Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Side 38
38 – Sjómannablaðið Víkingur
Þ riðjudaginn 3. desember fór ljós-
myndakeppni sjómanna á vegum
Sjómannablaðsins Víkings fram í
17. sinn.
Að þessu sinni var met þátttaka en
aldrei fyrr hafa jafn margir sjómenn tekið
þátt í keppninni, alls 23 og sendu inn
221 mynd. Það var því gífurlega erfitt
verk fyrir dómnefndina að velja 15 ljós-
myndir sem fara áfram í Norðurlanda-
keppni sjómanna sem fram fer í febrúar
hér á landi. Þriggja manna dómnefndin
sem skipuð var Sigrúnu Elínu Svavars-
dóttur stýrimanni, Sigrúnu Sigurðar-
dóttur áhugaljósmyndara og Sigurði Ó.
Sigurðarsyni atvinnuljósmyndara átti
erfitt starf fyrir höndum.
Að loknum tveggja tíma dómnefndar-
fundi var það niðurstaða dómnefndar að
mynd Sigurðar Arnars Baldurssonar mat-
sveins á Múlaberginu SI hlyti fyrsta sætið
í keppninni í ár. Í öðru sæti varð mynd
Guðmundar Guðmundssonar bátsmanns
á Frosta ÞH og í þriðja sæti mynd Hlyns
Ágústssonar háseta á Þórunni Sveins-
dóttur VE.
Eins og áður sagði fara til viðbótar
þeim þremur vinningsmyndum 12
myndir til viðbótar í Norðurlandakeppn-
ina. Þeir sjómenn sem þátt tóku í keppn-
inni að þessu sinni auk þeirra sem unnu
til verðlauna eru Anna Kristjánsdóttir,
Aron Sveinbjörnsson, Baldur Hólmsteins-
son, Bergþór Gunnlaugsson, Björg
Ástríðardóttir, Elvar Víkingsson, Friðrik
Björgvinsson, Guðmundur St. Valdimars-
son, Halldór Jóhannesson, Halldór Stein-
þórsson, Halldór Torfason, Haraldur
Hjálmarsson, Haukur Grettisson, Hjörtur
Björnsson, Jón Axelsson, Jón Páll Ás-
geirsson, Jósef Stefánsson, Kristján Birk-
isson, Þorgeir Baldursson og Þröstur
Njálsson.
Sjómannablaðið Víkingur þakkar öll-
um þessum ljósmyndurum fyrir innlegg
þeirra til þessarar keppni og vonast til
þátttöku þeirra í næstu keppni sem hefst
þegar í næsta mánuði. Í næsta blaði
verður niðurstaða Norðurlandakeppn-
innar kynnt.
Ljósmyndakeppni
sjómanna 2019
Hilmar Snorrason með dómnefndinni: Sigrúnu Elínu Svavarsdóttur stýrimanni, Sigrúnu Sigurðardóttur áhugaljósmyndara
og Sigurði Ó. Sigurðarsyni atvinnuljósmyndara
Hlutskörpust varð mynd Sigurðar Arnars Baldurssonar matsveins á Múlaberginu SI sem hann nefnir, Fuglar í ágjöf.