Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Síða 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Síða 46
46 – Sjómannablaðið Víkingur Út er komin hjá Bókaútgáfunni Hólum bók séra Sigurður Ægisson um Gústa guðs- mann (Guðmund Ágúst Gíslason) sem Sig- urður hefur unnið að í hartnær tvo áratugi. Sigurður veitti Víkingnum góðfúslegt leyfi til að birta stuttan kafla úr bókinni sem er um 300 blaðsíður að lengd. Við grípum niður í tíunda kafla bókarinnar þar sem Sveinn Björnsson hefur orðið: Ég kynnist Gústa árið 1964 þegar við förum að róa á trillunni, ég og gamli mað- urinn [: faðir Sveins], þá fer maður að kynnast honum, þá kemur maður inn í þennan vettvang, inn í þetta líf, þessa trillukarlaveröld sem þá var að byrja að verða til hérna svona aftur. Hún hafði nátt úrulega verið til hér áður fyrr en hafði dáið út, en var svo að koma aftur þegar að handrúllurnar fóru að koma, slóðarnir og nælonið, þá fóru menn að fara af stað aft- ur. Og líka annað það, að á sumrin tók enginn við fiski meðan að síldin var á fullu, það tók enginn við fiski, og menn sem voru að þessu, þeir voru bara með línubala uppi á torgi og voru að selja fisk bara upp úr balanum því þá voru ekki fiskbúðir, þannig að það var ekki nokkur leið að losna við fisk þó að menn hefðu viljað það. Og þeir sem voru að þessu, það voru orðnir gamlir menn sem voru þá kannski á árabátum bara hérna á firðinum. Þá voru þeir bara að selja í braggana og selja hérna á götunni húsmæðrum sem að vildu kaupa fisk, því það vantaði náttúru- lega alltaf fisk. Fjarðarfiskurinn var nú ekki vinsæll, það var svo vont bragð af honum, því hann lá hér í damminum og menn voru ekkert að fara lengra, það var nógur fiskur á firðinum. Og menn voru alltaf spurðir: „Hvar varstu? Varstu úti í Neskrók?“ og menn lugu því alveg villt og galið, þó þeir hefðu verið að veiða hér fram af bryggjunum. Karlinn var náttúru- lega í þessu. Hann var ekkert að fara lengra en hann þurfti og menn voru ekki sáttir við fiskinn hjá honum, mikið til út af því að hann fór svo stutt. Svo hirti hann hvern einasta fisk, hvort hann var stór eða smár, og þetta var náttúrulega bölvað kóð, sumt af þessu, rauðir þaratittlingar, og þeir vildu þetta ekkert í salt, hvorki Dengi Matt [: Steingrímur Matthíasson, fisksali] eða bílstjórarnir. Það var stundum hávaði á bryggjunni þegar karlinn var að koma með þetta. Hann var að gá ofan í trillurnar hjá okkur hinum og ef hann sá smáfiskana oní bátunum þá óð hann af stað og sagði: „Komdu og sjáðu hérna hjá þessum.“ Og þá skipti engu máli þó að menn hefðu ver- ið búnir að taka þetta frá og setja til hliðar, ætluðu bara handa sjálfum sér, hann sá þetta, og þá var alveg eins gott að taka af honum eins og okkur. En aðalfiskimiðin hans voru hérna í fjarðarkjaftinum, fram af Sauðanesvitanum og á Hellunni, hann fór ekkert lengra, enda var báturinn orðinn ansi lélegur, það var orðinn fúinn í honum botninn og hann vissi það karlinn að hann var ekkert sérstakur. Enda var þetta alveg nóg fyrir hann. Ég man eftir því eitt skiptið, það var oft þannig hérna og er það kannski ennþá að seinnipart sumars, svona í byrjun ágúst og um miðjan ágúst, það fer eftir hitastigi í sjónum og átu, þá er oft ágætis fisk að fá hérna fram af Hellunni, svona á 15–20 föðmum, og hérna austur með nesinu, Siglunesinu. Og þá er hann uppi í sjó, vænn fiskur, og svo eru aftur kóðin niður við botninn. Maður gerði það oft, skal ég segja þér, að þegar maður sá að karlinn var farinn að hanga kyrr lengi, þá vissi maður það að hann var kominn á slóðina, fisk- urinn. Ég man eitt skipti snemma morguns, ég ætlaði að fara vestur á Fljóta- mið og ég sé að karlinn er kominn, hann fór alltaf svo snemma, 4 á nóttunni, 5 á morgnana, sem hann var kominn af stað, því hann var svo lengi að hafa sig út. Og hann er kominn hérna fram af Hellunni og ég hugsa með mér, það er best að renna bara til hans og kjafta við hann áður en maður fer vestur, heyra í honum hljóðið. Svo ég keyri til hans og þá er hann að inn- byrða ágætis þorsk, hann var með heilás, beitufæri, og ég segi: „Ertu að fá hann, vinur?“ Já, hann hélt það nú, sko, að hann væri að koma núna, þetta væri það fyrsta. Hann tók upp fiskinn og sýndi mér. Hann var hvítur, þú veist, hann var ekki rauður eins og oft er á grunnfiskinum. „Hann er að koma,“ sagði hann, „þetta er það fyrsta sem ég verð var við hann. Ég held að hann sé ..., ertu ekki með mæli?“ Ég segi jú. „Lónaðu hérna í kring um mig og vittu hvort þú sérð hann ekki.“ Og ég segi: „Það lóðar hérna upp í sjó,“ ég héldi að þetta væri bara áta. „Nei, það er fiskur í henni,“ sagði hann, „ég veit það.“ Svo það endar með því að ég fer fram fyrir hann, svona 20 faðma, ég var með slóða, og ég renni niður og í svona lóðn- ingar, það var svona dreift, eins og oft er hérna á grunnslóðinni, og ég flýti mér svo að hala upp aftur svona upp í miðjan sjó og þar er fiskur; ég fæ þarna 3 eða 4 fiska bara strax þarna á slóðann. Og karlinn hefur fylgst með mér, því hann er að reyna að kalla í mig, ég heyri hávaðann í honum, hann hafði svo hátt, ég heyrði í honum, en gat ekki greint orðaskil. Ég ansaði ekkert og ég renni þarna nokkrum sinnum, yfir- leitt stoppar þetta stutt við, maður þarf alltaf að vera að hreyfa sig. Svo ég er að þvælast þarna fram og aftur og karlinn er þarna yfirleitt kjurr bara, og ég er búinn að fá þarna ein 300 kíló þarna fyrir hádegi og þótti bara gott þá. Svo ég fer til hans að fá mér kaffisopa og kjafta við hann og þá er hann eitthvað voða dapur og segir að hann sé alveg steinhættur að taka og ég segi: „Ertu ekki með slóða, maður?“ Nei, hann var ekki með neinn slóða. Og ég segi: „Ég skal bara gefa þér slóða, ég á nógan slóða; ég er með sökku og öngla, ég læt þig bara hafa þetta, það er vonlaust fyrir þig að vera með helvítis heilásinn,“ segi ég, „því að hann tekur ekki beitu þegar hann er kominn upp í sjó, væni fiskurinn.“ Og hann horfir á mig og segir: „Ætlarðu að gefa mér þetta?“ „Já, já, þú mátt eiga þetta,“ segi ég, „en ef þú vilt endilega borga mér þá geturðu gert það einhvern tímann seinna, taktu bara við þessu.“ Svo ég leggst bara upp að honum þarna í blíðunni og læt hann hafa slóða, set krókana á fyrir hann og gekk alveg frá þessu, og hann sker heilásinn frá, hann var með svona rúlluræfil, fyrstu gerð. Og ég segi við hann: „Svo skaltu passa þig á því, vinurinn, að um leið og sakkan kemur í botn að rúlla upp í sjó aftur, vegna þess að annars ertu kominn með smáfiskinn á um leið.“ á, já, hann hélt það þyrfti nú ekki að kenna honum neitt. Svo kveðjumst við Gústi – alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og kristniboðinn Gústi alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og kristniboðinn Sigurður Ægisson

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.