Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Síða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Síða 10
10 – Sjómannablaðið Víkingur Nafn og hvenær fæddur og hvar? Víðir Jónsson, 1956, í Bol- ungarvík. Hversu gamall  varstu þegar þú byrj- aðir á sjó og hve gamall varstu þegar þú fórst í Stýrimannaskólann? 16. júní 1971 var ég lögskráður fyrst á skip, þá 15 ára til að beita á útilegu norð- ur á grálúðumiðum. Ég var 18 ára þegar ég fór í Stýri- mannaskólann. Hvaða ár laukstu skipstjórnarprófi? 1976. Á hvaða skipum hefur þú verið og hvert þeirra er eftirminnilegast? Guðmundi Péturs, Hugrúnu, Sólrúnu, Hafrúnu, Gísla Árna, Orra, Mánabergi, Oddeyri, Heiðrúnu, Dagrúnu og Kleifa- berg. Kleifabergið er eftirminnilegast.   Eftirminnilegasti skipstjóri sem þú hefur siglt með? Einar Hálfdánsson skipstjóri á Sólrúnu og Heiðrúnu. Hver er skemmtilegasti maður sem þú hefur verið með á sjó? Þeir eru margir skemmtilegir, en þeir sem standa upp úr með skemmtilegheit eru æskuvinur minn Kristján Jón Guð- mundsson og sögumaðurinn snjalli Sig- urður Hólm Sigurðsson. Hver er besti sjómaður sem þú hefur haft í þinni áhöfn? Það er erfitt að dæma um það, ég hef verið með svo mörgum frábærum mönn- um til sjós. En ég segi bara áhöfnin á Kleifabergi.  Hver er uppáhalds fiskurinn þinn að; -a - borða? Ýsa. -b - veiða? Erfiðast að veiða ufsa, léttast að veiða þorsk. Þannig að það er þorskur.  Hvernig finnst þér best að matreiða fisk? Steikja hann. Hver er furðulegasti fiskurinn sem þú hefur veitt?  Ég veit það ekki.   Uppáhalds mið og af hverju? Þau eru öll góð ef það er fiskur.  Versta veðrið sem þú hefur lent í á sjó?  Febrúar veðrið 1980 þegar rækju- bátarnir fórust í Ísafjarðardjúpi og Arnar- firði. Ég hélt að það gæti ekki orðið svona hvasst og langar ekki að upplifa það aftur. Hefurðu upplifað ótvíræða lífshættu á sjó? Nei. Eftirminnileg atvik, eitt eða fleiri? Á löngum tíma gerist ýmislegt og ég hef upplifað bæði slys og dauðsfall um borð hjá mér. Þessi atvik koma oft upp í hugann. Hver er mesta breyting siglingatækja sem þú hefur upplifað? AIS tækið. Það er bylting. Hvernig finnst þér um kvótakerfið og hvernig það hefur virkað? Kvótakerfið sem slíkt er ágætt sem veiðistjórnunartæki. En svarti blettur- inn á því er hvað margir hafa fengið mikið af peningum fyrir lítið umfram aðra. Hvernig finnst þér fiskifræðin hafa staðið sig við að meta veiðiþol stofna? Ég geri mér ekki grein fyrir því. Mér finnst þeir oft reka sig á vegg. Kallinn í brúnni Víðir Jónsson Kallinn í brúnni, Víðir Jónsson. Ljósm: Jóhann Ólafur Halldórsson

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.