Fréttablaðið - 19.08.2022, Page 36

Fréttablaðið - 19.08.2022, Page 36
Um hvað reiddust goðin, þá er hér brann hraunið, er nú stönd- um vér á? Snorri goði Eldgosið í Meradölum kyndir vel undir þeirri gömlu spurn­ ingu hvað hafi nú reitt goðin til reiði og þá var algóður Guð ekki langt undan þegar Gunnar Þorsteinsson, löngum kenndur við Krossinn, stillti gosinu upp sem reiði Guðs yfir stuðningi þjóðkirkjunnar við hinsegin samfélagið. thorgrimur@frettabladid.is „Biskupsritari segir Jesú vera homma og trans. Glerárkirkja er hinsegin og nú gýs á Reykjanesi. Eru menn hissa?“ spurði Gunnar Þorsteinsson í Krossinum þegar hann lagði fram, þvert á öll jarð­ vísindi, sínar skýringar á upphafi eldgossins í Meradölum í byrjun ágúst. Það er langt í frá nýjung að tengja eldsumbrot á Íslandi við guðlega reiði. Í Kristni sögu er frá því sagt að þegar deilt var á Þingvöllum um hvort Íslendingar skyldu taka kristni hafi maður komið hlaupandi og tilkynnt að jarðeldur væri kom­ inn upp í Ölfusi. „Eigi er undur í að goðin reiðist tölum slíkum,“ sögðu þá heiðnir menn. Mælti Snorri goði Þorgrímsson þá hin fleygu orð: „Um hvað reiddust goðin, þá er hér brann hraunið, er nú stöndum vér á?“ En kristnir menn tóku upp þráð­ inn frá heiðnum og túlkuðu eldgos gjarnan sem reiði Guðs almáttugs. Á 17. og 18. öld var oft talað um eld­ Þúsund ára spurning um guðlegar geðsveiflur vaknar Guð almátt- ugur á það til að skipta skapi og var heldur reiður hjá grínurunum í Monty Python þegar þeir leituðu helga gralsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ SAMSETT Gunnar Þorsteinsson fann sínar skýringar á eldgosinu í Meradölum í Gamla testamentinu frekar en jarðfræðibókum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Pétur Eggerz lék síra Jón Steingríms- son í einleiknum Eldklerknum en sá var ekki í vandræðum með að rekja eldsumbrot síns tíma til reiði Guðs. benediktboas@frettabladid.is Lögreglan á Suðurnesjum hefur ákveðið að gera eins og Kvik­ myndaeftirlit ríkisins og setja gulan miða á eldgosið í Meradölum sem er nú bannað börnum innan 12 ára. En af hverju að láta staðar numið þar? Fyrst löggan er byrjuð gæti hún vel brett upp ermar og bannað hitt og þetta, eins og til dæmis … n Þriðju tegundina Bragðarefur er með því vinsælasta í ísbúðum landsins og nú er lag fyrir lögregluna á Suðurnesjum að kvelja börnin aðeins með því að banna fleiri en tvær nammitegundir í bragðarefi þeirra. n Sumarið Sumarið sem aldrei kom verður trúlega lag rigningarsumarsins mikla árið 2022. Ætli lögreglan á Suðurnesjum hafi ekki talið réttast að halda aftur af krökkum að leik með því að banna sólina? Sem hafði reyndar áhrif á fleiri en blessuð börnin. n Kvöldsund Börn ókunnugra eru óþolandi. Frek og yfirleitt með læti. Lögreglan á Suðurnesjum getur loksins lægt öldurnar í laugunum með banni við kvöldsundi barna yngri en 12 ára. Þá verður loksins hægt að slaka bara á í pottinum. n Millilandaflug Það er algjör óþarfi að börn séu að fljúga til útlanda. Keflavíkurflugvöllur er í umdæmi Lögreglunnar á Suðurnesjum og ætti auðvitað að banna börnum sem ekki eru orðin 12 ára að fljúga til útlanda. Nema kannski á þriðjudögum. n Krísuvíkurleið Vá. Þarna er tækifæri til að banna börnum að fara þessa leið. n Bláa Lónið Segir sig sjálft. Fleira sem löggan ætti að banna börnum Góðann daginn, eru nokkuð börn yngri en tólf ára í bílnum? FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hægri postulinn Rush Limbaugh aðhyllist forna eldfjallafræði með trúarlegu ívafi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY gos sem áminningu um yfirvofandi dómsdag. Hannes Finnsson lýsti Heklu­ gosinu 1766 sem „reiði Guðs“ og Jón Steingrímsson eldklerkur gaf í skyn að íslenskir sveitungar hefðu fram­ kallað gosið með syndum sínum, „því að Drottinn, Guð þinn, er eyð­ andi eldur, afbrýðisamur Guð“. Íslendingar hafa raunar ekki verið einir um að tengja íslensk eld­ gos við reiði Guðs. Þegar Eyjafjalla­ jökull gaus árið 2010 lögðu guð­ spekingar víða um heim orð í belg um það hverju Drottinn gremdist svo mjög. Presturinn John Hagee taldi Guð vera að lýsa yfir óánægju sinni með það að Bretar hefðu bannað aug­ lýsingar ísraelskrar ferðaskrifstofu sem sýndu hluta af hernámssvæð­ inu í Palestínu. Sérfræðingar rússnesku rétt­ trúnaðarkirkjunnar töldu Guð vera að refsa Íslendingum fyrir stuðning þeirra við réttindi sam­ kynhneigðra og umburðarlyndi gagnvart „nýheiðnum“ hreyfingum. H æ g r i s i n n a ð i b a n d a r í s k i útvarpsþáttastjórnandinn Rush Limbaugh komst að þeirri niður­ stöðu að gosið í Eyjafjallajökli væri mótmæli Guðs gegn samþykkt Bandaríkjaþings á heilbrigðisfrum­ varpi Baracks Obama. Og enn er ósvarað þúsund ára gamalli spurningu Snorra goða: Hverju reiddust goðin svo mjög er hraunið brann sem nú stöndum við öll á? n Björn Þorfinnsson ritstjóri DV „Ég er byrjaður á The Sandman! Einn þáttur búinn. Hef ekki lesið neitt og skil ekki neitt en er samt til í þetta,“ segir Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV, sem hefur farið með himin- skautum í umfjöllun um laun landsmanna síðastliðna daga. „Svo er ég að „slow-horfa“ á The Vikings. Max einn, tvo þætti í mánuði þegar ég man eftir því. Mun láta spila síðustu tvo þættina í jarðarförinni minni til að klára þetta endalausa maraþon.“ n Skilur ekkert í The Sandman n Á skjánum odduraevar@frettabladid.is K o m a e i n n a r stærstu sam fé­ lags miðla stjörnu Bret lands, Molly Mae, til Ís lands hefur vakið at­ hygli þar í landi. Breska götu blaðið The Sun greinir f r á f e r ð a l a g i hennar en Molly segist vera í „himna ríki kósí­gella.“ Eins og Frétta blaðið greindi frá mætti stjarnan hingað til lands fyrr í vikunni. Molly er þó án kærastans, Tommy Fury sem hún kynntist í raun veru leika þáttunum Love Is land árið 2019. n Molly Mae vekur athygli Molly Mae 16 Lífið 19. ágúst 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 19. ágúst 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.