Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Síða 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Síða 4
Á fyrsta þingi Farmanna- og fiski- mannasambands Íslands (FFSÍ), í júní 1937, hugleiddu menn hvort sambandið ætti ef til vill að koma sér upp málgagni. - Jú, endilega svaraði þingheimur allur en þjóðin var fátæk, kreppan mikla svarf fast að og félagið í burðarliðnum. Niðurstaðan varð því að varlega skyldi stigið til jarðar. Sett var nefnd í málið er átti að „athuga mögu- leika á útgáfu málgagns fyrir sjómenn“, eins og sagði í ályktun frá þessu fyrsta þingi FFSÍ. Samvinna við Ægi? Nefndin, en í henni sátu Hallgrímur Jónsson vélstjóri, Guðmundur Helgi Oddsson stýrimaður og Ólafur Þórðarson skipstjóri, bar víurnar í Fiskifélag Íslands. Myndi Fiskifélagið, sem gaf út Ægi, ef til vill vilja samvinnu um útgáfu tímarits fyrir sjómenn? Fyrirspurnin varð upphafið að lang- vinnum og stundum hatrömmum deilum á milli félaganna en um þessar mundir stóð Ægir höllum fæti sem hefur ef til vill gert Fiskifélagsmenn viðkvæmari en ella. Hugmynd þremenninganna var að stækka Ægi um 24 síður – sem FFSÍ fengi til umráða – og sameina hann Sjó- manninum sem var þá nýlega byrjaður að koma út á vegum Stýrimannafélags Ís- lands. Síðan áttu til dæmis skipstjórnar- menn, vélstjórar og loftskeytamenn að fá tiltekinn blaðsíðufjölda, hver hópur, und- ir sín mál. Það kom reyndar líka til greina af hálfu FFSÍ að kaupa Ægi. FFSÍ á ekki að skipta sér af útgerð Erindið var tekið fyrir á Fiskiþingi 1938. Sitt sýndist hverjum. Meiri hluti fundar- manna vildi þó viðræður við FFSÍ um sameiginlega blaðaútgáfu. Stjórn Fiski- félagsins var því falið að kanna málið nánar og gera, „ef tiltækilegt þykir“, samning við FFSÍ um útgáfuna sem skyldi gilda til næsta Fiskiþings. Kristján Bergsson, forseti Fiskifélags- ins, var hins vegar ekki á þeim buxunum að fara eftir þessum fyrirmælum Fiski- þings. Hann, og raunar miklu fleiri Fiski- félagsmenn, kannski flestir, voru á varð- bergi. Þeim fannst eins og grundvöllurinn væri smám saman að skriðna undan fé- laginu. Stofnun Farmanna- og fiski- mannasambands Íslands sumarið 1937 varð síður en svo til að róa þá. „Þó er eitt félag, sem ég tel eiga sára- lítið erindi á vettvang fiskveiðimálanna. Það er svonefnt Fiskimanna- og far- mannasamband“, skrifaði erindrekinn í Vestfirðingafjórðungi, Kristján Jónsson frá Garðstöðum, í Ægi sumarið 1939, en Kristján var málsmetandi innan samtak- anna og orð hans ekki léttvæg. Það var pirringur í mönnum. Ómögu- legt er að sjá hvort einhverjar formlegar samningaviðræður áttu sér stað um sam- eiginlegt blað sjómanna. Að lokum tók þremenningunum í blaðnefndinni – Henry Hálfdánsson loftskeytamaður var nú kominn í stað Ólafs skipstjóra – að leiðast þófið. Nú var að hrökkva eða stökkva. Það stappaði óneitanlega stálinu í þremenningana að það var sama hvar þeir báru niður, alls staðar var vel tekið í hugmyndina um útgáfu sjómannablaðs. Sambandsfélögin lofuðu að beita sér fyrir söfnun áskrifenda, sjómenn söfnuðu fé til styrktar útgáfunni, Vélstjórafélag Íslands ákvað að leggja niður Vélstjóraritið og hið sama gerði Félag íslenskra loftskeyta- manna sem hafði gefið út Firðritann. Nýtt blað af stokkum Ákvörðun hafði verið tekin. Og raunar ritstjórinn ráðinn. Þeir höfðu hist á förn- um vegi Bolvíkingarnir, Guðmundur Helgi skipstjóri og hinn hálfþrítugi MA- -stúdent og lögfræðinemi, Bárður J. Jakobsson, og Guðmundur án nokkurra málalenginga spurt Bárð hvort hann vildi taka að sér ritstjórn sjómannablaðs sem væri í burðarliðnum. – Þú færð laun, lofaði Guðmundur og Bárður sem var blankur námsmaður um þessar mundir var ekki seinn á sér að játa. „Satt að segja var ég ekki fær til þessa starfs, því ég vissi næsta fátt um sjómenn, samtök þeirra, viðfangsefni og áhuga- mál“, játaði Bárður síðar. Liðu svo nokkrir mánuðir og var Bárð- ur tekinn að örvænta um að nokkuð yrði af blaðaútgáfunni. Blaðnefndin sat þó ekki auðum höndum. Huga þurfti að fjár- hagslegum grundvelli útgáfunnar, finna blaðinu nafn, semja við prentsmiðju og síðast en ekki síst varð koma á fullri ein- ingu með skipstjórnarmönum, vélstjórum og loftskeytamönnum um hið fyrirhug- aða sjómannablað - sem var ekki fyrir- hafnarlaust. Svo kvisaðist að til stæði blaðaútgáfa, beinlínis til höfuðs og helst til að gera að- Sjómannablaðið Víkingur 80 ára – stofnun tímarits Víkingurinn hét frá og með 2. tölublaði 1939, Sjó- mannablaðið Víkingur og hefur heitið svo síðan. VÍKINGUR 80 ÁRA Farmanna- og fiskimannasamband Íslands var stofnað sumarið 1937. Styrr stóð um stofnun félagsins. Töldu margir að FFSÍ ætti engan tilverurétt. Fyrsti foreti FFSÍ var skipstjórinn Ásgeir Sigurðsson en Ásgeir var ákafur talsmaður þess að félagið gæfi út sitt eigið sjó- mannablað. 4 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.