Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.08.2022, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 19.08.2022, Qupperneq 38
Mér finnst hún bara geðveik, sko. AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@ frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Madonna í miklum ham á uppáhaldstíma- bili Daníels sem kennt er við Blonde Ambi- tion. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY 18 Lífið 19. ágúst 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ frettabladid.is Þú finnur allar nýjustu fréttir dagsins á frettabladid.is. Innlendar og erlendar fréttir, léttar fréttir, íþróttafréttir, viðskiptafréttir, skoðanapistla, spottið og auðvitað blað dagsins ásamt eldri blöðum. Hvað er að frétta? Poppgyðjan Madonna átti afmæli á þriðjudaginn og rúmir þrír áratugir eru síðan hún tryllti lýðinn með opin- skáu heimildarmyndinni Truth og Dare. Tveir eldheitir aðdáendur hennar gripu þessi tvö löggildu tilefni til þess að halda föstudagspartísýningu á myndinni í Bíó Paradís. toti@frettabladid.is Poppgoðsögnin Madonna fagnaði 64 ára afmæli sínu á þriðjudaginn og um þessar mundir eru 31 ár síðan hún gerði allt vitlaust með hinni bersöglu heimildarmynd Madonna: Truth or Dare. Þessi tvöföldu tímamót gáfu eld- heitu aðdáendunum Sigurbjörgu Andreu Sæmundsdóttur og Daníel Halldóri Guðmundssyni rakið til- efni til þess að láta loksins verða af því að hylla átrúnaðargoðið og bíó- myndina með sannkallaðri föstu- dagspartísýningu í anda gyðjunnar. „Myndin á 30 ára afmæli, eða reyndar 31 árs afmæli en Covid stoppaði allt og svona,“ segir Daníel um kvikmyndina sem einnig er þekkt sem In Bed With Madonna og var frumsýnd 1991. „Og okkur langaði að gera eitt- hvað sniðugt í sambandi við þetta og heiðra Madonnu í leiðinni. Við erum bæði miklir aðdáendur og höfum lengi talað um þetta en aldr- ei gert neitt í þessu.“ Daníel bætir við að þeim hafi þótt upplagt að kýla loksins á sýninguna núna og heldur sig við að tala um 30 ára afmæli í skjóli þess að heims- faraldurinn setti lífið á pásu í fyrra. „Við höfðum bara samband við Bíó Paradís með þessa hugmynd og þau tóku svo vel í þetta og þetta er að verða að raunveruleika.“ Lengi lifi drottningin! Óhætt er að tala um dans- og söngvaveislu því þau Sigurbjörg hafa lagt sig fram um að andi heilagrar Mad- onnu muni svífa yf ir kvikmyndahúsinu við Hverfisgötuna. Drag- drottningarnar Faye Knús og Queen Kora munu keyra gleðina í gang og taka á móti bíógestum með því að syngja tvö lög með Madonnu. Edgar verður síðan „með geggjað Burles- que Madonnu-atriði“ áður en sýningin hefst og sjálf Andrea Jóns- dóttir mun standa plötusnúðavaktina og að sjálfsögðu aðeins spila Madonnu lög. Þá eru öll hvött til þess að mæta uppáklædd að hætti Madonnu en verð- laun verða veitt fyrir besta búninginn. Uppí hjá Madonnu Í Truth or Dare er Madonnu fylgt eftir á tónleikaferða- lagi árið 1990 þar sem kvik- myndatökuvélin og þar með áhorfendur urðu vitni að ýmsu safaríku að tjaldabaki. Daníel telur ekki ólíklegt að sjálfur haf i hann séð myndina um þús- und sinnum. „Já, ég hef séð Fagnað með Madonnu í sannleikanum og kontór Daníel dýrkar Madonnu og er iðinn við að kaupa muni tengda henni á eBay og þá sérstaklega frá Blond Ambition-tímabilinu. MYND/JÚLÍUS SIGURJÓNSSON Aðdáendurnir fagna 30 ára afmæli Truth or Dare. Ári á eftir áætlun. hana dálítið oft. Truth or Dare er alveg geggj- uð,“ segir hann og lætur f ljóta með að hann hafi að sama skapi horft ansi oft á kvikmyndasöng- leik inn Ev itu og Desperately Seeking Susan sem sé í svo- litlu uppáhaldi. Dýrkar hana „Bara alltaf, frá því ég man eftir mér,“ svarar Daníel þegar spurt er hvenær Madonna hafi náð slíkum heljartökum á honum og bætir til áhersluauka við að hann „dýrki hana.“ „Mér finnst hún bara geð- veik, sko. Ég veit ekki hvernig ég á að orða það betur.“ Aðspurður segir Daníel plötuna Confessions on a Dance Floor frá 2005 vera í allra mestu uppáhaldi og að hann hafi séð hana nokkrum sinnum á tónleikum. Síðast 2015 í Barcelona á The Rebel Heart Tour og hún sé alltaf jafn frábær á sviði. Madonnupartíið byrjar með skemmtiatriðunum í Bíó Paradís klukkan 20 í kvöld en bíósýningin hefst klukkustund síðar. n

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.