Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Qupperneq 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Qupperneq 38
38 – Sjómannablaðið Víkingur Þ riðjudaginn 3. desember fór ljós- myndakeppni sjómanna á vegum Sjómannablaðsins Víkings fram í 17. sinn. Að þessu sinni var met þátttaka en aldrei fyrr hafa jafn margir sjómenn tekið þátt í keppninni, alls 23 og sendu inn 221 mynd. Það var því gífurlega erfitt verk fyrir dómnefndina að velja 15 ljós- myndir sem fara áfram í Norðurlanda- keppni sjómanna sem fram fer í febrúar hér á landi. Þriggja manna dómnefndin sem skipuð var Sigrúnu Elínu Svavars- dóttur stýrimanni, Sigrúnu Sigurðar- dóttur áhugaljósmyndara og Sigurði Ó. Sigurðarsyni atvinnuljósmyndara átti erfitt starf fyrir höndum. Að loknum tveggja tíma dómnefndar- fundi var það niðurstaða dómnefndar að mynd Sigurðar Arnars Baldurssonar mat- sveins á Múlaberginu SI hlyti fyrsta sætið í keppninni í ár. Í öðru sæti varð mynd Guðmundar Guðmundssonar bátsmanns á Frosta ÞH og í þriðja sæti mynd Hlyns Ágústssonar háseta á Þórunni Sveins- dóttur VE. Eins og áður sagði fara til viðbótar þeim þremur vinningsmyndum 12 myndir til viðbótar í Norðurlandakeppn- ina. Þeir sjómenn sem þátt tóku í keppn- inni að þessu sinni auk þeirra sem unnu til verðlauna eru Anna Kristjánsdóttir, Aron Sveinbjörnsson, Baldur Hólmsteins- son, Bergþór Gunnlaugsson, Björg Ástríðardóttir, Elvar Víkingsson, Friðrik Björgvinsson, Guðmundur St. Valdimars- son, Halldór Jóhannesson, Halldór Stein- þórsson, Halldór Torfason, Haraldur Hjálmarsson, Haukur Grettisson, Hjörtur Björnsson, Jón Axelsson, Jón Páll Ás- geirsson, Jósef Stefánsson, Kristján Birk- isson, Þorgeir Baldursson og Þröstur Njálsson. Sjómannablaðið Víkingur þakkar öll- um þessum ljósmyndurum fyrir innlegg þeirra til þessarar keppni og vonast til þátttöku þeirra í næstu keppni sem hefst þegar í næsta mánuði. Í næsta blaði verður niðurstaða Norðurlandakeppn- innar kynnt. Ljósmyndakeppni sjómanna 2019 Hilmar Snorrason með dómnefndinni: Sigrúnu Elínu Svavarsdóttur stýrimanni, Sigrúnu Sigurðardóttur áhugaljósmyndara og Sigurði Ó. Sigurðarsyni atvinnuljósmyndara Hlutskörpust varð mynd Sigurðar Arnars Baldurssonar matsveins á Múlaberginu SI sem hann nefnir, Fuglar í ágjöf.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.