Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Qupperneq 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Qupperneq 41
Sjómannablaðið Víkingur – 41 Út er komin bókin „Hann hefur engu gleymt ... nema textunum!“, eftir Guðjón Inga Eiríksson, og inniheldur hún gaman- sögur úr íslenska tónlistarheiminum. Hér á eftir verður gripið niður í bókina: Hinn kunni hljómborðsleikari Hjörtur Howser stjórnaði á sínum tíma útvarps- þætti á Bylgjunni og þurfti þá að ná sam- bandi við Bubba Morthens. Hann fann hins vegar hvergi símanúmer Bubba og kom því að máli við Björgvin, sem var þarna nærstaddur, og spurði: „Veist þú nokkuð símanúmerið hjá Bubba? Hann er nefnilega ekki skráður í símaskrána?“ „Símaskrána!“ svaraði Björgvin, stein- hissa á vankunnáttu Hjartar. „Stjörnurn- ar eru ekki skráðar í símaskrána. Bara undirleikararnir.“ – * – Norðfirska hljómsveitin SúEllen var einhverju sinni að spila á Hótel Íslandi. Guðmundur R. var þá nýorðinn varabæj- arfulltrúi fyrir Alþýðubandalagið í bæjar- stjórn Neskaupstaðar og hann langaði til að stríða pólitískum andstæðingum sín- um aðeins, svo að fyrir fullu húsi til- kynnir hann með miklum látum: „Næsta lag er fyrir alla Sjálfstæðis- menn í salnum!“ Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út og fólk þyrptist út á gólfið. Svo hófst Bítlalagið góðkunna: „I´m a loser. I´m a loser ...“ – * – Hinn góðkunni tónlistarmaður, Magnús Kjartansson, var einhverju sinni að leika fyrir dansi á Hótel Sögu ásamt hljómsveit sinni þegar til hans kemur roskinn maður og biður hann með þjósti nokkrum að lækka í tónlistinni. Magnúsi blöskraði frekjugangurinn og segir: „Heyrðu, góði! Ættir þú ekki frekar að vera hinum megin við götuna?“ Ballgesturinn skildi ekki alveg hvað Magnús átti við og spurði: „Hver fjandinn er þar?“ Og svarið kom um hæl: „Þjóðminjasafnið.“ – * – Eftir að Pétur Kristjánsson var hættur eiginlegu hljómsveitastússi tróð hann stundum upp með hinum og þessum hljómsveitum, sér og öðrum til óblandinnar ánægju. Ein af þeim var Sál- in hans Jóns míns og þegar kom að því að kynna gamla brýnið á svið gerði Stef- án Hilmarsson, aðalsöngvari hennar, það iðulega með þessum orðum: „Góðir gestir, næstur stígur á svið Pétur Kristjánsson. Hann hefur engu gleymt – nema textunum.“ – * – Ragnheiður Ásta Pétursdóttir var eitt sinn sem oftar við hljóðnemann í Ríkis- útvarpinu og spilaði í þetta skiptið „O sole mio“ með Luciano Pavarotti. Hún lifði sig inn í tónlistina og söng með af hjartans lyst, en áttaði sig ekki á því, fyrr en að laginu loknu, að hún hafði gleymt að setja hlétakkann á, svo að söngur hennar barst út til hlustenda, ekki síður en það sem kom úr barka óperusöngvar- ans. En gamall og reyndur þulur lætur slíkt ekki á sig fá og afkynnti Ragnheiður Ásta umrætt lag með þessum orðum: „Luciano Pavarotti og fleiri sungu „O sole mio“.“ – * – Álftagerðisbræður hafa oft sungið á elli- heimilum og ávallt verið aufúsugestir þar. Eitt sinn voru þeir að syngja á Hlíð á Akureyri. Að loknu síðasta laginu urðu þeir að hraða sér út til að komast á næsta tónleikastað í tæka tíð. Sá þá starfsstúlka, sem var nýliði á elliheimil- inu og hafði ekki verið viðstödd söng þeirra, til þeirra þar sem þeir nánast hlaupa við fót út um aðaldyrnar og var Sigfús, elsti bróðirinn, síðastur í röðinni. Hún stökk til, greip létt í öxl hans og spurði: „Hvert ert þú að fara, góurinn?“ – * – Hljómsveit Svavars Gests naut mikillar vinsælda á sjöunda áratug síðustu aldar og spilaði meðal annars á héraðsmótum sjálfstæðismanna vítt og breitt um landið við góðar undirtektir. Eitt sinn, á ströngu ferðalagi milli dansstaða á landsbyggðinni, gerði rúta sveitarinnar stuttan stans til þess að menn gætu rétt úr sér og slappað af í guðs grænni náttúrunni. Svavar Gests hljómsveitarstjóri stjórnaði öllu af festu og öryggi og gætti þess vandlega að hljómsveitarmeðlimir væru ekki að drolla eða teygja lopann. Hann blés því til brottferðar að nýju eftir 10 mínútna stopp og þótti ýmsum það æði skammur tími. Garðar Karlsson gítarleikari var einn þeirra og dvaldist honum nokkuð við að „hlusta á lækinn sem hjalar við mosató“. Þegar Svavar ítrekaði skipun sína kvaðst Garðar ætla að fá sér kalt vatn úr læknum og bætti svo við: „Ég ætla bara að láta renna aðeins lengur. „Hann hefur engu gleymt ... nema textunum!“ Hvaleyrarbraut 27 220 Hafnarfirði Sími: 564 3338

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.