Fréttablaðið - 24.08.2022, Blaðsíða 14
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Alþjóða-
samvinna
er eitur í
beinum
einræðis-
herra.
Aðalheiður
Ámundadóttir
adalheidur
@frettabladid.is
Tækifærin sem felast í stafrænni þróun eru allt
umlykjandi. Þau hafa á skömmum tíma gjörbreytt
störfum okkar og bjóða upp á mikla möguleika fyrir
fólk hvar sem það er statt í landinu eða heiminum. Í
samskiptum, viðskiptum og störfum okkar erum við
aðeins „einum músasmelli frá hvert öðru“.
Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki í þróun staf-
rænnar vegferðar í þjónustu og samskiptum við íbúa
og fyrirtæki. Krafa fólks í dag er að geta afgreitt sig sem
mest sjálft en stafræn þróun mætir þeim kröfum og
bætir þjónustuna.
Þótt fátt komi í stað beinna staðbundinna samskipta
þá er svo ótal margt sem hægt er að leysa og afgreiða
með skjótum og einföldum hætti á netinu. Þannig
verður þjónustan skilvirkari, skjótari og hagkvæmari.
Mörg sveitarfélög eru komin vel á leið í stafrænni veg-
ferð en ný tækifæri verða stöðugt til.
Sveitarfélögin í landinu eiga gott samstarf í stafrænni
þróun sem á að efla enn frekar. Það þarf ekki hver og
einn að „finna upp hjólið“ í þessum efnum. Þannig
lærum við hvert af öðru. Við eigum að stíga saman
skrefin inn í framtíðina og deila þannig kostnaði við
innleiðinguna.
Stafrænar lausnir eru mikilvægt byggðasjónarmið en
einnig eru þær samgöngu- og umhverfismál. Skilvirk
stafræn þjónusta sparar okkur sporin og hún dregur úr
umferðarálagi sem er umhverfisvænt. Að hafa greiðan
aðgang að sérhæfðri ráðgjöf og aðstoð í gegnum fjar-
fundarbúnað, til dæmis fyrir barn í skólakerfinu eða
aldraða í félagsþjónustunni, getur skipt sköpum.
Þá eru „störf án staðsetningar“ orðin raunverulegur
möguleiki jafnt hjá hinu opinbera sem og í atvinnulíf-
inu. Það er fátt sem kallar á lengur að stofnanir ríkisins
séu staðsettar í miðborg Reykjavíkur eða að starfs-
menn þurfi alltaf að mæta alla morgna á sama tíma á
vinnustað sinn. Kannski er markviss stefna í þessum
efnum stærsta samgöngumálið á höfuðborgarsvæðinu?
Markmið okkar á stafrænni vegferð hlýtur að vera
að auka samkeppnishæfni ólíkra svæða í landinu og
landsins við aðrar þjóðir. Þannig stuðlum við að verð-
mætasköpun og hagsæld á Íslandi til framtíðar.
Það eru spennandi tímar framundan. ■
Spennandi framtíð
Rósa
Guðbjartsdóttir
bæjarstjóri í
Hafnarfirði
ser@frettabladid.is
Sveiflurnar
Ófyrirsjáanleikinn í íslenska
efnahagsumhverfinu hefur
alltaf verið mikill, en þar hafa
meira og minna allar tölur
sveiflast á milli allsherjarkreppu
og ofþenslu, efnahagshruns
og uppsveiflunnar sem ætlar
engan endi að taka þangað
til að bólan springur. Þetta
þekkja landsmenn – og eru
eiginlega svolítið stoltir af
þessari rússibanareið í einu
minnsta hagkerfi heims.
Þennan ófyrirsjáanleika upplifir
núna nýjasta meginstoðin í
íslenskum atvinnuvegi, altso
ferðaþjónustan, en hún er
að verða háð eldgosum, svo
rækilega sem þau lyfta henni
á kreik og maka krókinn fyrir
einstaka fyrirtæki.
Afbókanir
Íslenska ferðaþjónustan var
búin að selja nýjasta eldgosið
á Reykjanesskaga langt fram
eftir hausti, gott ef ekki vel inn í
veturinn. En gosið var ekki haft
með í ráðum. Og tók það bara
upp hjá sjálfu sér að láta staðar
numið. Svo nú er byrjað að
bera á afbókunum í greininni,
eðlilega, enda söluvaran sofnuð
og allsendis óvíst hvort hún
vaknar aftur. Sem hún gerir
þó sennilega á nýjaleik. Og
næstum örugglega. En þá ætti
ferðaþjónustan að læra af
reynslunni – og semja fyrirfram
um alvöru lengd á gosinu. ■
ARCTIC HEALTH
AHI.IS
KALK
HREIN ÍSLENSK FÆÐUBÓT
VÖÐVAR
TENNUR
BEIN
Í POKUM FYRIR LÁGMARKS KOLEFNISSPOR
Skilvirk
stafræn
þjónusta
sparar
okkur
sporin
og hún
dregur úr
umferðará-
lagi sem er
umhverfis-
vænt.
Í dag blaktir blár og gulur fáni við hún um
alla Evrópu og víðar, í tilefni þjóðhátíðar-
dags Úkraínu. Sjálf er þjóðin tvístruð um
alla Evrópu, hrakin af heimilum sínum,
frá námi, vinnu og daglegu lífi, undan árás
sem ekkert okkar botnar upp né niður í.
Úkraínska þjóðin er með allra harðgerðustu
þjóðum álfunnar. Hún hefur þolað hungurs-
neyð, kúgun og árásarstríð en bognar ekki.
Baráttuþrek hennar hefur komið heimsbyggð-
inni verulega á óvart. Að öðru leyti er úkraínska
þjóðin ekkert frábrugðin öðrum Evrópuþjóð-
um, hún samanstendur af fólki með fjölbreyttan
bakgrunn og ólíkar skoðanir. Um eitt var hún
þó sammála, því yfir 90 prósent hennar stað-
festu með atkvæði sínu yfirlýsingu um sjálfstæði
Úkraínu frá Sovétríkjunum árið 1991. Þennan
einbeitta vilja sætta Rússar sig ekki við, ekki
fremur en yfirlýstan vilja Úkraínu til þátttöku í
alþjóðasamstarfi sem byggir á rótgrónum lýð-
ræðishefðum og virðingu fyrir mannréttindum.
Á undanförnum árum hafa miklar áskoranir
blasað við þeirri farsælu Evrópusamvinnu
sem tryggt hefur frið í álfunni í áratugi. Popúl-
istar hafa náð fótfestu víða og hafa í nokkrum
löndum gert mikinn skaða. Bretar ráku fleyg í
langvarandi og farsælt Evrópusamstarf, vinum
sínum og nágrönnum til furðu og vonbrigða.
Í nokkrum Evrópuríkjum hafa réttarríkið og
vernd mannréttinda vikið fyrir popúlískum
stjórnarháttum og einræðistilburðum.
En alþjóðasamvinna er eitur í beinum ein-
ræðisherra og íbúar Evrópu finna það sterkar nú
en áður. Þannig hefur innrás Rússlands í Úkra-
ínu aukið skilning á nauðsyn þess að standa
vörð um hornsteina frelsis og friðar í álfunni.
Við viljum tryggja rétt fólks til að búa í friði í
landi sínu og njóta þar friðhelgi og frelsis, og við
finnum endurnýjaða þörf til að standa vörð um
réttarríkið, leikreglur lýðræðis og tjáningar-
frelsi. Þetta sýna kannanir meðal almennra
borgara víða um álfuna og áhugi fullvalda ríkja
á þátttöku í mikilvægum alþjóðasamtökum.
Ólíkt því sem popúlistarnir halda fram,
styrkir öflug alþjóðasamvinna sjálfstæði allra
þátttökuríkja á meðan einangrunarhyggja brýt-
ur undirstöður þess niður. Þetta veit úkraínska
þjóðin og þótt hún finni fátt að gleðjast yfir í
þeim hörmungum sem nágrannar hennar leggja
nú á hana af óskiljanlegri grimmd, hyllum við
sem erum vinir hennar úkraínsku þjóðina og
fögnum sjálfstæði hennar í dag. Við deilum með
henni heimilum okkar, bakgarði, breiðstrætum,
torgum og öllum fánastöngum sem við eigum.
Við fögnum styrk hennar, langlundargeði og
þrautseigju. Hún lengi lifi. Slava Ukraini! ■
Slava Ukraini
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 24. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR