Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Síða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Síða 22
Talið ónýtt og tekið af skrá 16. febrú- ar 1955. Selt í brotajárn til Danmerkur, rifið í Odense (Óðinsvé) sama ár. Þórólf- ur og systurskipið, Skallagrímur, voru mikil afla og happaskip og einnig af- burða góð sjóskip. – 54 – Fimmtugasti- og fjórði togarinn í eigu Ís- lendinga, Skallagrímur RE-145. skráður hér á landi 25. júni 1924, smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd í Selby á Englandi fyrir h/f Kveldúlf í Reykjavík árið 1920. Lengd 44,32 m., breidd 7,44 m., dýpt 3,51 m., brl. 403,01, knúinn 800 hö. gufuvél. Skipstjóri, Guðmundur Jónsson. Togarinn var alla tíð í eigu Kveldúlfs, mikið afla og happaskip. Skip og áhöfn bjargaði hinn 16. júní árið 1940 alls 347 skipbrotsmönnum af breska stórskipinu H.M.S. Andaniu, sem þýskur kafbátur hafði sökkt 85 sjómílum suður af Ing- ólfshöfða. Er þetta eitt mesta björgunara- frek sem íslenskt fiskiskip hefur komið að fyrr eða síðar. Seldur í brotajárn árið 1955. Þetta er annar togarinn sem ber þetta nafn, hinum fyrri voru gerð skil í 3. tbl. Víkingsins 2018. – 55 – Fimmtugasti- og fimmti togarinn í eigu Íslendinga, Snorri goði RE-141, var skráður hér á landi 16. ágúst 1924, smíð- aður hjá Kaldnes Mekanika Verksted í Tönsberg Noregi, árið 1921 fyrir Det Norske Damptrawlselskab A/S í Álasundi Noregi, nefndur Aalesund. Kveldúlfur h/f Reykjavík keypti skipið 23. nóvember 1925 og nefndi Snorra goða RE-141. Lengd 43,10 m., breidd 7,44 m., dýpt 3,17 m., brl. 372,73, knúinn 650 hö. gufuvél. Skipstjóri, Sigurður Jónsson. Fiskveiðahlutafélagið Viðey í Reykja- vík keypti skipið 21. júní 1944 og nefndi Viðey RE-13. Selt 7. október 1947, Búðanesi h/f Stykkishólmi og fékk þá nafnið Búðanes SH-1. Enn selt 1. apríl 1952, Vélum og skipum h/f Reykjavík. Seldur til niðurrifs og tekinn af skrá 12. maí 1952. Þetta er annar togarinn sem ber þetta nafn og skráningarstafi, hinum fyrri voru gerð skil í 3. tbl. Víkingsins 2018. – 56 – Fimmtugasti- og sjötti togarinn í eigu Ís- lendinga, Kári Sölmundarson RE-153, var skráður hér á landi 4. apríl 1924 smíðaður hjá Cook Welton & Gemmell Snorri goði RE-141. Botnvörpungur- inn Kári Sölmundarson RE 153 Nýr botnvörpungur kom hing- að í gærmorgun. Heitir sá Kári Sölmundarson og er eign hlutafélagsins „Kára“ í Reykja- vík. Framkvæmdastjóri þess er Þorsteinn Jónsson. Skipið er hið vandaðasta. Skipstjóri er Aðalsteinn Pálsson. Morgunblaðið, 11. ágúst 1920. Kári Sölmundarson í kolaflutningum til Grænlands Mr. Crumrine hefir leigt botn- vörpunginn Kára Sölmundar- son til þess að fara norður undir Angmagsalik á Græn- landi, þar sem Grænlandsfarið Gertrud Rask er enn í ísnum og er nú kolalaust. Fer Kári með 150 tonn kola. Horfur eru nú sagðar heldur betri á því, að Gertrud Rask komist inn til Angmagsalik. Morgunblaðið, 12. ágúst 1924. Skallagrímur RE-145. Kári Sölmundarson RE-153 í höfn á Patreksfirði. 22 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.