Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 26
26 – Sjómannablaðið Víkingur Harðbakur EA-3 G amli Harðbakur Útgerðarfélags Akureyringa kom nýr til landsins í árið 1950. Hinn kunni togaraskip- stjóri Sæmundur Auðunsson stýrði skipinu. Seinna tók Vilhelm Þorsteins- son við skipstjórninni og hafði hana með höndum í tæpan áratug eða þangað til hann varð forstjóri ÚA í ársbyrjun 1965. Nú er kominn nýr Harðbakur til Ak- ureyrar, eign Útgerðarfélags Akureyringa, og vill svo skemmtilega til að Kristján, sonur Vilhelms heitins, og bróðursonur, Þorsteinn Már Baldvinsson, eru í forsvari fyrir skipakaupunum. Hinn nýi Harðbakur er 28,9 metrar að lengd, breidd 12 metrar og eru káetur fyrir þrettán manns í áhöfn. Skipið er smíðað í Noregi, skipstjóri er Hjörtur Valsson og yfirvélstjóri Friðrik Karlsson. „Mjög gott skip,“ segir Hjörtur skip- stjóri sem náði í Harðbak til Noregs. „Það var aðeins kaldi fyrsta daginn, vind- ur komst í 14 metra á sekúndu og stóð á stjórnborðshornið að aftan en gerði okk- ur lítið. Annars var blíða alla siglinguna og ég sá yfir 10 mílna hraða sem er full ferð. Annars vorum við þetta mest á 9,3 til 9,5 mílna ferð.“ Starfsmenn Slippsins á Akureyri fá nú í nógu að snúast næstu vikurnar við að setja vinnslubúnað í Harðbak. „Jú, ég vona að við getum hafið veiðar í janúar á nýju ári,“ segir Hjörtur Valsson skipstjóri kampakátur með hinn nýja Harðbak. Þess má geta að sérstaklega hefur ver- ið hugað að góðri orkunýtingu skipsins, vinnuaðstöðu sjómanna, öflugri kælingu og að öll meðhöndlun aflans geti orðið til hinnar mestu fyrirmyndar. Laugardagurinn 9. nóvember. Harðbakur er lagstur að bryggju og ber sama skrásetningarnúmer og gamli Harðbakur, EA-3. Á bryggjunni fagna (frá vinstri): Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, Friðrik Karlsson yfirvélstjóri, Hjörtur Valsson skipstjóri, Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, eigin- kona Hjartar, og Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Ljósm: Haukur S. Valdimarsson

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.