Fréttablaðið - 19.08.2022, Side 9

Fréttablaðið - 19.08.2022, Side 9
Í vikunni bárust af því fréttir, að börn fengju ekki inni í grunnskóla af því að mæður þeirra hefðu ekki rafræn skilríki. Þetta voru úkraínskar mæður, og aukalega var sagt að sumar þeirra fengju ekki skráð lögheimili af því að framtíðarhúsnæði væri ekki til. Þar með fengu þau börn heldur ekki skólavist. Ekkert af því sem hér er lýst er náttúrulögmál. Þetta eru manna- setningar. Mannskemmandi reglur. Sem hafa smám saman gerzt æ verri fyrir þá sem sízt skyldi. Rafræn skilríki Þar er nú alveg frábær uppfinning – eða hvað? Jújú og aldeilis, fyrir allan þorra fólks, mjög til þæginda og hægðar- auka. En ekki fyrir hina. Á undanförnum misserum hefur það orðið nánast að reglu, að þjónustu hins opinbera og stór- fyrirtækja er varla hægt að nálgast án rafrænna skilríkja. Um það eru fleiri dæmi en tóm gefst til að rekja hér. Hinir Hverjir skyldu nú ekki nota rafræn skilríki? Þeir sem eiga ekki snjallsíma. Og hverjir eru það? Til dæmis þeir sem hafa ekki efni á þessum rándýru græjum, sem þarf að endurnýja reglulega, af því að þær eru hannaðar þannig. Það er fátækt eða efnalítið fólk, sem lætur nauðsynjar hafa for- gang. Svo eru þeir sem hafa ekki til- einkað sér tæknina eða hreinlega skilja hana ekki. Ástæður þess geta verið veikindi, elli, fötlun, glöp eða hvað annað sem þið tínið upp úr hattinum, og er alls ekki nefnt hér þessu fólki til hnjóðs. Ég talaði á dögunum við konu sem vinnur með geðfötluðum, sumum mjög veikum. Þar verður reglulega krísa af því að það þarf rafræn skilríki til að fá mikilvæga þjónustu, jafnvel bráð- nauðsynleg lyf. Fólk í geðrofi notar ekki rafræn skilríki. Ég sleppi alveg hinum, sem vilja ekki eiga snjallsíma af persónu- verndarástæðum. Það er reyndar gilt sjónarmið enda eru þetta öflugustu persónunjósnatæki sem fundin hafa verið upp. Hitt er verra, að okkar viðkvæm- asta fólk geldur fyrir ákvarðanir sem einhver tók afþvíbara. Hvers vegna? Sem leiðir okkur að spurningunni: Hver tók ákvörðun um að líf okkar, aðgangur að þjónustu eða jafnvel lífsbjargarúrræðum, skyldi vera rafrænt? Og helzt ekkert annað? Svarið er sennilega „enginn“. Það varð svo hipp og kúl að vera rafrænn og við ætluðum að vera langt á undan öllum hinum. Þann- ig var stemningin fyrir fáeinum árum á Íslandi. Það eru enda bara fimmtán ár síðan fyrsti snjallsíminn kom á markað. Heimurinn breyttist þá. Mannskepnan hefur samt ekkert breytzt. Nema jú, við höfum breytt hegðun okkar umhugsunarlítið. Af því að tæknin hefur togað okkur þangað. Enginn veit samt ennþá hvers vegna fátækt fólk, gamalt eða veikt þarf að kaupa smátölvur af stór- fyrirtækjum til þess að geta fengið eðlilega opinbera þjónustu. Sem er alvarlega hliðin á þessum peningi: Með reglum sínum hefur ríkisvaldið þvingað fólk til þess að kaupa tæki, sem það ýmist hefur ekki efni á, skilur ekki eða vill ekki eiga. Til að hafa aðgang að þjónustu, sem var sjálfsögð og auðsótt fyrir tuttugu árum. Um þetta hefur aldrei verið rætt í kosningum. Aldrei nokkru sinni. Á einhverjum tímapunkti virðist kerfið hins vegar hafa farið á sjálfstýringu og þá sjaldan ein- hver gerir athugasemd er svarið kunnuglegt: „Tölvan segir nei.“ Hælið Með þessum orðum andmæli ég ekki tækniframförum, bara alls ekki. Þær eru margar hverjar stór- kostlegar. Ég geri hins vegar alvar- lega athugasemd við að ákvarðanir ríkisvaldsins um þjónustu við fátæka og veika byggist á tækni sem engin þörf knýr á um. Börn á flótta komast ekki í skóla út af tölvunni. Veikt fólk þjáist vegna tölvunnar. Fátækt fólk getur ekki orðið almennilegir þátttakendur í sam- félaginu af því að það getur ekki keypt sig inn í nýtilkomið rafrænt kerfi hins opinbera. Það eru ekki náttúrulögmál, heldur mannanna verk. Þegar ég velti þessum þönkum í hausnum á mér verður mér æ oftar hugsað til lags með hljómsveitinni Fun Boy Three, The lunatics have taken over the asylum. Kveðskapurinn í upphafi er ekki aðeins merkilegur vegna inni- haldsins, heldur líka þess hversu höfundur virðist vera svag fyrir innrími. I see a clinic full of cynics who want to twist the people’s wrists. Ég sé hér víða vitleysinga sem vilja snúa upp á úlnliði. Vitleysingar er ljótt orð sem ætti helzt ekki að nota. Þeir hafa samt tekið yfir á hælinu að þessu leyti. Og það er mikilvægt verkefni annarra að leiðrétta vitleysuna. n Vitleysingarnir hafa tekið völdin Karl Th. Birgisson n Í dag Hver tók ákvörðun um að líf okkar, aðgangur að þjónustu eða jafnvel lífs- bjargarúrræðum, skyldi vera rafrænt? DAGSKRÁ 13:15 - 14:30 14:30 & 16:00 13:00 - 17:00 Laganemar endurflytja mál í dómsal 101 sem leiddu til aðskilnaðar dóms- og framkvæmdavalds og stofnunar héraðsdómstólanna. Leiðsögn um hús Héraðsdóms Reykjavíkur í boði Péturs Ármannssonar arkitekts. Krakkahorn í dómsal 102 þar sem hægt verður að máta dómaraskikkjur og ýmis fróðleikur í boði. Kaffi í boði Héraðsdómur Reykjavíkur | Dómhúsið við Lækjartorg | heradsdomstolar.is Opið hús í Héraðsdómi Reykjavíkur Menningarnótt laugardaginn 20. ágúst. kl. 13-17 í tilefni 30 ára afmælis héraðsdómstóla á Íslandi 1. júlí sl. 1992-2022 FÖSTUDAGUR 19. ágúst 2022 Skoðun 9Fréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.