Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Qupperneq 10
10 – Sjómannablaðið Víkingur
Nafn og hvenær fæddur og hvar?
Víðir Jónsson, 1956, í Bol-
ungarvík.
Hversu gamall varstu þegar þú byrj-
aðir á sjó og hve gamall varstu þegar þú
fórst í Stýrimannaskólann?
16. júní 1971 var ég lögskráður fyrst á
skip, þá 15 ára til að beita á útilegu norð-
ur á grálúðumiðum.
Ég var 18 ára þegar ég fór í Stýri-
mannaskólann.
Hvaða ár laukstu skipstjórnarprófi?
1976.
Á hvaða skipum hefur þú verið og
hvert þeirra er eftirminnilegast?
Guðmundi Péturs, Hugrúnu, Sólrúnu,
Hafrúnu, Gísla Árna, Orra, Mánabergi,
Oddeyri, Heiðrúnu, Dagrúnu og Kleifa-
berg.
Kleifabergið er eftirminnilegast.
Eftirminnilegasti skipstjóri sem þú
hefur siglt með?
Einar Hálfdánsson skipstjóri á Sólrúnu
og Heiðrúnu.
Hver er skemmtilegasti maður sem þú
hefur verið með á sjó?
Þeir eru margir skemmtilegir, en þeir
sem standa upp úr með skemmtilegheit
eru æskuvinur minn Kristján Jón Guð-
mundsson og sögumaðurinn snjalli Sig-
urður Hólm Sigurðsson.
Hver er besti sjómaður sem þú hefur
haft í þinni áhöfn?
Það er erfitt að dæma um það, ég hef
verið með svo mörgum frábærum mönn-
um til sjós. En ég segi bara áhöfnin á
Kleifabergi.
Hver er uppáhalds fiskurinn þinn að;
-a - borða? Ýsa.
-b - veiða?
Erfiðast að veiða ufsa, léttast að veiða
þorsk. Þannig að það er þorskur.
Hvernig finnst þér best að matreiða
fisk?
Steikja hann.
Hver er furðulegasti fiskurinn sem þú
hefur veitt?
Ég veit það ekki.
Uppáhalds mið og af hverju?
Þau eru öll góð ef það er fiskur.
Versta veðrið sem þú hefur lent í
á sjó?
Febrúar veðrið 1980 þegar rækju-
bátarnir fórust í Ísafjarðardjúpi og Arnar-
firði.
Ég hélt að það gæti ekki orðið svona
hvasst og langar ekki að upplifa það aftur.
Hefurðu upplifað ótvíræða lífshættu á
sjó?
Nei.
Eftirminnileg atvik, eitt eða fleiri?
Á löngum tíma gerist ýmislegt og ég
hef upplifað bæði slys og dauðsfall um
borð hjá mér. Þessi atvik koma oft upp í
hugann.
Hver er mesta breyting siglingatækja
sem þú hefur upplifað?
AIS tækið. Það er bylting.
Hvernig finnst þér um kvótakerfið og
hvernig það hefur virkað?
Kvótakerfið sem slíkt er ágætt sem
veiðistjórnunartæki. En svarti blettur-
inn á því er hvað margir hafa fengið
mikið af peningum fyrir lítið umfram
aðra.
Hvernig finnst þér fiskifræðin hafa
staðið sig við að meta veiðiþol stofna?
Ég geri mér ekki grein fyrir því. Mér
finnst þeir oft reka sig á vegg.
Kallinn í brúnni
Víðir Jónsson
Kallinn í brúnni, Víðir Jónsson. Ljósm: Jóhann Ólafur Halldórsson