Fréttablaðið - 19.08.2022, Síða 2
Þau Sólrún Arnarsdóttir og
Snorri Beck bjóða til veislu á
Garðatorgi í dag þegar Sólrún
býður upp á þarabar. Þar
verður spirulina-límonaði,
eða spirulaði, hlaup úr
þaraafurðum og ýmislegt
annað með þaraívafi en undir
mun Snorri spila á heima-
smíðaða hörpu.
arnartomas@frettabladid.is
MENNING „Þari er afurð sem er hægt
að vinna með á svo skemmtilegan
hátt og gera svo margt með,“ segir
textílhönnuðurinn Sólrún Arnars-
dóttir sem mun bjóða gestum Garða-
torgs í Garðabæ að kíkja á framandi
þarabar á meðan tónlistarmaðurinn
Snorri Beck leikur undir á heima-
smíðaða kristalhörpu.
„Það er hægt að þrívíddarprenta
hluti úr honum, það er hægt að lita
textíl með honum og svo framvegis.
Hann gefur aðeins aðra tengingu
inn í textíl en þessi venjulegu efni
sem við skoðum,“ segir Sólrún um
þarann.
Þau eru að kynna verkefni sem þau
hlutu styrk fyrir úr hvatningarsjóði
Garðabæjar.
„Ég ætla að kynna fyrir fólki þær
myndir sem þari getur tekið á sig
með þessum pop-up þarabar,“ segir
Sólrún. „Þari getur komið inn svo
skemmtilega, ekki bara við sjóinn
heldur líka í mataræði og alls konar
skemmtilegum drykkjum.“
Meðal þess sem býðst á þara-
barnum verður spirulina-límonaði,
eða spirulaði, hlaup úr þaraafurðum
og ýmislegt með þaraívafi.
Áhugi Sólrúnar á þaranum kvikn-
aði í textílhönnuninni. „Ég hef mest
verið að skoða lífræn efni og hef
mikið verið að nota þara í textíl-
verkefnin mín,“ útskýrir Sara og
tekur undir að Íslendingar hafi orðið
áhugasamari um þara.
„Þari er búinn að missa þessa
slepjulegu tengingu sem hann hefur
haft og svo stendur hann okkur
alltaf svo nærri. Mér finnst sjálfri
gaman að endurhugsa möguleikana
á þessum hlutum sem hafa alltaf
verið þarna og maður tekur varla
eftir lengur,“ segir Sara.
Snorri mun verða við hlið Söru
á Garðatorgi í dag og spila á sína
heimasmíðuðu hörpu sem er frönsk
uppfinning en hann kláraði smíðina
í janúar.
„Það voru tveir bræður sem fundu
hana upp á sjöunda áratugnum, svo
þetta er ekki mín uppfinning en
ég smíðaði hana sjálfur og ég held
að hún sé sú eina á landinu,“ segir
Snorri.
Hljómburði hörpunnar segir
Snorri svipa til þess þegar spilað er á
vínglös með blautum fingrum.
„Ég er með glerteina sem standa út
og ég strýk og fæ tóninn þannig. Svo
er eins konar laufblað eins og ég kalla
það framan á hljóðfærinu sem bæði
magnar upp hljóðið og framkallar
bergmál,“ segir Snorri Beck. n
Þari er búinn að missa
þessa slepjulegu teng-
ingu sem hann hefur
haft og svo stendur
hann okkur alltaf svo
nærri.
Sólrún Arnarsdóttir
Hraðar hendur
Mikill gangur er nú í hellulögn í Tryggvagötu við Grófina í Reykjavík enda Menningarnótt eftir aðeins tvo daga og betra að hafa stræti borgarinnar í lagi þegar
að henni kemur. Framkvæmdin er liður í endurnýjun Tryggvagötu. „Útkoman verður glæsilegri og aðgengilegri Tryggvagata með sólríku dvalarsvæði,“ segir
meðal annars á vef Reykjavíkurborgar. Um er að ræða þriðja áfanga í verkefni sem hófst fyrir framan Tollhúsið og Naustin árið 2020. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Millimál í fernu
VÍTAMÍN
& STEINEFNI
PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA
ÁN ÁN
Næring+ er á lista Sjúkratrygginga Íslands yfir niðurgreidd
næringarefni fyrir þá sem eiga gilda innkaupaheimild.
Heimasmíðaðir hörputónar
og þaraafurðir í Garðabæ
Sólrún og Snorri verða á Garðatorgi milli 18 og 19 í dag. MYNDIR/AÐSENDAR
kristinnhaukur@frettabladid.is
FLUG Áætlað er að Mack Rutherford,
sem reynir að verða sá yngsti til að
f ljúga umhverfis jörðina á smá-
flugvél, lendi á Reykjavíkurflugvelli
klukkan hálf fjögur í dag. Ruther-
ford, sem er breskur og belgískur
að uppruna, er aðeins 17 ára. Systir
hans Zara á núverandi met.
Hringferðin hófst í Sofíu í Búlg-
aríu 23. mars og er áætlað að henni
ljúki á sama stað 24. ágúst. Aðal-
styrktaraðili Rutherford, vef hýs-
ingarfyrirtækið ICDSoft, er í Sofíu.
Rutherford byrjaði á að f ljúga
yfir Grikkland suður til Afríku og
niður eftir austurströndinni allt til
eyjunnar Madagaskar. Þaðan austur
til Arabíuskaga þar sem hann þurfti
að dvelja í heilan mánuð til að reyna
að fá leyfi til að fljúga til Íran.
Eftir að hafa loks fengið höfnun
f laug Rutherford fram hjá Íran til
Indlands og Indókína. Þaðan norður
til Kóreu og Japan. Austur til Alaska
og niður með vesturströnd Norður-
Ameríku til Mexíkó og þá norð-
vestur til Kanada og Íslands. Héðan
er förinni heitið til Bretlands.
Rutherford hefur lent í ýmsum
ævintýrum. Meðal annars hafa
monsúnrigningar í Asíu og sand-
stormar í Afríku valdið vandræðum.
Sem og bilanir á vélinni. n
Ungur flugkappi lendir í Reykjavík
Rutherford reynir við heimsmet
systur sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
bth@frettabladid.is
NÁT TÚRA „Þessar sektir þyrftu
að vera í einhverju hlutfalli við
greiðslugetu brotlegra. Einkum
þegar um ræðir mjög alvarleg spjöll
á náttúru Íslands,“ segir Auður
Önnu Magnúsdóttir, framkvæmda-
stjóri Landverndar.
Erlendir ferðamenn, sem gengust
við brotum sínum eftir alvarlegan
utanvegaakstur í Vatnajökulsþjóð-
garði í byrjun vikunnar, greiddu
aðeins 250.000 krónur í sekt.
Rússnesk YouTube-stjarna tók
í fyrra upp eigin utanvegaakstur,
greiddi sekt en hagnaðist eigi að
síður vegna athæfisins. Hefur verið
rætt að sektir séu svo lágar að megi
kalla markaðskostnað ef um ræðir
myndefni.
Landvernd skipar sér ekki ein-
dregið í hóp þeirra sem vilja að allar
sektir vegna utanvegaaksturs verði
stórhækkaðar. „Fyrir venjulegan
túrista sem ekki veit betur, gæti
há sekt sett viðkomandi á hliðina,“
segir Auður.
Aukin varsla skipti einnig máli. n
Utanvegaakstur
kosti ríka meira fé
Auður Önnu
Magnúsdóttur,
framkvæmda-
stjóri Land-
verndar
2 Fréttir 19. ágúst 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ