Fréttablaðið - 19.08.2022, Side 28
Hvað er um að vera í næstu viku? n Netfyrirbærið
n Uppskriftin
Stundum
mæta
eigendur
með
hundana
sína og þá
hafa þeir
lagst við
hliðina á
mér í miðri
hugleiðslu.
Klassíska súkkulaðikakan með
smjörkremi á alltaf við. Hún hentar
í afmæli fyrir alla aldurshópa, í eftir-
rétt í matarboði eða bara sem gleði-
gjafi í hversdeginum. Hún er nokkuð
einföld í framkvæmd og alltaf góð.
Súkkulaðibotnarnir
3 bollar hveiti
2 bollar sykur
3 egg
2 bollar súrmjólk
1 bolli matarolía
5-6 msk. kakó
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
2 tsk. vanilludropar
Blandið hráefnunum saman, skiptið
deiginu í tvö form og bakið við
180°C í 23 mínútur.
Gott er að stinga með prjóni í
kökuna og fylgjast vel með fram-
vindunni, þar sem ofnar eru mis-
munandi.
Athugið að setja ekki kremið
á kökuna fyrr en botnarnir hafa
kólnað!
Smjörkrem
370 g flórsykur
220 g smjör
4 msk. kakó
2 msk. rjómi
2 tsk. vanilludropar
1 msk. kalt kaffi
Þeytið hráefnin í smjörkremið
saman og berið á kalda botnana.
Njótið vel!
Klassísk kaka sem gaman er að baka
Komið úr skúrnum!
Bryggjan Brugghús,
Grandagarði kl. 14.00-23.00
Hvað?
Komið úr skúrnum! Bílskúrs-
hljómsveitir landsins koma út
úr bílskúrum og troða upp fyrir
gesti og gangandi í Bruggsalnum
á Bryggjunni. Rokksveitin Rock
Paper Sisters lokar kvöldinu
með stórsöngvarann Eyþór Inga
í fararbroddi og rokkar fram að
f lugeldasýningunni.
Fyrir hvern?
Rokkþyrstir og svangir ættu
að leggja leið sína á Bryggjuna,
þar sem má nálgast rokk, popp,
pönk og blús í bland. Staðurinn
selur mat og drykk meðan á
skemmtun stendur. Rúsínan í
pylsuendanum er svo auðvitað
einstakt útsýni yfir glæsilega
f lugeldasýningu Menningar-
nætur í lok tónleika. Er hægt að
biðja um meira?
Það kostar ekki krónu inn á
bílskúrsbandaballið, og allir
eru velkomnir á meðan húsrúm
leyfir.
Fjör á Fiskislóð
Fiskislóð 24 kl. 14.00-22.00
Bjórland, Öldur, Urð og Osta-
búðin standa fyrir sælkeraveislu
og skemmtidagskrá á Grand-
anum.
Hvað?
Einstakt tækifæri fyrir svanga
malla og tónþyrst eyru til að
drekka í sig menningu í ein-
stöku umhverfi. Andy Svart-
hol, Lister, Teitur Magnússon,
Cell7 og Drungi leika fyrir gesti.
Handverksbjór og mjöður f læðir
niður kverkar gesta og fram eru
reidd gæsalæri, f iskisúpa og
langlokur. Unaður!
Fyrir hvern?
Aðgengi að svæðinu er með
besta móti og gott fyrir þá sem
koma akandi í miðborgina að
leggja bílnum á Grandanum,
byrja og enda daginn þar. Gott
aðgengi er fyrir hjólastólanot-
endur. Veitingasalan hefst
klukkan 12.00 og tónleikadag-
skrá tveimur tímum seinna. n
Margar stjörnur hafa skotist upp
á himin frá því að Idol stjörnu-
leit birtist fyrst á skjáum lands-
manna árið 2003 en fimmta
serían hefur göngu sína á Stöð 2
í haust eftir þrettán ára hlé.
Heil kynslóð af ungum
a f þrey inga rþy r st u m
áhorfendum hefur fæðst
á þessum tíma, sem man
ekki eftir idol-æðinu
sem greip um sig meðal
Íslendinga í upphaf i
aldarinnar. Kynnarnir
sem hjálpuðu dómnefnd-
inni að leita að skærustu
stjörnum Íslands á sínum
tíma voru Simmi og Jói en
þeir voru á þeim tíma vin-
sælustu skemmtikraftarnir
meðal ungmenna, þökk sé
þætti þeirra 70 mínútur.
Kynnirinn að þessu sinni
verður Arnar Gauti Arnarson,
þekktur sem Lil Curly,
sem er ein þekktasta
TikTok-stjarna Íslands
með um 1,3 milljónir
fylgjenda.
Valið er til marks
um breytta tíma og
kemur ekki á óvart.
Ljósvakamiðlar þekkja
það ef laust betur en
margir að stjörnur í dag
verða ekki til á Popp Tíví
heldur á miðlum eins og
TikTok. n
Stjarna frá TikTok — ekki Popp Tíví
22. ágúst
mánudagur
Bæjarhátíð
Suðurnesjabær 22.-28. ágúst
Ljósaganga, litahlaup grunn-
skólanema, pottakvöld karla og
kvenna í sundlaugum Suður-
nesjabæjar, harmónikuball og
hnallþórukeppni í Miðgarði eru
meðal þess sem dúkkar upp á
dagskrá bæjarhátíðar í Suður-
nesjabæ þetta árið. Þá verður
partíbingó, sagnakvöld, dorg-
veiðikeppni, flugeldasýning,
bílabíó og ball í samkomuhús-
inu í Sandgerði. Upplýsingar um
hátíðina má finna á vef Suður-
nesjabæjar.
Hinsegin myndlist
Bókasafn Hafnarfjarðar kl 9.00
Sölusamsýning hinsegin lista-
manna stendur yfir í Glerrým-
inu, galleríi bókasafns Hafnar-
fjarðar til 31. ágúst. Sýningunni
er ætlað að auka sýnileika
hinsegin listafólks þvert á miðla
og viðfangsefni.
23. ágúst
þriðjudagur
Karólína vefari
Árbæjarsafn kl. 10.00
Sýning stendur yfir í Árbæjar-
safni um Karólínu Guðmunds-
dóttur, fædda 1897, sem lærði
vefnað í Kaupmannahöfn og rak
um áratugaskeið vefstofu við
Ásvallagötu í Reykjavík. Þar óf
hún húsgagnaáklæði og glugga-
tjöld fyrir stofnanir, fyrirtæki og
heimili.
24. ágúst
miðvikudagur
Flamingo Wednesday
Pablo discobar
Stórsöngvarinn Seth Sharp
bregður sér í hlutverk plötu-
snúðs og heldur uppi stuðinu
á Pablo Discobar á miðviku-
dögum í allt sumar. Diskóbarinn
lofar kokteilum og stuði á dans-
gólfinu.
Jökull Helgi Sigurðsson – sýning
Listamenn Gallerí kl. 09.00
Fyrsta einkasýning Jökuls Helga
Sigurðssonar opnar á Menn-
ingarnótt og stendur opin til
4. september. Verkin eru frá
síðustu þremur árum.
25. ágúst
fimmtudagur
Spilaborðið
Bókasafn Seltjarnarness kl.
10.00
Alla fimmtudaga er boðið upp
á spil og púsl fyrir allan aldur á
Bókasafni Seltjarnarness. Allir
eru velkomnir og aðgangur að
sjálfsögðu ókeypis.
Sporbaugur
Listasafn Reykjanesbæjar kl.
12.00
Gabríela Friðriksdóttir og Björn
Roth, eru bæði vel þekkt fyrir
ævintýralegan myndheim þó
með ólíkum hætti sé. Ein kyn-
slóð listamanna skilur þau að en
á sama tíma tilheyra verk þeirra
sömu fjölskyldu. Bæði eru þau
þekkt fyrir súrrealíska túlkun
á heiminum, ásamt pönkuðu
viðhorfi til heimsins. Sýningin
er gerð sérstaklega fyrir rými
Listasafns Reykjanesbæjar.
Thelma Björk Jónsdóttir jógakenn-
ari hefur kennt frá því að hún var
í jóganámi árið 2014. Hún á þrjá
stráka en áhugi hennar kviknaði
eftir að hún fór í meðgöngujóga og
ákvað hún að kafa dýpra eftir það.
Hún leiðir hugleiðslu á Óðinstorgi í
dag klukkan 10. Um er að ræða sam-
starfsverkefni við Reykjavíkurborg
en í dag er síðasta hugleiðslan sem
hún leiðir úti í sumar.
Thelma hefur leitt vikulega hug-
leiðslu með Systrasamlaginu í rúm
fjögur ár. Hún segir fólk á öllum
aldri hafa mætt í tímana; börn, full-
orðið fólk, meira að segja hunda.
„Þetta er klárlega fyrir alla,“ segir
hún og bætir við. „Stundum mæta
eigendur með hundana sína og þá
hafa þeir lagst við hliðina á mér í
miðri hugleiðslu.“
Fólk er hvatt til að mæta með
börnin.
„Börnum gengur ótrúlega vel að
hugleiða, þau eru í raun algjörir
snil l inga r,“ út sk ý r ir Thelma
aðspurð um hvernig börnum gangi
að sitja kyrr í hugleiðslu.
Thelma hefur kennt börnum jóga
í Hjallastefnunni í Reykjavík, allt frá
eins árs börnum í ungbarnadeildum
upp í tólf ára.
„Þau eru svo fljót að læra möntrur
og söngva. Þetta kveikir á svo mörg-
um skynfærum.“ Oft er það eldra
fólkið sem hefur ákveðið fyrir fram
að það geti ekki hugleitt.
„Það hittir oft á vegg en börn eiga
auðveldara með að hugleiða. Ég
held að tengingarnar séu styttri hjá
þeim.“ Hún segir hugleiðslu einfalda
í grunninn. Hún snúist um að þjálfa
hugann í að vera til staðar. Sumir
eigi erfitt með að sitja í þögninni
en Thelma reynir þá leiða fólk með
því að tala í gegnum hugleiðsluna og
syngja með hópnum.
„Þetta er bara æfing. Ég tek ekki
sjálfa mig of hátíðlega í þessu. Þetta
má vera gaman og fyndið.“ n
Hugleiðsla má vera skemmtileg og fyndin
Thelma Björk segir börn fljót að læra möntrur og söngva.
Þau séu í raun snillingar í hugleiðslu.
Nína Richter
ninarichter
@frettabladid.is
Ingunn Lára
Kristjánsdóttir
ingunnlara
@frettabladid.is
19. ágúst 2022 FÖSTUDAGUR