Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Síða 42
Sjóbúnaður frá skipverjum
Um næstu áramót ganga í gildi nýir
samningar á vegum Alþjóðaflutninga-
verkasambandsins (ITF). Samkvæmt
honum eiga áhafnir ekki lengur að sjá
um sjóbúnað skipa sinni nema að ekki
séu hafnarverkamenn í þeim höfnum sem
skip þeirra er að lesta í. Sameiginlegur
samingahópur, sem er samanstendur af
útgerðum og ITF, hefur hvatt útgerðir til
að fara eftir þessum nýju samningum í
einu og öllu en samkomulagið nær til
bæði allra farma auk gámasjóbúnaðar.
Það var í febrúar 2018 sem þetta
samkomulag var gert af hálfu alþjóða-
samningateymis (International Barganing
Forum - IBF) en það nær til allra aðilda-
útgerða um allan heim. Hafnarvinnuá-
kvæði samningsins setur verklagsreglur
um losun og lestun skipa í höfnum sem
er ætlað að vernda réttindi bæði áhafna
og hafnarverkamanna. Undanfarin ár hef-
ur orðið aukning á banaslysum meðal
sjómanna sem hafa verið að vinna við
sjóbúning skipa sinna og vildu menn sjá
breytingar á þessu ástandi og þar af leið-
andi yrði að verða breyting hjá þeim aðil-
um sem annast losun og lestun skipa í
höfnum, leigutökum og þriðja aðila.
Samkomulagið nær til gámaskipa sem
sigla í Austursjó, vestur Evrópu að með-
töldu Miðjarðarhafi, Kanada og norður
Evrópu.
Svartlisti útgerða
Indverska ríkisstjórnin hefur gefið út
„svartlista“ yfir þau fyrirtæki og útgerðir
sem hafa brotið landsreglur varðandi að
greiða ekki laun til sjómanna sem þau
hafa ráðið og síðar skilið eftir umkomu-
lausa þegar útgerðir hafa farið á hausinn.
Þegar listinn var gefinn út voru á honum
fjögur fyrirtæki þar af eitt mönnunarfyrir-
tæki. Þá eru átta skip á þessum sama
lista.
Strand í ljósi umhverfisverndar
Í október 2017 strandaði Panamaskipið
Glory Amsterdam undan ströndum
Þýskalands en skipið er 77 þúsund tonn
að stærð. Niðurstaða rannsóknarnefndar
á strandinu komst að þeirri niðurstöðu
að orsök strandsins væri skortur á sam-
skiptum milli kínverska skipstjórans,
björgunardráttarbáts og þýskra yfirvalda
þar sem vélarafl skipsins var ekki nægj-
anlegt í því veðri sem skipið strandaði í.
En þar er ekki öll sagan sögð því til að
mæta nýjum umhverfisreglum var vélar-
afl skipsins minnkað sem varð til þess að
það hafði ekki nægjanlegt afl til að koma
í veg fyrir að skipið strandaði. Hefur
stéttarfélaga sjómanna í Evrópu, Nautili-
us, vakið athygli á því að öryggi sjó-
manna sé ógnað með nýjum kröfum
IMO um niðurfærslu vélarafls skipa til
að mæta umhverfissjónarmiðum.
Sviðsett sjórán
Þegar þrengir að í útgerðinni, bankar
loka á lánalínur og heimta greiðslur getur
verið erfitt að halda áfram rekstri. Sölu-
verðmæti skipsins er heldur ekki nægjan-
legt til að laga stöðuna og hvað er þá til
ráða. Grískur útgerðarmaður sem kom-
inn var í þessa stöðu fór að skoða alvar-
lega kosti þá sem í stöðunni væru. Hann
komst að því að ef eitthvað kæmi fyrir
skipið og það dæmt óbjarganlegt fengi
hann fúlgur fjár sem myndi bjarga öllu
hjá útgerðinni. Þá var bara að finna leið
til að ná áhöfninni frá borði áður en skip-
ið yrði látið „farast“ og komast upp með
glæpinn. Þetta er ekki handrit að bíó-
mynd heldur raunveruleiki sem átti sér
stað í Aden flóa í júlí 2011. Skipið sem
hér átti í hlut var 150.000 tonna tank-
skipið Brilliante Virtuoso sem smíðað var
1992. Gríska útgerðin Suez Fortunes In-
vestments Ltd, sem var í eigu Grikkjans
Marios Iliopoulos, keypti skipið í ágúst
2008 á 46 milljónir dollara. Tímasetn-
ingin á kaupum á skipinu gat ekki verið
verri enda skall heimskreppan á skömmu
síðar og markaðir hrundu.
Árið 2011 var verðmæti skipsins kom-
ið niður í 13,5 milljón dollara og eftir
nokkrar endurfjármagnanir voru allar
lánalínur lokaðar og allt að sigla í strand.
Brilliante Virtuoso var reyndar tryggt
fyrir 77 milljónir dollara eða sex sinnum
verðmæti þess. Sú staðreynd freistaði
Iliopoulos.
Þann 23. júní 2011 lestaði skipið olíu
í Kerch í Úkraínu sem átti að fara til Kína
en fyrir flutninginn átti að greiða 3,2
milljónir dollara en hálfa milljón átti að
greiða fyrirfram þegar skipið færi í gegn-
um Súesskurðinn. Þann 30. júní fór skip-
ið í gegnum skurðinn og nú skyldi því
siglt yfir Adenflóa þar sem sjóræningja-
hætta var til staðar. Því voru gerðar ráð-
stafanir um að fá vopnaða verði um um
borð í skipið þegar það kæmi til Yemen
6. júlí.
Skömmu fyrir miðnætti 5. júlí kom
lítill bátur að skipinu með sjö vopnaða
menn um borð og sögðust þeir vera
vopnuðu verðirnir sem ættu að koma um
borð í skipið. Hleypti skipstjórinn því
mönnunum um borð en um leið og þeir
voru komnir á skipsfjöl tóku þeir alla
skipverjanna til fanga en fóru með yfir-
vélstjórann niður í vél og skipstjórann
upp í brú. Fyrirskipuðu þeir að haldið
skyldi til Sómalíu en skipstjórinn tók
stefnuna á Djibouti í staðinn. Aðalvélin
var stöðvuðu kl. 2 aðfaranótt 6. júlí og
45 mínútum síðar braust út eldur í vélar-
úminu. Við rannsókn málsins kom í ljós
að kveikt var í vélarúminu með sprengju-
efni sem vopnuðu mennirnir komu með
um borð. Klukkan 3 um nóttina kallaði
yfirstýrimaður skipsins á bandaríska her-
skipið USS Philippine, sem var til varnar
skipum á svæðinu, og sagði að skipið
lægi undir árás sjóræningja. Við rann-
Utan úr heimi
Hilmar Snorrason skipstjóri
Glory Amsterdam strandaði vegna mengunarvarna. Ljósmynd: Netty
42 – Sjómannablaðið Víkingur