Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Side 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Side 40
M eð tilkomu togaraútgerðar á öndverðri 20. öld bættist ný vídd í útgerð og sjósókn Íslendinga og ekki leið á löngu uns tekið var að tala um nýjan og sérstakan hóp innan sjómannastéttarinnar: togaramenn. Fyrsta kynslóð þeirra samanstóð að mestu af mönnum sem áður höfðu haft sjósókn á þilskipum og árabátum að árstíðabundnu hluta- starfi, en togarasjómennskan var frá upphafi fullt starf, þótt fyrstu togararnir sæktu ekki sjó nema átta til tíu mánuði á ári. Tekjur á þeim voru hins vegar svo háar, að margir togara- menn gátu leyft sér að sinna ekki annarri vinnu. Þetta þóttu mikil hlunnindi sem heilluðu unga og framgjarna menn. Þótti fínt að vera togaramaður Smám saman óx úr grasi kynslóð, sem aldrei hafði kynnst að ráði sjómennsku á annars konar skipum en togurum. Sumir þeirra höfðu verið á erlendum botnvörpuskipum, einkum breskum, og lært þar vinnubrögð og handtök við togveiðar. Flestir komust hins vegar ungir í skipsrúm á fyrstu íslensku togurunum og lærðu þar sjó, eins og kallað var. Allir byrjuðu þeir sem hásetar eða kyndarar, en unnu sig síðan upp, og þeir sem gátu fóru í stýrimanna- eða vélstjóraskóla. Margir þeirra urðu lands- kunnir aflamenn og nokkrir komust í álnir, eignuðust eigin skip eða hlut í skipi og stunduðu útgerð síðari hluta ævinnar. Langt fram eftir 20. öld lék ljómi um nöfn þessara manna á Íslandi, þeir færðu björg í bú, voru sannkallaðir máttarstólpar samfélagsins og á sjó voru þeir eins og kóngar í ríki sínu. Á þeim árum þótti fínt að vera togaramaður á Ís- landi. Fæddist í Leiru Fáir menn gátu frekar talist samnefnari íslenskra togaramanna og þess sem þeir fengu áorkað en Tryggvi Ófeigsson, og var hann þó aðeins einn af mörgum afreksmönnum í sinni stétt. Ævi Tryggva var ævintýri líkust og hann náði að kynnast togarasjómennsku og togaraútgerð frá öllum hliðum. Hann fæddist suður í Leiru árið 1896, í þann mund sem útlendir togarar tóku að sækja í stórum hópum í Faxaflóa á sumrum. Sem ungur drengur fylgdist hann hugfanginn með þessum stóru skipum og átti sér þann draum æðstan að komast á togara. Það tókst og eftir tilskilinn tíma sem háseti fór hann í Stýrimannaskólann í Reykjavík. Að námi loknu var Tryggvi stýrimaður og skipstjóri á íslenskum og enskum togurum, m.a. á Imperialist, sem Helly- ersbræður gerðu út og var stærsta skip í breska togaraflotanum á 3. áratug 20. aldar. Úranus og Júpiter Árið 1929 stofnaði Tryggvi útgerðarfélag ásamt fleiri mönnum og varð þá skipstjóri á eigin skipi. Því stýrði hann um árabil og eftir síðari heimsstyrjöld eignaðist hann fyrirtækið að mestu og rak það af mynd- arskap í um það bil aldarfjórðung. Á 6. og 7. áratugnum var fyrirtæki hans, Júpiter og Marz hf., stærsta togara- útgerðarfyrirtæki landsins í einkaeign og skip hans, Neptúnus, Úranus, Júpiter og Marz, voru fræg aflaskip. Þá reisti Tryggvi einnig mikla fiskverk- unarstöð og hraðfrystihús á Kirkjusandi við Reykjavík. Hann hætti útgerð í þann mund er skuttogarar leystu síðutogarana af hólmi og hraðfrystihúsið seldi hann árið 1973. Það voru síðar höfuðstöðvar Íslandsbanka í ein tuttugu ár en nú er það líka breytt og óvíst hver verða örlög hússins sem um langt skeið hýsti eitt öflugasta útgerðarfyrirtæki landsins. Togarinn Júpiter, byggður 1925, var fyrsti togarinn sem Tryggvi eignaðist þegar hann stofnaði - með fleirum - útgerðar- félagið Júpiter hf. árið 1929. Tryggvi var sjálfur með skipið til 1940 enda með afbrigðum aflasæll skipstjóri. Ljósm: Úr safni Hafliða Óskarssonar Jón Þ. Þór Togaramaður af l ífi og sál – Tryggvi Ófeigsson (1896-1987) – Tryggvi Ófeigsson. 40 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.