
1
2
1
4
2
3
4
1
4
ÞÚ SÉRÐMIG EKKI
Höfundur: Eva BjörgÆgisdóttir
Lesarar: Ýmsar leikraddir
EITRIÐ
Höfundur: IngerWolf
Lesari: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
MAÐURUPPI Á ÞAKI
Höfundar: Maj Sjöwall, PerWahlöö
Lesari: Kristján Franklín Magnús
ANDNAUÐ
Höfundur: Jón Atli Jónasson
Lesarar: Ýmsar leikraddir
SKERIÐ
Höfundar: Áslaug Torfadóttir,
Ragnar Egilsson
Lesarar: Ýmsar leikraddir
SYSTIRIN Í STORMINUM
Höfundur: Lucinda Riley
Lesari: Margrét Örnólfsdóttir
SORGIR
Höfundur: IngerWolf
Lesari: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
ÞERNAN
Höfundur: Nita Prose
Lesari: Kristín Lea Sigríðardóttir
ÞESSU LÝKURHÉR
Höfundur: Colleen Hoover
Lesari: Þrúður Vilhjálmsdóttir
NÁGRANNAVARSLA
Höfundur: Unni Lindell
Lesari: Birgitta Birgisdóttir
1.
2.
3.
4.
7.
8.
6.
10.
9.
5.
›
›
›
›
›
-
-
TOPP 10
VINSÆLUSTU HLJÓÐBÆKURÁ ÍSLANDI
VIKA 28
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Umsvif í ferðaþjónustu hér eru
mikil; ýmis ný starfsemi hefur verið
sett á laggirnar, hótel byggð, veit-
ingastaðir opnaðir og fleira. Upp-
byggingin hér á síðustu árum hefur
verið hröð og samfélagið er gjör-
breytt frá því sem var,“ segir Einar
Freyr Elínarson, væntanlegur sveit-
arstjóri í Mýrdalshreppi.
„Verkefni síðustu ára hafa verið
leidd af einkaaðilum; fólki sem er út-
sjónarsamt og hefur þrautseigju.
Mál þarf oft að taka í samstarfi við
sveitarfélagið enda er þess að sjá
um skipulagsmál og ýmsa þjónustu í
nærumhverfinu. Nú er þó svo komið
að ýmis aðkallandi verkefni sem rík-
inu ber að sinna
eru komin í blind-
götu. Þar er
hægagangur á
hlutunum, þótt
vilji til góðra
verka sé til stað-
ar. Þá kyrrstöðu
er mikilvægt að
rjúfa.“
Mýrdalur
spannar svæðið
frá Sólheima-
sandi og langt austur fyrir Vík.
Þetta er um margt dæmigert ís-
lenskt dreifbýli: samfélag sem þó er
í örri þróun. Í sveitarstjórnarkosn-
ingum í Mýrdal í maí síðastliðnum
fékk framboðið Framsókn og óháðir
þrjá menn kjörna í sveitarstjórn og
þar með meirihluta. Listi Allra fékk
tvo fulltrúa. Einar var þriðji maður
á lista kjörins meirihluta og tekur
við sveitarstjórastarfinu 1. ágúst nk.
Nýir íbúar og breyttar kröfur
Í kosningunum í Mýrdal var kjör-
sókn um 75% og í aðdraganda þeirra
lögðu framboðin sig eftir því að ná
til og fá á kjörstað nýja íbúa í sveit-
arfélaginu, það er fólk af erlendum
uppruna sem hefur sest að á svæð-
inu og starfar gjarnan við ferðaþjón-
ustuna. Raunar hefur fólksfjölgun í
Mýrdal á síðustu árum hefur verið
ævintýraleg. Íbúar voru 459 fyrir
áratug en eru nú 850. Um helmingur
þess er fólk af erlendum uppruna.
„Þessir nýju íbúar eru gjarnan á
aldrinum 25-40 ára. Margir í þeim
hópi eru frá Póllandi en svo hefur
fjölgað ört frá öðrum löndum líka.
Eðlilega gerir þetta fólk aðrar kröf-
ur um þjónustu af hálfu sveitarfé-
lagsins en til dæmis Íslendingar.
Góð líkamsræktaraðstaða var eitt
þessara mála og því kalli þurfum við
að svara. Til þess að efla enn frekar
þátttöku erlendra íbúa komum við á
fót enskumælandi ráði hjá sveitarfé-
laginu. Ég hygg að þetta sé í fyrsta
sinn sem slíkt er gert hér á landi,“
segir Einar Freyr.
Allt að ein milljón ferðamanna
kemur á ári hverju í Reynisfjöru í
Mýrdal og aðrir staðir í kring eru
ekki síður fjölsóttir. Vissulega var
fátt um ferðamenn meðan á heims-
faraldri stóð, en nú að honum lokn-
um er allt aftur á fullum snúningi á
svæðinu. Slíkt skapar áskoranir og
óleyst mál á ýmsum sviðum.
Meinloka og rangir
mælikvarðar
„Sumir fulltrúar ríkisins sem við
herjum á varðandi mikilvæg hags-
munamál okkar eru fastir í meinloku
og sinna okkar erindum eftir röng-
um mælikvörðum. Hér er fráleitt að
miða þjónustustig eingöngu við
fjölda þeirra sem hér hafa skráð lög-
heimili. Á góðum degi koma kannski
4.000-5.000 manns í Vík; hundruð
fólksbíla og tugir rúta. Allt er
krökkt af fólki frá morgni til kvölds
og flestir gista á hótelum yfir nótt-
ina,“ segir Einar Freyr og heldur
áfram:
„Af því að mikil umferð ferðafólks
er sjaldan tekin með í reikninginn
þegar línur eru lagðar um opinbera
þjónustu, þá eru hér á svæðinu
aðeins einn læknir og einn hjúkr-
unarfræðingur. Það eru hjón sem
hér hafa búið lengi og gjarnan verið
á sólarhringsvakt. Mikilvægt er að
nú verði hugsað til framtíðar. Hér
þarf að fá til starfa 2-3 lækna og
nokkra hjúkrunarfræðinga, eins og
ég hef talað um við stjórnmálamenn.
Lögreglan á Suðurlandi ætlar að
bæta aðstöðu sína hér og styrkja
vaktina sem er gott. Fleira þarf þó
að fylgja með: vegirnir hér eru til
dæmis á mörkunum að bera þá
miklu umferð sem þar er.“
Skiptar skoðanir um jarðgöng
Mikið hefur verið byggt í Vík í
Mýrdal á undanförnum árum og
framundan er enn meiri uppbygg-
ing; svo sem fjölbýlishús með litlum
íbúðum. Mikil þörf er á slíku, enda
hafa margir sest að á svæðinu þar
sem næga vinnu er að hafa. Um
þessar mundir er svo við aðalgötuna
í Vík verið að reisa byggingu þar
sem rými verður fyrir verslanir og
þjónustu á jarðhæð en íbúðir á
þeirri efri.
„Helst stoppar framkvæmdir hér
að iðnaðarmenn vantar til starfa.
Þar er flöskuhálsinn,“ segir sveitar-
stjórinn væntanlegi, sem getur einn-
ig fyrirhugaðra vegaframkvæmda í
sveitarfélaginu. Í stað fjallvegarins
um Gatnabrún ofan Víkurkauptúns
er fyrsti valkostur Vegagerðar að
leggja veg um Dyrhólasvæðið að
sunnanverðu Reynisfjalli. Þar
kæmu svo 800 metra löng jarðgöng,
með munna að austanverðu rétt fyr-
ir vestan byggðina í Vík. Nú er verið
að meta hugsanleg umhverfisáhrif
þeirrar framkvæmdar og ættu nið-
urstöður úr þeirri vinnu að liggja
fyrir í haust. Fái framkvæmdin
grænt ljós, væntir Einar Freyr þess
að hægt verði að bjóða verkið út á
næsta ári.
„Sveitarstjórn er áfram um jarð-
gangagerð, sem eðlilega eru skiptar
skoðanir um. Slíkt fylgir öllum
svona verkefnum.“
Landsins gagn og nauðsynjar
Einar Freyr er nú að hefja sitt
annað verkefni á vettvangi sveitar-
stjórnarmála. Nú í vor lauk hann
námi í opinberri stjórnsýslu við Há-
skólann á Bifröst. Þá menntun segir
hann væntanlega munu koma sér
vel í starfi sveitarstjóra. Einnig telji
þar reynsla sín í félagsmálum, meðal
annars á vettvangi samtakanna
Ungir bændur, hvar hann var for-
maður 2014-2018. Hann býr með
sínu fólki á bænum Sólheimahjá-
leigu, hvar þau starfrækja meðal
annars ferðaþjónustu.
„Ég er úr fjölskyldu þar sem fólk
ræðir um landsins gagn og nauð-
synjar og lætur sig málin varða.
Segir sínar skoðanir og berst fyrir
sínum málstað af sannfæringu. Rek-
ur sín erindi gagnvart kerfinu og
stjórnmálamönnum og gefst ekki
upp. Þátttaka í félagsmálum kemur
því í mínu tilviki svolítið af sjálfu sér
og verkefnin fyrir Mýrdalshrepp á
næstu árum eru tilhlökkunarefni.
Sveitarfélagið stendur vel í dag.
Með fleira fólki höfum við svo svig-
rúm til að bæta þjónustuna og koma
betur til móts við íbúa, sem auðvitað
er kjarni málsins.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vík Nauðsynlegt þykir að efla ýmsa opinbera þjónustu á svæðinu og þar kallar sveitarstjórinn eftir aðkomu ríkisins.
Uppbygging hröð og
samfélagið gjörbreytt
- Fólk af erlendum uppruna nú um helmingur Mýrdælinga
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Reynisfjara Á ári hverju kemur um ein milljón ferðamanna á þennan stað,
sem áður var lítt þekktur. Ráðstafanir í öryggisátt á svæðinu eru í deiglu.
Einar Freyr
Elínarson
Malarhjólreiðakeppnin Rift verður
haldin um helgina. Hátt í 1.100
manns eru skráðir í keppnina sem
hefst á Hvolsvelli. Hægt verður að
velja úr þremur vegalengdum til
að keppa í, 200 km, 100 km og 45
km.
Margrét Jóna Ísólfsdóttir, fjár-
mála- og skrifstofustjóri sveitarfé-
lagsins Rangárþings eystra, segir í
samtali við Morgunblaðið að alla
jafna sé erfitt að fá gistingu á
svæðinu á þessum árstíma, enda
háönn í ferðaþjónustu. Rangárþing
eystra sé mjög vinsæll áninga-
staður fyrir ferðamenn, ekki síst
vegna þess að fjöldinn allur af nátt-
úruperlum sé í sveitarfélaginu. Nú
lítur úr fyrir að öll gisting í sveitar-
félaginu sé uppbókuð um helgina.
Því hafa keppendur Rift eflaust
þurft að keppast um að bóka gist-
ingu, til viðbótar við hjólreiðarnar.
Skipuleggjendur keppninnar telja
að nálægt því tveir aðstandendur
að meðaltali komi með hverjum
keppanda sem kemur erlendis frá.
Aðeins 100 Íslendingar hafa skráð
sig til leiks.
„Það er mikil lyftistöng fyrir
samfélagið að svo umfangsmikill
og stór íþróttaviðburður sé haldinn
í Rangárþingi eystra. Sveitarfélag-
ið hefur lagt sitt af mörkum við
undirbúning keppninnar, þannig
að hún geti farið fram á farsælan
hátt,“ segir Margrét Jóna.
Hún segir að félagsmiðstöð
sveitarfélagsins verði nýtt sem
húsnæði fyrir mótsstjórn keppn-
innar og tjaldstæðið í bænum verð-
ur stækkað töluvert. anton@mbl.is
Ljósmynd/Arnold
Hjólreiðar Hjólaframleiðandinn Lauf stendur að baki keppninni Rift.
Malarhjólreiðar
frá Hvolsvelli
- 1.100 manns keppa í Rift um helgina