Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Side 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Side 8
* 1962 (8. tbl.) – 1973 (7. – 8. tbl.), Örn Steinsson, vélstjóri og formaður Vélstjóra- félags Íslands. 1973 (9. – 10. tbl.) – 1978 (5. tbl.), Jónas Guðmundsson, stýrimaður, rithöf- undur og listmálari. * 1978 (6. – 7. tbl.) – 1982 (2. – 3. tbl.), Guðbrandur Gíslason (ritstjóri að 6. – 7. tbl. 1978 með Guðmundi Jenssyni en einn ritstjóri frá og með 8. – 9. tbl. 1978). 1982 (4. tbl.) – 1982 (5. tbl.), Elísabet Þorgeirsdóttir. 1982 (6. – 7. tbl.) – 1983 (5. – 6. tbl.), Þórleifur Ólafsson. 1983 (7. tbl.) – 1984 (3. tbl.), Elísabet Þorgeirsdóttir * Elísabet var blaðamaður Víkings frá og með 8. tbl. 1981 og síðan aftur eftir að Þórleifur tók við ritstjórn Víkings og var þá fram í janúar 1983. Þegar Víkingur fagnaði hálfrar aldar afmæli í júní 1989 rifjaði Elísabet upp ritstjórnartíð sína og sagði meðal annars: „Því er oft haldið fram að sjómenn séu ruddar sem þurfi krassandi afþreyingu. Vissulega er sjómennskan erfitt og kalsa- samt starf, en þarf að ýta undir það með eintómum kulda? Þegar ég réð efni Sjómannablaðsins neitaði ég að ýta undir þá klisju að sjómenn elski krassandi klámbrandara og fékk ég nokkrar kvart- anir þess efnis að „Frívaktin“ hefði minnkað ansi mikið og væri í daufara lagi. Ég er enn sömu skoðunar og leiðist þess vegna að sjá hve grófir brandarar hafa skipað veglegan sess í blaðinu undanfarið. Ég held að völ sé á slíku efni alltof víða og þurfi ekki á það að bæta.“ Þessu mótmælti Þórleifur Ólafsson: Einn er sá þáttur, sem fylgt hefur Víkingnum frá upphafi, en það er „Frívaktin“, sem mér finnst ómissandi í blaðinu. Sumir hafa sagt, að „þær bláu“, hafi verið helst til dökkar undanfarin ár, – en svo tel ég ekki vera. Þessi þáttur blaðsins er góð upplyft- ing fyrir sjómenn.“ * 1984 (4. tbl.) – 1992 (11. – 12. tbl.), Sigurjón Valdimarsson. 1993 (1. tbl.) – júní 2000 (2. tbl.), Sigurjón Magnús Egilsson. * Frá og með ársbyrjun 1993 var tölublöðum Víkings fækkað í fjögur á ári en höfðu verið átta árið á undan. Ávallt var þó stefnt að tólf tölublöðum árlega en það markmið náðist aldrei. Engu að síður voru á hverju ári skráð tólf tölublöð Víkings eða þangað til í ársbyrjun 1993. * 2000 (3. tbl.) – 2005 (1. tbl.), Sæmundur Guðvinsson blaða- maður. 2005 (2. tbl.) og til þessa dags, Jón Hjaltason sagnfræðingur. Tvö tölublöð tekin saman í eitt. Sæmundur Guðvinsson. Reykjavík Fundur verður haldinn að Hvammi, jarðhæð, Grand Hótels Reykjavík, mánudaginn 30.desember og hefst kl. 14.00. Léttar veitingar. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Skipstjórnarmenn í Félagi skipstjórnarmanna Akureyri Fundur verður haldinn á veitingastaðnum Strikinu, norðursal, á 5.hæð að Skipagötu 14, Akureyri, föstudaginn 27. desember kl. 14.00. Léttar veitingar. Félagar fjölmennið. Stjórnin. 8 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.