Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Side 36
36 – Sjómannablaðið Víkingur
hefur sterka aðstöðu til að verja hagsmuni sína, hafa hagsmuna-
aðilar ráðist gegn því að samsiglandi útgerðir noti samnings-
stöðu sína til að ná fram betri verðum frá dráttarbátafyrirtækj-
um.
Skilyrði fyrir samningum um samsiglingar eru:
- Samningurinn verður að stuðla að bættri framleiðslu eða
vörudreifingu eða efla tæknilegar og efnahagslegar framfarir.
- Neytendur verða að njóta sanngjarnrar hlutdeildar í þeim
ávinningi sem af þessu hlýst.
- Hömlurnar verða að vera ómissandi til að unnt sé að ná
þessum markmiðum, og:
- Samningurinn má ekki gefa fyrirtækjunum færi á að koma í
veg fyrir samkeppni að því er varðar verulegan hluta fram-
leiðslu varanna sem um er að ræða
Textinn er upphaflega frá 1995 en þá hafði engum dottið í
hug að æ stærri skip yrðu svo stór að aukning ytri kostnaðar
(aðalega dýpkun hafna og öflugri kranar sem þurftu burðar-
meiri hafnarbakka) væri nánast jafnstór ávinningi við hag-
kvæmni stærðarinnar í skiparekstri.
Þá hefur það sjálfsagt verið talið ólíklegt að eftir yrðu aðeins
þrír áætlunarmöguleikar fyrir farmeigenda til að flytja vörur
milli heimsálfa.
Eins og rætt er um annars staðar í þessari grein hafa útgerðir
leitast eftir samstarfi við keppinauta á margan hátt. Lengi vel
með formlegu samráði og samstarfi á sem flestum sviðum en
hin síðari ár í formlegri Siglingasamvinnu, þar sem þátttakend-
ur hvers hóps koma sér saman um samnýtingu skipastóls,
leiðakerfi, áætlun og framboði flutningsgetu.
Æ stærri skip gera slíkt samstarf nauðsynlegt því engin út-
gerð getur bæði haldið uppi ásættanlegri þjónustu og fyllt skip-
in.
Það eru 3 megin Siglingasamvinnur: 2M sem samanstendur
af Maersk og MSC, Ocean Alliance, sem samanstendur af CMA-
-CGM, Evergreen og Cosco, sem hefur keypt OOCL. Þá THE
Alliance sem samanstendur af Hapag Lloyd, Yang Ming og Oce-
an Network Express (ONE), sem tekur við af japönsku félögun-
um NYK, MOL og K-Line.
Vefritið Hellenic Shipping News birti yfirlit frá ráðgjafarfyrir-
tækinu XENETA um stöðu fylkinga, sem hér er birt án leyfis.1
Fyrst markaðshlutur:
Niðurstöðurnar teknar saman:
Það er athyglisvert að Ocean Alliance tengir saman flestar
hafnir (Port Pairs) eða 1.571, þótt stærð þeirra sé einungis 80%
af 2M, og að þeir nota flest skip, sennilega minni en aðrir (þá
mögulega Evergreen og OOCL) og hafa flestar ferðir/áætlanir.
Þetta gefur í skyn betra þjónustu framboð, sem gæti versnað
þegar stærri skip verða tekin í notkun
Hér ber þess að gera að Hyundai Merchant Marine, HMM,
sem hefur 2% markaðshlut samsigldu með 2M án þess að vera
fullgildir meðlimir. Eftir nýfjármögnun og mikil skipakaup hef-
ur HMM gengið til liðs við The Alliance.
Þannig var raunverulegur markaðshlutur 2M 36%. Aðrir
skiptu á milli sín 19% markaðarins.
Samsiglingasamvinna er á austur vestur leiðum. Í þessu sam-
hengi má geta þess að 36% flutnings Maersk er á austur vestur
leiðum, en þær leiðir eru að jafnaði lengri svo það er líklegt
stærra hlutfall flotans er notað
2M OA THE A
Höfn til hafnar 1.327 1.571 1.152
Vikulegar áætlanir 25 40 32
Skip 223 323 241
1 https://www.xeneta.com/blog/shipping-alliances