Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Síða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Síða 29
Upphaf á gúmmíbátaskoðun Kjartan Ólafsson Hrauni var fyrst- ur útgerðar- manna til að kaupa gúmmíbát sem hann setti um borð í Veigu VE 291 sem var 24 brl. að stærð. Sama ár keypti Sighvatur Bjarnason skip- stjóri og út- gerðarmaður á Erlingi VE einnig gúmmíbát. Þetta var árið 1951, þetta voru fyrstu gúmmíbátar sem keyptir voru sem björg- unartæki um borð í íslensk skip. Ekki leið langur tími þar til þessi björg- unartæki fóru að sanna gildi sitt. Veiga VE 291 fórst í róðri 12. apríl 1952 og með bátnum tveir menn en 6 menn björguð- ust í gúmmíbjörgunarbátinn sem Kjartan hafði keypt árið áður. Gúmmíbjörg- unarbátarnir á Eyjaflotanum áttu næstu ár og allar götur síðan eftir að sanna enn betur gildi sitt. Einar var áhugamaður um öryggismál sjó- manna, og fróð- legt að rifja það upp að hann stofnaði fyrsta verkstæðið sem skoðaði gúmmíbjörgunarbáta í Vest- mannaeyjum. Það var í vetrarbyrjun árið 1954 að Runólfur Jóhannesson þá skipa- eftirlitsmaður í Eyjum hafði samband við Einar og tjáði honum að nú ætti að fara að hefja eftirlit með gúmmíbjörg- unarbátum á vegum Skipaeftirlits ríkis- ins, hafði Hjálmar R. Bárðarson þá skipa- skoðunarstjóri beðið Runólf að útvega mann til þessara starfa í Vestmannaeyj- um. Átti sá að fara á námskeið í Reykja- vík og læra verkið, setja upp verkstæði í Eyjum og vinna síðan eftir reglugerð þar um. Verið var að lögleiða gúmmíbjörg- unarbáta á þessum tíma, því fylgdi að eftirlit þurfti að hafa með því að menn útveguðu sér þessi björgunartæki og að þau væru skoðuð og í lagi þegar á þurfti að halda. Eftir nokkra umhugsun ákvað Einar að taka boðinu og gerast eftirlits- maður. Námskeiðið var haldið í Reykja- vík í byrjun árs 1955 og stóð yfir í hálfan mánuð, kennari var Óli Barðdal, segla- saumari og eigandi Seglagerðarinnar, en samhliða störfum sinnum við segla- gerðina vann Óli einnig við skoðun og kynningu á gúmmíbjörgunarbátum. Einar setti á stofn verkstæði í húsnæði sem Þorsteinn Sigurðsson á Blátindi út- vegaði honum í Fiskiðjunni. Síðan flutti hann í Pálsborg sem hann leigði af Helga Benediktssyni þar var hann í 5 ár en þá flutti hann í stærra og hentugra húsnæði að Hrauni. Með Einari vann við þessar gúmmíbátaskoðanir Óskar Gíslason skip- stjóri bróðir hans og Kjartan Ólafsson, Hrauni sem keypti fyrsta gúmmíbátinn. Á þessum tíma voru gúmmíbátar, Kjartan Ólafsson Hrauni. Sighvatur Bjarnason Ási skipstjóri. Ljósm: Sigurgeir Jónasson Runólfur Jóhannsson skipa- smiður og skipaskoðunar- maður. Einar styrkti fangalínur gúmmíbjörgunarbáta. Ljósm: Sigurgeir Jónasson Bræðurnir Einar og Óskar Gíslasynir skoða gúmmíbjörgunarbát Ljósm: Sigurgeir Jónasson Sjómannablaðið Víkingur – 29

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.