Fréttablaðið - 24.08.2022, Page 8
Aðalhagfræðingur Arion
banka segir að ýmislegt bendi
til þess að verðbólgan sé búin
að toppa en þó megi lítið út
af bregða til að staðan verði
önnur. Greinandi Jakobsson
Capital segir ástæðuna fyrir
því að hún sé búin að toppa
vera mikla lækkun á elds-
neytisverði og vísbendingar
um að hægst hafi á fasteigna-
markaðinum.
magdalena@frettabladid.is
Verðbólguspár viðskiptabankanna
gera ráð fyrir að verðbólgan sé að
toppa eða við það að toppa. Allar
spárnar byggja á ákveðnum for-
sendum um eldsneytisverð, gengi
krónunnar, húsnæðisverð og verð-
bólgu í okkar helstu viðskipta-
löndum.
Í tölum Hagstofunnar sem birtar
voru í lok júlí kom fram að ársverð-
bólgan hafi staðið í 9,9 prósentum
en nýjar tölur verða birtar í lok
ágúst.
Arion banki spáir því að vísitala
neysluverðs hækki um 0,4 prósentu-
stig milli mánaða í ágúst. Gangi
spáin eftir mun ársverðbólgan
standa í stað í 9,9 prósentum. Aðal-
hagfræðingur Arion banka segir að
útlit sé fyrir að toppi verðbólgunnar
sé náð en þó megi lítið út af bregða.
„Í ljósi þess að toppurinn er
flatur í 9,9 prósentum fram á vetur
þarf lítið út af að bregða til að hann
hliðrist og fari í tveggja stafa tölu,“
segir Erna Björg Sverrisdóttir, aðal-
hagfræðingur Arion banka, og
nefnir sem dæmi að ef útsölulok
komi fram af meiri þunga í ágúst en
gert var ráð fyrir, myndi það þýða
10 prósenta verðbólgu strax í ágúst.
„Að þessu sinni vegur eldsneytis-
verð til lækkunar vísitölunnar, þó
umræðan hér á landi beri þess ekki
endilega merki, sem og flugfargjöld
til útlanda. Þá benti mæling Þjóð-
skrár á vísitölu íbúðaverðs til nokk-
uð minni húsnæðisverðshækkana
en undanfarna mánuði,“ segir Erna
og bætir við að það séu vísbending-
ar um að fasteignamarkaðurinn sé
farinn að róast. Vísitalan hækkaði
um 1,1 prósent sem er mun minni
hækkun en síðastliðna mánuði.
„Vissulega er aðeins um einn
mánuð að ræða, og það sumar-
frísmánuð flestra landsmanna, en
engu að síður er ég þeirrar skoð-
unar að mælingin gefi vísbendingu
að framhaldinu og að hægja muni
hratt á markaðinum eftir því sem
líða tekur á árið.“
Erna bendir á að mikil tímatöf sé
í tölunum sem byggja á þinglýstum
kaupsamningum og þriggja mánaða
meðaltali. Það þýði að áhrifa af
aðgerðum Seðlabankans í júní sé
ekki farið að gæta að neinu ráði.
„Vaxtahækkunin í júní og hertar
lánareglur í kjölfar ákvörðunar fjár-
málastöðugleikanefndar, eru farnar
að hafa áhrif en þau munu ekki
koma fram af fullum þunga í opin-
berum tölum fyrr en í haust.“
Greinendur Jakobsson Capital
gera ráð fyrir að tólf mánaða verð-
bólgan muni mælast 9,8 prósent í
næstu tölum Hagstofunnar.
Snorri Jakobsson, greinandi hjá
Jakobsson Capital, segir ástæðuna
fyrir því vera mikil lækkun á elds-
neytisverði og vísbendingar um að
hægjast hafi á fasteignamarkaðnum.
„Ágústmánuður hefur verið lágur
í verðbólgu vegna þess að þá eru að
koma inn áhrifin af útsölunum og
slíkt,“ segir Snorri og bætir við að
þróun fasteignaverðs sé lykilbreyta.
„Þróun fasteignaverðs mun skipta
öllu máli. Verðbólgan án húsnæðis
er töluvert lægri og það mun skipta
miklu máli. Síðan eru áframhald-
andi lækkanir á hrávörumörkuðum
sem benda til þess að innflutt verð-
bólga verði minni svo í rauninni
beinast öll spjót að fasteignamark-
aðnum,“ segir Snorri og bendir á
hann hafi verið að keyra áfram verð-
bólguna að undanförnu.
„Ég geri ráð fyrir að við séum búin
að sjá toppinn, ekki nema eitthvað
komi upp á.“
Erna segir að ef hægja muni á
hækkunum á húsnæðismarkað-
inum muni það hafa veruleg áhrif á
verðbólguna þar sem húsnæðisverð
hafi verið helsti drifkraftur hennar.
„Sem dæmi, í júlí mátti rekja
nánast helming verðbólgunnar
til fasteignaverðs svo það segir sig
sjálft að ef markaðurinn róast og
hægir á fasteignaverðshækkunum
mun draga úr verðbólgunni, að öðru
óbreyttu.“
Erna bætir við að þróun verðbólg-
unnar sýni að mistekist hefur að spá
fyrir um þróun hennar.
„Það verður að viðurkennast
að verðbólgugreinendur hafa átt í
stökustu vandræðum með að fanga
þróunina undanfarið ár.“
Erna segir að þróun verðbólgunn-
ar erlendis sé áhyggjuefni.
„Það sér ekki fyrir endann á
orkukrísunni í Evrópu en ný spá
Citigroup gerir ráð fyrir 18 prósenta
verðbólgu í Bretlandi í byrjun næsta
árs. Staðan er ekki mikið betri á
meginlandinu en þar er verð á gasi
14 sinnum hærra en að meðaltali
síðastliðinn áratug og engin skýr
lausn í sjónmáli. Áhrifin á heim-
ilisbókhald evrópskra heimila eru
mikil, en ekki síður á framleiðslu,“
segir Erna og bætir við að í ljósi þess
að við eigum mikil viðskipti við Evr-
ópu sé hætta á að við munum halda
áfram að f lytja inn umtalsverða
verðbólgu á komandi mánuðum. n
Ég geri ráð fyrir að við
séum búin að sjá
toppinn, ekki nema
eitthvað komi upp á.
Snorri Jakobs-
son, greinandi
hjá Jakobsson
Capital
Það verður að viður-
kennast að verðbólgu-
greinendur hafa átt í
stökustu vandræðum
með að fanga þróunina
undanfarið ár.
Erna Björg
Sverrisdóttir,
aðalhagfræðing-
ur Arion banka
Margt bendi til
að verðbólgan sé
búin að toppa
Aðgerðir Seðlabankans eru farnar að hafa áhrif á fasteignamarkaðinn en þó má búast við að þau áhrif komi ekki fram af fullum þunga fyrr en í haust. FRÉTTABLADID/VILHELM
Kjarasamningarnir
óvissuþáttur
Snorri segir að ef einblínt
sé á fasteignamarkaðinn og
innflutta verðlagið, þá megi
búast við því að verðbólgan
sé að ná hámarki núna en þó
séu kjarasamningarnir mikill
óvissuþáttur.
„Um þessar mundir er
mjög lítið atvinnuleysi svo
ég held að samningsstaða
verkalýðshreyfingarinnar
sé nokkuð sterk og það gæti
orðið töluverður þrýstingur
á launahækkun.“
Erna segir að margt bendi
til þess að kjarasamnings-
lotan í haust verði ansi
strembin.
„Þetta er erfiður tími til að
ganga inn í kjarasamninga,
verðbólgan er mikil, vextir
að hækka, húsnæðisverð
hátt og mikil spenna á
vinnumarkaði, í formi lítils
atvinnuleysis og vaxandi
vinnuaflsskorts,“ segir Erna
og bætir við að verðbólgu-
væntingar hafi hækkað og
allt þetta auki hættuna á
víxlverkun launa og verðlags.
„Verði samið um brattar
launahækkanir er hætta á
að þeim verði í einhverjum
tilfellum velt beint út í
verðlagið, sem kyndir undir
verðbólguna og festir hana
frekar í sessi. Of miklar
launahækkanir, langt um-
fram framleiðnivöxt, geta
einnig grafið undan sam-
keppnishæfni landsins, veikt
krónuna og þannig haft áhrif
á verðbólguna,“ segir Erna
og bendir á að atvinnugrein-
arnar komu misvel undan
heimsfaraldrinum, sem geri
þetta að sérstaklega vanda-
sömu verkefni.
8 Fréttir 24. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN 24. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR