Fréttablaðið - 19.08.2022, Síða 20
Það sem mér
fannst standa upp
úr var hvað nemendur
fengu góðan tíma í að
æfa aðferðir og tækni.
Eva Mattadóttir
Ingibergur Þorkelsson
er skólastjóri Dáleiðslu-
skóla Íslands og höfundur
bókarinnar Hugræn endur-
forritun.
Ingibergur segir um framtíð geð-
lækninga: „Á sama tíma og lækna-
vísindin hafa tekið stórstígum
framförum á undanförnum ára-
tugum verður ekki hið saman sagt
um geðlækningar. Geðlæknar víða
um heim hafa litið öfundaraugum
til kollega sinna í öðrum greinum
læknisfræðinnar sem lækna fólk
og senda það út í lífið á meðan þau
sem eru að fást við kvíða, þung-
lyndi og önnur andleg veikindi eru
oft á lyfjum ár eftir ár sem deyfa
einkennin án þess að lækna.
Orsök flestra þessara veikinda
eru áföll sem ekki hefur tekist að
vinna úr. Afleiðingar þeirra eru
geymdar í undirvitundinni og
valda meðal annars kvíða og þung-
lyndi. Vinna með einkennin og
lyf við þeim skila ekki árangri þar
sem nauðsynlegt er að fjarlægja
rótina úr undirvitundinni. Undir-
vitundina er ekki hægt að nálgast
með samtalsmeðferðum.“
Hugvíkkandi og
ofskynjunarefni
„Nú líta margir til hugvíkkandi og
ofskynjunarefna sem bannað var
að rannsaka fyrir mörgum áratug-
um en eru að knýja dyra á ný. Sum
svæði í Bandaríkjunum hafa á ný
leyft rannsóknir og í Bretlandi og
Sviss og ef til vill víðar hafa fengist
leyfi til takmarkaðra rannsókna. Á
Netflix eru að minnsta kosti tveir
þættir eða þáttaraðir um þessar
rannsóknir og efnin sjálf.
Hugvíkkunar og ofskynjunar-
efnin hafa þá náttúru að opna
aðgang að undirvitundinni, sem
við höfum annars fá tækifæri til að
heimsækja. Með stórum skömmt-
um er fólki dembt inn í aðstæður
þeirra áfalla sem eru orsök kvíðans
eða þunglyndisins. Allar varninar
sem byggðar voru upp til að hefta
aðgang að þessum erfiðu tilfinn-
ingu falla.
Sumir læknast af kvíða og þung-
lyndi við þessa reynslu, aðrir fá
tímabundna lausn eða enga eins
og sýnt er á Netflix. Með takmörk-
uðum rannsóknum hefur einnig
verið sýnt fram á að með því að
taka litla skammta daglega megi
bæta líðan margra.
Milljarðamæringar heimsins
eru margir tilbúnir með fjárfest-
ingarnar í þessum nýja iðnaði og
kröfur voru uppi um að leyfa efnin
aftur í nágrenni við fund Alþjóða-
efnahagsráðsins í Davos í Sviss
í maí og margt gert til að vekja
athygli á málstaðnum.“
Mun betri meðferð til
Ingibergur heldur áfram: „Það er
nú þegar til önnur og betri með-
ferð til að ná árangri í meðferð
fjölmargra andlegra sjúkdóma, þar
með talið kvíða
og þunglyndis.
Hugræn endurforritun: Sú
meðferð nýtir meðfædda eigin-
leika til eigin lækningar og á mun
sársaukaminni hátt en að demba
fólki inn í upplifun áfallanna.
Meðferð sem kunnáttufólk
leiðir skilar ótrúlegum árangri á
stuttum tíma. Venjulega eru þrjú
skipti, hvert 2-3 klukkutímar, nóg
til að gjörbreyta lífi fólks til hins
betra. Meðferðarþegar geta kosið
að upplifa ekki tilfinningarnar
sem fylgdu áföllunum á meðan
þær eru leystar upp og stjórna
meðferðinni sjálfir með aðstoð
dáleiðandans.
Í Hugrænni endurforritun er
notuð dáleiðsla til að nálgast
undirvitundina og okkar
innri lækningamátt og ná
sambandi við innri styrk
meðferðarþegans.
Ég samdi Hugræna
endurforritun eftir að hafa
unnið með aðrar meðferðir,
svo sem Ego State Therapy,
Subliminal Therapy og
Trauma Therapy. Ég tók það
sem virkaði best úr öllum
þessum meðferðum og bætti
við þekkingu úr nýjustu tauga-
fræðirannsóknum. Ég gaf út
kennslubókina haustið 2020. Ég
hef síðan útskrifað tugi klínískra
dáleiðenda og mörg þeirra starfa
í dag við dáleiðslumeðferð og
hugræna endurforritun og hafa
stofnað Félag klínískra dáleiðenda,
www.dáleiðslufélagið. is.
Ég er afar stoltur af þessum
dáleiðendum. Þau eru að ná frá-
bærum árangri og sanna þar með
að þetta eru ekki bara hæfileikar
eins manns, eins og sumir héldu,
heldur er hægt að læra fagið á
nokkrum mánuðum að því marki
að geta unnið afar árangursríkar
meðferðir.“ n
Framtíð geðlækninga á Íslandi
Ingibergur
Þorkelsson
er skólastjóri
Dáleiðsluskóla
Íslands.
MYnd/ÁSTA
KRISTJÁnSdÓTTIR
Eva María Mattadóttir hefur
mörg járn í eldinum. Hún er
markþjálfi, þjálfari hjá Dale
Carnegie og sér um hlað-
varpið Normið með Sylvíu
Briem Friðjónsdóttur, svo
eitthvað sé nefnt.
Eva var spurð um reynslu sína af
Dáleiðsluskóla Íslands og Hug-
rænni endurforritun. Hún sagði:
„Ég hafði lengi haft áhuga á
undirvitundinni og því sem henni
tengist. Ég fór því í Dáleiðsluskóla
Íslands. Ég er búin að ljúka grunn-
náminu og stefni á að ljúka náminu
á næsta ári með því að taka fram-
haldsnámið í meðferðardáleiðslu
og Hugrænni endurforritun.
Grunnnámið kom mér skemmti-
lega á óvart. Það sem mér fannst
standa upp úr var hvað nemendur
fengu góðan tíma í að æfa aðferðir
og tækni. Að mínu mati er æfingin
eitt það mikilvægasta sem nám
inniheldur, og í Dáleiðsluskóla
Íslands fær maður gott og faglegt
rými til að æfa sig. Það er nefnilega
alveg krefjandi þegar á hólminn
er komið að læra að koma mann-
eskju í djúpt slökunarástand
og dáleiðslu. Fyrst fann ég fyrir
smá stressi eins og eðlilegt er, en
kennararnir og kennsluefnið hélt
virkilega vel utan um hópinn.“
Hreinsaði stíflur og flækjur
„Ég fór svo í meðferðartíma í Hug-
rænni endurforritun hjá Sigur-
björgu Kristjánsdóttur, klínískum
dáleiðanda frá Dáleiðsluskóla
Íslands. Ég treysti henni strax
fullkomlega og komst í djúpt
dáleiðsluástand þar sem Sigur-
björg hjálpaði mér að hreinsa til
alls konar stíflur og flækjur í
undirvitundinni sem ég hafði
ekki hugmynd um að væru að
trufla daglegt líf. Ávinningurinn
af meðferðinni var stórkostlegur!
Núna nokkrum mánuðum seinna
er ég enn að melta það sem átti
sér stað í tímanum. Ég á bókaðan
annan tíma hjá Sigurbjörgu og
hlakka mikið til, svo stórkost-
legur var ávinningurinn úr fyrsta
tímanum.“
Dáleiðsla og Hugræn endurfor-
ritun er ólík öðrum leiðum sem
Eva hefur prófað í sjálfsvinnu
sinni, en klárlega leið sem hún
mun halda áfram að nýta sér. „Ég
horfi mikið á heimildaþætti og les
rannsóknir sem sýna að hugurinn
er öflugri en við héldum og það er
eitthvað alveg einstakt við það að
geta sest í stól, náð fullkominni
slökun og hreinsað burt allt það
sem hefur haldið aftur af manni
í lífinu. Ég er ákveðin í að fara
sjálf í framhaldsnámið, einfald-
lega vegna þess að ég hef fundið
ávinninginn sjálf og séð annað fólk
uppskera frábært líf í kjölfar með-
ferðarinnar.“ n
Ávinningurinn af meðferðinni var stórkostlegur
Eva Mattadóttir
er markþjálfi,
þjálfari hjá Dale
Carnegie og sér
um hlaðvarps-
þáttinn Normið
ásamt Sylvíu
Briem Friðjóns-
dóttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERnIR
Það er nú þegar til
önnur og betri
meðferð til að ná árangri
í meðferð fjölmargra
andlegra sjúkdóma, þar
með talið kvíða og
þunglyndis.
Ingibergur Þorkelsson
6 kynningarblað 19. ágúst 2022 FÖSTUDAGURskólar og nÁmskeið