Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 29
Upphaf á gúmmíbátaskoðun
Kjartan Ólafsson
Hrauni var fyrst-
ur útgerðar-
manna til að
kaupa gúmmíbát
sem hann setti
um borð í Veigu
VE 291 sem var
24 brl. að stærð.
Sama ár keypti
Sighvatur
Bjarnason skip-
stjóri og út-
gerðarmaður á
Erlingi VE einnig gúmmíbát. Þetta var
árið 1951, þetta voru fyrstu gúmmíbátar
sem keyptir
voru sem björg-
unartæki um
borð í íslensk
skip. Ekki leið
langur tími þar
til þessi björg-
unartæki fóru að
sanna gildi sitt.
Veiga VE 291
fórst í róðri 12.
apríl 1952 og
með bátnum
tveir menn en 6
menn björguð-
ust í gúmmíbjörgunarbátinn sem Kjartan
hafði keypt árið áður.
Gúmmíbjörg-
unarbátarnir á
Eyjaflotanum
áttu næstu ár og
allar götur síðan
eftir að sanna
enn betur gildi
sitt. Einar var
áhugamaður um
öryggismál sjó-
manna, og fróð-
legt að rifja það
upp að hann
stofnaði fyrsta
verkstæðið sem
skoðaði gúmmíbjörgunarbáta í Vest-
mannaeyjum. Það var í vetrarbyrjun árið
1954 að Runólfur Jóhannesson þá skipa-
eftirlitsmaður í Eyjum hafði samband
við Einar og tjáði honum að nú ætti að
fara að hefja eftirlit með gúmmíbjörg-
unarbátum á vegum Skipaeftirlits ríkis-
ins, hafði Hjálmar R. Bárðarson þá skipa-
skoðunarstjóri beðið Runólf að útvega
mann til þessara starfa í Vestmannaeyj-
um. Átti sá að fara á námskeið í Reykja-
vík og læra verkið, setja upp verkstæði í
Eyjum og vinna síðan eftir reglugerð þar
um. Verið var að lögleiða gúmmíbjörg-
unarbáta á þessum tíma, því fylgdi að
eftirlit þurfti að hafa með því að menn
útveguðu sér þessi björgunartæki og að
þau væru skoðuð og í lagi þegar á þurfti
að halda. Eftir nokkra umhugsun ákvað
Einar að taka boðinu og gerast eftirlits-
maður. Námskeiðið var haldið í Reykja-
vík í byrjun árs 1955 og stóð yfir í hálfan
mánuð, kennari var Óli Barðdal, segla-
saumari og eigandi Seglagerðarinnar, en
samhliða störfum sinnum við segla-
gerðina vann Óli einnig við skoðun og
kynningu á gúmmíbjörgunarbátum.
Einar setti á stofn verkstæði í húsnæði
sem Þorsteinn Sigurðsson á Blátindi út-
vegaði honum í Fiskiðjunni. Síðan flutti
hann í Pálsborg sem hann leigði af Helga
Benediktssyni þar var hann í 5 ár en þá
flutti hann í stærra og hentugra húsnæði
að Hrauni. Með Einari vann við þessar
gúmmíbátaskoðanir Óskar Gíslason skip-
stjóri bróðir hans og Kjartan Ólafsson,
Hrauni sem keypti fyrsta gúmmíbátinn.
Á þessum tíma voru gúmmíbátar,
Kjartan Ólafsson Hrauni.
Sighvatur Bjarnason Ási
skipstjóri.
Ljósm: Sigurgeir Jónasson
Runólfur Jóhannsson skipa-
smiður og skipaskoðunar-
maður.
Einar styrkti fangalínur gúmmíbjörgunarbáta. Ljósm: Sigurgeir Jónasson
Bræðurnir Einar og Óskar Gíslasynir skoða gúmmíbjörgunarbát Ljósm: Sigurgeir Jónasson
Sjómannablaðið Víkingur – 29