Fréttablaðið - 19.08.2022, Page 8
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Stundum
er glasið
svo hálf-
tómt á
Íslandi
að meira
að segja
mávarnir
skaprauna
okkur.
En verkinu
er ekki
lokið og
við höld-
um áfram
að vinna
í þágu
barna og
barnafjöl-
skyldna.
Guðmundur
Gunnarsson
ggunnars
@frettabladid.is
ser@frettabladid.is
Góður túr
Leigubílstjórar á suðvestan
verðu horninu brosa hringinn
þessa dagana, enda uppgripin
ævintýraleg í iðandi ferða
mannastraumnum. Ekki
einasta hendast þeir með farþega
skemmtiferðaskipanna hringinn
í kringum sunnlenskar náttúru
perlur, heldur aka þeir þeim
gosþyrstu suður með sjó í slíkum
mæli, að stundum mætti ætla að
nýjasta stæði leigubíla á Íslandi
sé að finna við Meradali. Svo eru
bílstjórarnir beðnir um að bíða
bara í sosum eins og fjóra tíma á
meðan liðið skoðar sig um, en svo
er keyrt á ný í bæinn. Munu þetta
vera kallaðir „góðir túrar“ hjá
íslenskum leigubílstjórum í dag.
Enn betri túr
Enn betri túrar eru þó í boði.
Heyrst hefur af efnuðum ferða
mönnum sem gefa allt fyrir að
skoða gosið bæði úr lofti og af
láði. Þá er farið með einhverri
þyrlunni um morguninn og
dýrðin skoðuð úr lofti, en svo er
bara taxinn pantaður út á flug
völl, ekið í næstu útivistarbúð
og mannskapurinn fullgallaður
frá hvirfli og undir il, og loks
er stefnan tekin í Meradali þar
sem farþegarnir spóka sig um
á nýrunnu hrauni. Í ferðalok í
borginni skilja þeir útivistar
fötin eftir í taxanum, enda búnir
að hafa full not fyrir þau. Munu
þetta heita „mjög góðir túrar“. n
Ég slekk að jafnaði fimm sinnum á
vekjaraklukkunni áður en ég hef mig
á fætur. Það angrar mig. Svo fer ég út í
daginn án þess að borða morgunmat.
Vegna þess að ég vakna svo seint. Það
angrar mig líka.
Á leiðinni til vinnu hugsa ég strætó gjarnan
þegjandi þörfina. Þjónustan er léleg og það gerir
mig pirraðan. Eins og annað sem betur mætti
fara í okkar samfélagi.
Svo veldur veðrið mér vonbrigðum. Því það
kemur aldrei sumar!
Magnað hvernig öll þessi lítilfjörlegu vanda
mál hrannast upp hjá manni. Fullkomlega að
óþörfu. Uns þau byrgja manni sýn á heildar
myndina.
Þið þekkið þetta. Stundum er glasið svo hálf
tómt á Íslandi að meira að segja mávarnir skap
rauna okkur. Með því einu að vera til.
En svo gerist það af og til að eitthvað hristir
aðeins upp í þessu hversdagslega volæði öllu
saman og fær mann til að staldra við.
Úkraínska þingkonan Kira Rudik var á Íslandi
í vikunni. Til að minna á þær grimmilegu
aðstæður sem almenningur í Úkraínu býr við
nú þegar hálft ár er liðið frá því að innrás Rússa
hófst.
Lýsingar Kiru á nöturlegum veruleika í Úkra
ínu voru svo átakanlegar að mann setti hljóðan.
Ég efast um að þau séu mikið að velta sér upp
úr því hvort strætó haldi áætlun í Úkraínu um
þessar mundir. Undir gjammandi loftvarna
flautunum.
„Landið þeirra logar og þú ert að bölsótast
út í veðrið og vekjaraklukkuna,“ muldraði ég
við sjálfan mig á meðan ég hlustaði á þessa
mögnuðu konu tala af ástríðu um lífróðurinn í
Úkraínu.
Þessi heimsókn var þörf áminning. Um sam
hengi hlutanna og hvað það er sem vert er að
ergja sig yfir.
Staðreyndin er sú að flest vandamál á Íslandi
eru svo lítilfjörleg að það tekur því varla að
dvelja við þau. Það er ekki allt fullkomið hérna,
en fjandakornið, hér erum við þó örugg. Og
búum við velsæld.
Á morgun, um leið og ég slekk á klukkunni
í fimmta sinn, ætla ég að hugsa um hvað við
höfum það gott. Svo ætla ég að brosa hlýlega til
mávanna úr Garðabæ. Um leið og ég kem mér
þægilega fyrir í niðurgreiddum og upphituðum
strætisvagni. Aðeins seinna en venjulega.
Af því ég get það. n
Lítilfjörleg
vandamál
Í gær samþykktum við í borginni bráðaaðgerðir í leik
skólamálum í Reykjavík sem allar miða að því að auka
framboð á leikskólaplássum og flýta þannig inntöku
barna í leikskóla.
Á sama tíma stendur Reykjavíkurborg fyrir mestu
uppbyggingu í áratugi með Brúum biliðátakinu og
mun átakið skila 553 nýjum plássum á þessu ári. Tafir á
opnun nýrra skóla hafa leitt til óþolandi vandræða fyrir
fjölskyldur sem gerðu ráð fyrir að leikskólavist gæti
hafist snemma í haust. Það er miður og við höfum á
undanförnum dögum smíðað bráðaaðgerðaáætlun.
Aðgerðirnar eru þessar. Við flýtum opnun Ævin
týraborgar á Nauthólsvegi þannig að börnin geti hafið
aðlögun í fyrri hluta septembermánaðar. Við ætlum
líka að nýta laust húsnæði í Korpuskóla og Bakka í
Grafarvogi til að taka við nýjum börnum nú í haust.
Þarna skapast 160–200 ný pláss og markmiðið er að
opna eftir sex vikur. Við viljum líka skoða nýtingu á
frístundaheimilum fyrir leikskólabörn. Við ætlum að
fjölga dagforeldrum með því að hækka niðurgreiðslur
og fjölga þannig plássum. Tvær nýjar Ævintýraborgir
verða pantaðar í september en þær verða tilbúnar á
næsta ári.
Við verðum líka að einfalda líf foreldra. Það verður
að breyta verklagi við innritun í leikskóla þannig að
foreldrar þurfi ekki að hringja um alla borg í leikskóla
stjóra til að finna pláss. Það felst meðal annars í því að
samræma innritunarkerfi Reykjavíkur og sjálfstætt
starfandi leikskóla. Frábært starf fer fram á leikskólum
Reykjavíkur, þar eru þúsundir barna og hundruð
starfsfólks sem verja deginum saman til náms og leiks á
hverjum degi. Leikskólagjöldin eru með þeim lægstu og
systkinaafslættir eru afar ríflegir.
Við í meirihlutanum í Reykjavík heyrum skýrt
ákall foreldra um aðgerðir. Við höfum brugðist við
því með snöggu viðbragði. En verkinu er ekki lokið og
við höldum áfram að vinna í þágu barna og barnafjöl
skyldna. n
Snöggt viðbragð í
leikskólamálum
Einar
Þorsteinsson
formaður
borgarráðs
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 19. ágúst 2022 FÖSTUDAGUR