Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 41
Sjómannablaðið Víkingur – 41
Út er komin bókin „Hann hefur engu
gleymt ... nema textunum!“, eftir Guðjón
Inga Eiríksson, og inniheldur hún gaman-
sögur úr íslenska tónlistarheiminum.
Hér á eftir verður gripið niður í bókina:
Hinn kunni hljómborðsleikari Hjörtur
Howser stjórnaði á sínum tíma útvarps-
þætti á Bylgjunni og þurfti þá að ná sam-
bandi við Bubba Morthens. Hann fann
hins vegar hvergi símanúmer Bubba og
kom því að máli við Björgvin, sem var
þarna nærstaddur, og spurði:
„Veist þú nokkuð símanúmerið hjá
Bubba? Hann er nefnilega ekki skráður í
símaskrána?“
„Símaskrána!“ svaraði Björgvin, stein-
hissa á vankunnáttu Hjartar. „Stjörnurn-
ar eru ekki skráðar í símaskrána. Bara
undirleikararnir.“
– * –
Norðfirska hljómsveitin SúEllen var
einhverju sinni að spila á Hótel Íslandi.
Guðmundur R. var þá nýorðinn varabæj-
arfulltrúi fyrir Alþýðubandalagið í bæjar-
stjórn Neskaupstaðar og hann langaði til
að stríða pólitískum andstæðingum sín-
um aðeins, svo að fyrir fullu húsi til-
kynnir hann með miklum látum:
„Næsta lag er fyrir alla Sjálfstæðis-
menn í salnum!“
Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út og
fólk þyrptist út á gólfið.
Svo hófst Bítlalagið góðkunna:
„I´m a loser. I´m a loser ...“
– * –
Hinn góðkunni tónlistarmaður,
Magnús Kjartansson, var einhverju sinni
að leika fyrir dansi á Hótel Sögu ásamt
hljómsveit sinni þegar til hans kemur
roskinn maður og biður hann með þjósti
nokkrum að lækka í tónlistinni.
Magnúsi blöskraði frekjugangurinn
og segir:
„Heyrðu, góði! Ættir þú ekki frekar
að vera hinum megin við götuna?“
Ballgesturinn skildi ekki alveg hvað
Magnús átti við og spurði:
„Hver fjandinn er þar?“
Og svarið kom um hæl:
„Þjóðminjasafnið.“
– * –
Eftir að Pétur Kristjánsson var hættur
eiginlegu hljómsveitastússi tróð hann
stundum upp með hinum og þessum
hljómsveitum, sér og öðrum til
óblandinnar ánægju. Ein af þeim var Sál-
in hans Jóns míns og þegar kom að því
að kynna gamla brýnið á svið gerði Stef-
án Hilmarsson, aðalsöngvari hennar, það
iðulega með þessum orðum:
„Góðir gestir, næstur stígur á svið
Pétur Kristjánsson. Hann hefur engu
gleymt – nema textunum.“
– * –
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir var eitt
sinn sem oftar við hljóðnemann í Ríkis-
útvarpinu og spilaði í þetta skiptið „O
sole mio“ með Luciano Pavarotti. Hún
lifði sig inn í tónlistina og söng með af
hjartans lyst, en áttaði sig ekki á því, fyrr
en að laginu loknu, að hún hafði gleymt
að setja hlétakkann á, svo að söngur
hennar barst út til hlustenda, ekki síður
en það sem kom úr barka óperusöngvar-
ans.
En gamall og reyndur þulur lætur
slíkt ekki á sig fá og afkynnti Ragnheiður
Ásta umrætt lag með þessum orðum:
„Luciano Pavarotti og fleiri sungu „O
sole mio“.“
– * –
Álftagerðisbræður hafa oft sungið á elli-
heimilum og ávallt verið aufúsugestir
þar.
Eitt sinn voru þeir að syngja á Hlíð
á Akureyri. Að loknu síðasta laginu urðu
þeir að hraða sér út til að komast á
næsta tónleikastað í tæka tíð. Sá þá
starfsstúlka, sem var nýliði á elliheimil-
inu og hafði ekki verið viðstödd söng
þeirra, til þeirra þar sem þeir nánast
hlaupa við fót út um aðaldyrnar og var
Sigfús, elsti bróðirinn, síðastur í röðinni.
Hún stökk til, greip létt í öxl hans og
spurði:
„Hvert ert þú að fara, góurinn?“
– * –
Hljómsveit Svavars Gests naut mikillar
vinsælda á sjöunda áratug síðustu aldar
og spilaði meðal annars á héraðsmótum
sjálfstæðismanna vítt og breitt um landið
við góðar undirtektir.
Eitt sinn, á ströngu ferðalagi milli
dansstaða á landsbyggðinni, gerði rúta
sveitarinnar stuttan stans til þess að
menn gætu rétt úr sér og slappað af í
guðs grænni náttúrunni. Svavar Gests
hljómsveitarstjóri stjórnaði öllu af festu
og öryggi og gætti þess vandlega að
hljómsveitarmeðlimir væru ekki að
drolla eða teygja lopann. Hann blés því
til brottferðar að nýju eftir 10 mínútna
stopp og þótti ýmsum það æði skammur
tími. Garðar Karlsson gítarleikari var
einn þeirra og dvaldist honum nokkuð
við að „hlusta á lækinn sem hjalar við
mosató“.
Þegar Svavar ítrekaði skipun sína
kvaðst Garðar ætla að fá sér kalt vatn úr
læknum og bætti svo við:
„Ég ætla bara að láta renna aðeins
lengur.
„Hann hefur engu gleymt
... nema textunum!“
Hvaleyrarbraut 27
220 Hafnarfirði
Sími: 564 3338