Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Qupperneq 8
*
1962 (8. tbl.) – 1973 (7. – 8. tbl.), Örn
Steinsson, vélstjóri og formaður Vélstjóra-
félags Íslands.
1973 (9. – 10. tbl.) – 1978 (5. tbl.),
Jónas Guðmundsson, stýrimaður, rithöf-
undur og listmálari.
*
1978 (6. – 7. tbl.) – 1982 (2. – 3. tbl.),
Guðbrandur Gíslason (ritstjóri að 6. – 7.
tbl. 1978 með Guðmundi Jenssyni en einn
ritstjóri frá og með 8. – 9. tbl. 1978).
1982 (4. tbl.) – 1982 (5. tbl.), Elísabet
Þorgeirsdóttir.
1982 (6. – 7. tbl.) – 1983 (5. – 6. tbl.),
Þórleifur Ólafsson.
1983 (7. tbl.) – 1984 (3. tbl.), Elísabet
Þorgeirsdóttir
*
Elísabet var blaðamaður Víkings frá og
með 8. tbl. 1981 og síðan aftur eftir að
Þórleifur tók við ritstjórn Víkings og var þá fram í janúar 1983.
Þegar Víkingur fagnaði hálfrar aldar afmæli í júní 1989 rifjaði
Elísabet upp ritstjórnartíð sína og sagði meðal annars:
„Því er oft haldið fram að sjómenn séu ruddar sem þurfi
krassandi afþreyingu. Vissulega er sjómennskan erfitt og kalsa-
samt starf, en þarf að ýta undir það með eintómum kulda? Þegar
ég réð efni Sjómannablaðsins neitaði ég að ýta undir þá klisju að
sjómenn elski krassandi klámbrandara og fékk ég nokkrar kvart-
anir þess efnis að „Frívaktin“ hefði minnkað ansi mikið og væri
í daufara lagi. Ég er enn sömu skoðunar og leiðist þess vegna að
sjá hve grófir brandarar hafa skipað veglegan sess í blaðinu
undanfarið. Ég held að völ sé á slíku efni alltof víða og þurfi
ekki á það að bæta.“
Þessu mótmælti Þórleifur Ólafsson:
Einn er sá þáttur, sem fylgt hefur Víkingnum frá upphafi, en
það er „Frívaktin“, sem mér finnst ómissandi í blaðinu. Sumir
hafa sagt, að „þær bláu“, hafi verið helst til dökkar undanfarin
ár, – en svo tel ég ekki vera. Þessi þáttur blaðsins er góð upplyft-
ing fyrir sjómenn.“
*
1984 (4. tbl.) – 1992 (11. – 12. tbl.), Sigurjón Valdimarsson.
1993 (1. tbl.) – júní 2000 (2. tbl.), Sigurjón Magnús Egilsson.
*
Frá og með ársbyrjun 1993 var tölublöðum Víkings fækkað í
fjögur á ári en höfðu verið átta árið á undan. Ávallt var þó stefnt
að tólf tölublöðum árlega en það markmið náðist aldrei. Engu
að síður voru á hverju ári skráð tólf tölublöð Víkings eða þangað
til í ársbyrjun 1993.
*
2000 (3. tbl.) – 2005 (1. tbl.), Sæmundur Guðvinsson blaða-
maður.
2005 (2. tbl.) og til þessa dags, Jón Hjaltason sagnfræðingur.
Tvö tölublöð tekin saman í eitt. Sæmundur Guðvinsson.
Reykjavík
Fundur verður haldinn
að Hvammi, jarðhæð,
Grand Hótels Reykjavík, mánudaginn
30.desember og hefst kl. 14.00.
Léttar veitingar.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Skipstjórnarmenn
í Félagi skipstjórnarmanna
Akureyri
Fundur verður haldinn á veitingastaðnum
Strikinu, norðursal, á 5.hæð að Skipagötu 14,
Akureyri, föstudaginn 27. desember
kl. 14.00.
Léttar veitingar.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
8 – Sjómannablaðið Víkingur