Fréttablaðið - 19.08.2022, Síða 16

Fréttablaðið - 19.08.2022, Síða 16
Mér hefur verið einstaklega vel tekið í skólanum og ég finn fyrir miklum stuðn- ingi frá starfsfólki í FB. 2 kynningarblað 19. ágúst 2022 FÖSTUDAGURskólar og námskeið Selma Ósk Jónsdóttir er 33 ára. Hún ákvað eftir nokkuð langt hlé að setjast aftur á skólabekk til að búa til betri framtíð fyrir sig og son sinn. Selma stundar nám á skjúkraliðabraut við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti. elin@frettabladid.is Selma Ósk ákvað eftir grunnskóla að fara í Borgarholtsskóla en eftir einn vetur fann hún að skólinn átti ekki við hana svo hún hætti. Núna mörgum árum seinna kom áhug- inn aftur og þar sem Selmu hefur alltaf þótt gaman að vinna með fólki og kynntist starfi sjúkraliða þegar hún starfaði við aðhlynn- ingu ákvað hún að sjúkraliðinn væri rétta námið. „Ég hafði mikinn áhuga á að mennta mig á heil- brigðissviði. Ég hóf námið í janúar 2021 og stefni á að klára það fyrir jólin 2024,“ segir hún. Selma hefur ekki unnið með náminu en stefnir á það í haust og að kynnast starfinu betur. „Ég veit að námið mun gefa mér fjölbreytni í starfi og möguleika á viðbótar- námi á háskólastigi. Diplómanámið í Háskólanum á Akureyri heillar mig mjög mikið og ég stefni klár- lega á það í framtíðinni,“ segir hún. Byrjaði á réttum tíma „Ég finn að námið á mjög vel við mig. Ég held að ég hafi byrjað á hárréttum tíma því mér gengur mjög vel. Vissulega var ég svolítið kvíðin fyrst yfir að setjast aftur á skólabekk en eftir fyrstu önn fann ég að ég væri á réttri hillu. Þetta er virkilega áhugavert nám. Mér hefur verið einstaklega vel tekið í skólanum og ég finn fyrir miklum stuðningi frá starfsfólki í FB,“ segir hún og bætir við að það sé ekki allt því námið hafi einnig gefið henni mikið sjálfstraust varðandi náms- getu. „Það var lítið áður en ég byrjaði svo þetta hefur sannarlega komið á óvart. Ég var búin að mikla það mikið fyrir mér að fara aftur í skóla en mér finnst allt mun betur sett upp í dag heldur en þegar ég var yngri,“ segir hún. Góður grunnur Samkvæmt því sem kemur fram á heimasíðu Sjúkraliðafélags Íslands er sjúkraliðanám hagnýtt starfs- nám. „Tilgangur námsins er að und- irbúa nemendur undir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir bæði á heilbrigðis- stofnunum og á heimilum fólks þar sem reynir mikið á samskiptafærni og siðferðisvitund starfsmanna. Í náminu er rík áhersla lögð á sam- vinnu við starfsfólk og stjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Sjúkraliða- nám getur verið góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðis- vísindum,“ segir á heimasíðunni. Sjúkraliðanám er 206 eininga nám með námslok á 3. hæfniþrepi. Námið skiptist í almennar greinar, heilbrigðisgreinar og nám í sér- greinum sjúkraliðabrautar. Nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar er bæði bóklegt og verklegt nám í skóla og starfsnám á heilbrigðis- stofnunum. Sjúkraliðanám tekur að jafnaði þrjú ár eða sex annir. Diplómanám á Akureyri Selma hefur áhuga á frekari menntun í Háskólanum á Akureyri þegar hún lýkur núverandi námi. HA býður upp á fagnám til dipl- ómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða í öldrunar- og heimahjúkrun. Þetta er 60 ECTS-eininga fagnám fyrir starfandi sjúkraliða á grunnstigi háskólanáms til diplómaprófs á mismunandi kjörsviðum. Náminu er dreift á fjögur misseri eða tvö ár og er því gert ráð fyrir að samhliða náminu séu nemendur í sjúkraliða- stöðum innan öldrunar- og heima- hjúkrunar. Námið hefur það markmið að mennta sjúkraliða til leiðandi starfa innan heilbrigðisþjónustu með viðbótarnámi á grunnstigi háskólanáms í mismunandi sér- hæfingu. Megináherslur námsins eru að auka klíníska færni, styrkja fagmennsku sjúkraliða hvað varðar samskipti, fræðslu- og stjórnunar- hæfni og víkka starfsmöguleika þeirra innan sem utan heilbrigðis- kerfisins. n Fór í sjúkraliðanám fyrir betri framtíð Selma Ósk og systir hennar Harpa Marín. Selma er afar ánægð með að hafa sest aftur á skólabekk. MYND/AÐSEND Hjá okkur getur þú: Lært nýtt og spennandi tungumál Krufið málefni sögu og menningar í góðum félagsskap Eflt stafræna hæfni Lært að skrifa betri texta og miðlað honum Fundið leiðir til að bæta eigin hamingju og heilbrigði ENDURMENNTUN.IS Námskeiðsframboð Endurmenntunar er engu líkt. Kynnst nýjum og spennandi ferðakostum Eflt fagþekkingu þína Styrkt þig í samskiptum Kynnst landi og þjóð á nýjan hátt Öðlast betri skilning á gæðamálum Og mikið meira til Hvað ætlar þú að gera í haust?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.