Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 22
Talið ónýtt og tekið af skrá 16. febrú-
ar 1955. Selt í brotajárn til Danmerkur,
rifið í Odense (Óðinsvé) sama ár. Þórólf-
ur og systurskipið, Skallagrímur, voru
mikil afla og happaskip og einnig af-
burða góð sjóskip.
– 54 –
Fimmtugasti- og fjórði togarinn í eigu Ís-
lendinga, Skallagrímur RE-145. skráður
hér á landi 25. júni 1924, smíðaður hjá
Cochrane & Sons Ltd í Selby á Englandi
fyrir h/f Kveldúlf í Reykjavík árið 1920.
Lengd 44,32 m., breidd 7,44 m., dýpt
3,51 m., brl. 403,01, knúinn 800 hö.
gufuvél. Skipstjóri, Guðmundur Jónsson.
Togarinn var alla tíð í eigu Kveldúlfs,
mikið afla og happaskip. Skip og áhöfn
bjargaði hinn 16. júní árið 1940 alls 347
skipbrotsmönnum af breska stórskipinu
H.M.S. Andaniu, sem þýskur kafbátur
hafði sökkt 85 sjómílum suður af Ing-
ólfshöfða. Er þetta eitt mesta björgunara-
frek sem íslenskt fiskiskip hefur komið
að fyrr eða síðar. Seldur í brotajárn árið
1955.
Þetta er annar togarinn sem ber þetta
nafn, hinum fyrri voru gerð skil í 3. tbl.
Víkingsins 2018.
– 55 –
Fimmtugasti- og fimmti togarinn í eigu
Íslendinga, Snorri goði RE-141, var
skráður hér á landi 16. ágúst 1924, smíð-
aður hjá Kaldnes Mekanika Verksted í
Tönsberg Noregi, árið 1921 fyrir Det
Norske Damptrawlselskab A/S í Álasundi
Noregi, nefndur Aalesund. Kveldúlfur h/f
Reykjavík keypti skipið 23. nóvember
1925 og nefndi Snorra goða RE-141.
Lengd 43,10 m., breidd 7,44 m., dýpt
3,17 m., brl. 372,73, knúinn 650 hö.
gufuvél. Skipstjóri, Sigurður Jónsson.
Fiskveiðahlutafélagið Viðey í Reykja-
vík keypti skipið 21. júní 1944 og nefndi
Viðey RE-13. Selt 7. október 1947,
Búðanesi h/f Stykkishólmi og fékk þá
nafnið Búðanes SH-1. Enn selt 1. apríl
1952, Vélum og skipum h/f Reykjavík.
Seldur til niðurrifs og tekinn af skrá 12.
maí 1952. Þetta er annar togarinn sem
ber þetta nafn og skráningarstafi, hinum
fyrri voru gerð skil í 3. tbl. Víkingsins
2018.
– 56 –
Fimmtugasti- og sjötti togarinn í eigu Ís-
lendinga, Kári Sölmundarson RE-153,
var skráður hér á landi 4. apríl 1924
smíðaður hjá Cook Welton & Gemmell
Snorri goði RE-141.
Botnvörpungur-
inn Kári
Sölmundarson
RE 153
Nýr botnvörpungur kom hing-
að í gærmorgun. Heitir sá Kári
Sölmundarson og er eign
hlutafélagsins „Kára“ í Reykja-
vík. Framkvæmdastjóri þess er
Þorsteinn Jónsson. Skipið er
hið vandaðasta. Skipstjóri er
Aðalsteinn Pálsson.
Morgunblaðið, 11. ágúst 1920.
Kári
Sölmundarson í
kolaflutningum
til Grænlands
Mr. Crumrine hefir leigt botn-
vörpunginn Kára Sölmundar-
son til þess að fara norður
undir Angmagsalik á Græn-
landi, þar sem Grænlandsfarið
Gertrud Rask er enn í ísnum
og er nú kolalaust. Fer Kári
með 150 tonn kola. Horfur eru
nú sagðar heldur betri á því,
að Gertrud Rask komist inn til
Angmagsalik.
Morgunblaðið, 12. ágúst 1924.
Skallagrímur RE-145.
Kári Sölmundarson RE-153 í höfn á Patreksfirði.
22 – Sjómannablaðið Víkingur