Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 36
36 – Sjómannablaðið Víkingur hefur sterka aðstöðu til að verja hagsmuni sína, hafa hagsmuna- aðilar ráðist gegn því að samsiglandi útgerðir noti samnings- stöðu sína til að ná fram betri verðum frá dráttarbátafyrirtækj- um. Skilyrði fyrir samningum um samsiglingar eru: - Samningurinn verður að stuðla að bættri framleiðslu eða vörudreifingu eða efla tæknilegar og efnahagslegar framfarir. - Neytendur verða að njóta sanngjarnrar hlutdeildar í þeim ávinningi sem af þessu hlýst. - Hömlurnar verða að vera ómissandi til að unnt sé að ná þessum markmiðum, og: - Samningurinn má ekki gefa fyrirtækjunum færi á að koma í veg fyrir samkeppni að því er varðar verulegan hluta fram- leiðslu varanna sem um er að ræða Textinn er upphaflega frá 1995 en þá hafði engum dottið í hug að æ stærri skip yrðu svo stór að aukning ytri kostnaðar (aðalega dýpkun hafna og öflugri kranar sem þurftu burðar- meiri hafnarbakka) væri nánast jafnstór ávinningi við hag- kvæmni stærðarinnar í skiparekstri. Þá hefur það sjálfsagt verið talið ólíklegt að eftir yrðu aðeins þrír áætlunarmöguleikar fyrir farmeigenda til að flytja vörur milli heimsálfa. Eins og rætt er um annars staðar í þessari grein hafa útgerðir leitast eftir samstarfi við keppinauta á margan hátt. Lengi vel með formlegu samráði og samstarfi á sem flestum sviðum en hin síðari ár í formlegri Siglingasamvinnu, þar sem þátttakend- ur hvers hóps koma sér saman um samnýtingu skipastóls, leiðakerfi, áætlun og framboði flutningsgetu. Æ stærri skip gera slíkt samstarf nauðsynlegt því engin út- gerð getur bæði haldið uppi ásættanlegri þjónustu og fyllt skip- in. Það eru 3 megin Siglingasamvinnur: 2M sem samanstendur af Maersk og MSC, Ocean Alliance, sem samanstendur af CMA- -CGM, Evergreen og Cosco, sem hefur keypt OOCL. Þá THE Alliance sem samanstendur af Hapag Lloyd, Yang Ming og Oce- an Network Express (ONE), sem tekur við af japönsku félögun- um NYK, MOL og K-Line. Vefritið Hellenic Shipping News birti yfirlit frá ráðgjafarfyrir- tækinu XENETA um stöðu fylkinga, sem hér er birt án leyfis.1 Fyrst markaðshlutur: Niðurstöðurnar teknar saman: Það er athyglisvert að Ocean Alliance tengir saman flestar hafnir (Port Pairs) eða 1.571, þótt stærð þeirra sé einungis 80% af 2M, og að þeir nota flest skip, sennilega minni en aðrir (þá mögulega Evergreen og OOCL) og hafa flestar ferðir/áætlanir. Þetta gefur í skyn betra þjónustu framboð, sem gæti versnað þegar stærri skip verða tekin í notkun Hér ber þess að gera að Hyundai Merchant Marine, HMM, sem hefur 2% markaðshlut samsigldu með 2M án þess að vera fullgildir meðlimir. Eftir nýfjármögnun og mikil skipakaup hef- ur HMM gengið til liðs við The Alliance. Þannig var raunverulegur markaðshlutur 2M 36%. Aðrir skiptu á milli sín 19% markaðarins. Samsiglingasamvinna er á austur vestur leiðum. Í þessu sam- hengi má geta þess að 36% flutnings Maersk er á austur vestur leiðum, en þær leiðir eru að jafnaði lengri svo það er líklegt stærra hlutfall flotans er notað 2M OA THE A Höfn til hafnar 1.327 1.571 1.152 Vikulegar áætlanir 25 40 32 Skip 223 323 241 1 https://www.xeneta.com/blog/shipping-alliances

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.