Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 42
Sjóbúnaður frá skipverjum Um næstu áramót ganga í gildi nýir samningar á vegum Alþjóðaflutninga- verkasambandsins (ITF). Samkvæmt honum eiga áhafnir ekki lengur að sjá um sjóbúnað skipa sinni nema að ekki séu hafnarverkamenn í þeim höfnum sem skip þeirra er að lesta í. Sameiginlegur samingahópur, sem er samanstendur af útgerðum og ITF, hefur hvatt útgerðir til að fara eftir þessum nýju samningum í einu og öllu en samkomulagið nær til bæði allra farma auk gámasjóbúnaðar. Það var í febrúar 2018 sem þetta samkomulag var gert af hálfu alþjóða- samningateymis (International Barganing Forum - IBF) en það nær til allra aðilda- útgerða um allan heim. Hafnarvinnuá- kvæði samningsins setur verklagsreglur um losun og lestun skipa í höfnum sem er ætlað að vernda réttindi bæði áhafna og hafnarverkamanna. Undanfarin ár hef- ur orðið aukning á banaslysum meðal sjómanna sem hafa verið að vinna við sjóbúning skipa sinna og vildu menn sjá breytingar á þessu ástandi og þar af leið- andi yrði að verða breyting hjá þeim aðil- um sem annast losun og lestun skipa í höfnum, leigutökum og þriðja aðila. Samkomulagið nær til gámaskipa sem sigla í Austursjó, vestur Evrópu að með- töldu Miðjarðarhafi, Kanada og norður Evrópu. Svartlisti útgerða Indverska ríkisstjórnin hefur gefið út „svartlista“ yfir þau fyrirtæki og útgerðir sem hafa brotið landsreglur varðandi að greiða ekki laun til sjómanna sem þau hafa ráðið og síðar skilið eftir umkomu- lausa þegar útgerðir hafa farið á hausinn. Þegar listinn var gefinn út voru á honum fjögur fyrirtæki þar af eitt mönnunarfyrir- tæki. Þá eru átta skip á þessum sama lista. Strand í ljósi umhverfisverndar Í október 2017 strandaði Panamaskipið Glory Amsterdam undan ströndum Þýskalands en skipið er 77 þúsund tonn að stærð. Niðurstaða rannsóknarnefndar á strandinu komst að þeirri niðurstöðu að orsök strandsins væri skortur á sam- skiptum milli kínverska skipstjórans, björgunardráttarbáts og þýskra yfirvalda þar sem vélarafl skipsins var ekki nægj- anlegt í því veðri sem skipið strandaði í. En þar er ekki öll sagan sögð því til að mæta nýjum umhverfisreglum var vélar- afl skipsins minnkað sem varð til þess að það hafði ekki nægjanlegt afl til að koma í veg fyrir að skipið strandaði. Hefur stéttarfélaga sjómanna í Evrópu, Nautili- us, vakið athygli á því að öryggi sjó- manna sé ógnað með nýjum kröfum IMO um niðurfærslu vélarafls skipa til að mæta umhverfissjónarmiðum. Sviðsett sjórán Þegar þrengir að í útgerðinni, bankar loka á lánalínur og heimta greiðslur getur verið erfitt að halda áfram rekstri. Sölu- verðmæti skipsins er heldur ekki nægjan- legt til að laga stöðuna og hvað er þá til ráða. Grískur útgerðarmaður sem kom- inn var í þessa stöðu fór að skoða alvar- lega kosti þá sem í stöðunni væru. Hann komst að því að ef eitthvað kæmi fyrir skipið og það dæmt óbjarganlegt fengi hann fúlgur fjár sem myndi bjarga öllu hjá útgerðinni. Þá var bara að finna leið til að ná áhöfninni frá borði áður en skip- ið yrði látið „farast“ og komast upp með glæpinn. Þetta er ekki handrit að bíó- mynd heldur raunveruleiki sem átti sér stað í Aden flóa í júlí 2011. Skipið sem hér átti í hlut var 150.000 tonna tank- skipið Brilliante Virtuoso sem smíðað var 1992. Gríska útgerðin Suez Fortunes In- vestments Ltd, sem var í eigu Grikkjans Marios Iliopoulos, keypti skipið í ágúst 2008 á 46 milljónir dollara. Tímasetn- ingin á kaupum á skipinu gat ekki verið verri enda skall heimskreppan á skömmu síðar og markaðir hrundu. Árið 2011 var verðmæti skipsins kom- ið niður í 13,5 milljón dollara og eftir nokkrar endurfjármagnanir voru allar lánalínur lokaðar og allt að sigla í strand. Brilliante Virtuoso var reyndar tryggt fyrir 77 milljónir dollara eða sex sinnum verðmæti þess. Sú staðreynd freistaði Iliopoulos. Þann 23. júní 2011 lestaði skipið olíu í Kerch í Úkraínu sem átti að fara til Kína en fyrir flutninginn átti að greiða 3,2 milljónir dollara en hálfa milljón átti að greiða fyrirfram þegar skipið færi í gegn- um Súesskurðinn. Þann 30. júní fór skip- ið í gegnum skurðinn og nú skyldi því siglt yfir Adenflóa þar sem sjóræningja- hætta var til staðar. Því voru gerðar ráð- stafanir um að fá vopnaða verði um um borð í skipið þegar það kæmi til Yemen 6. júlí. Skömmu fyrir miðnætti 5. júlí kom lítill bátur að skipinu með sjö vopnaða menn um borð og sögðust þeir vera vopnuðu verðirnir sem ættu að koma um borð í skipið. Hleypti skipstjórinn því mönnunum um borð en um leið og þeir voru komnir á skipsfjöl tóku þeir alla skipverjanna til fanga en fóru með yfir- vélstjórann niður í vél og skipstjórann upp í brú. Fyrirskipuðu þeir að haldið skyldi til Sómalíu en skipstjórinn tók stefnuna á Djibouti í staðinn. Aðalvélin var stöðvuðu kl. 2 aðfaranótt 6. júlí og 45 mínútum síðar braust út eldur í vélar- úminu. Við rannsókn málsins kom í ljós að kveikt var í vélarúminu með sprengju- efni sem vopnuðu mennirnir komu með um borð. Klukkan 3 um nóttina kallaði yfirstýrimaður skipsins á bandaríska her- skipið USS Philippine, sem var til varnar skipum á svæðinu, og sagði að skipið lægi undir árás sjóræningja. Við rann- Utan úr heimi Hilmar Snorrason skipstjóri Glory Amsterdam strandaði vegna mengunarvarna. Ljósmynd: Netty 42 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.