Mosfellingur - 11.03.2022, Síða 2
Í þá gömlu góðu...
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 1. apríl
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn:
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.500 eintök. Dreifing: Afturelding.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Nú er fyrsta byggingin risin í
Sunnukrika, neðst í Krikahverfi,
en svæðið er hugsað fyrir verslun og
þjónustu. Lóðirnar í götunni voru
fyrst auglýstar árið 2006
eða fyrir um 15 árum. Á
tímabili stóð til að reisa
hótel og ferðaþjónustu
á svæðinu en nú er
ýmislegt annað í bígerð.
Heilsugæslan
hefur fengið
sitt húsnæði
afhent á
efri hæð
Sunnu-
krika 3 og vinnur nú að því að flytja
sig um set úr Kjarnanum. Opna á
Heilsugæsluna í lok marsmánaðar.
Á sama stað mun opna apótek, kjöt-
búð, verslunin Nettó og mögulega
eitthvað fleira heilsutengt.
Þá er bílasalan ÍsBand búin að láta
teikna upp miklar höfuðstöðvar í
götunni og leggja til við bæjaryfirvöld
að fá þar pláss.
Það eru því spennandi tímar fram
undan neðst í Krikahverfinu og
ljóst að ásýnd svæðisins mun taka
miklum breytingum á næstunni með
tilheyrandi lífi.
Sunnukrikinn að rísa
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
- Fréttir úr bæjarlífinu62
Helgafellshverfi
Framkvæmdir við 4. byggingaráfanga í landi Helgafells
standa nú yfir. Svæðið afmarkast frá Sauðhóli og með
Skammadalslæk, en handan hans er land Reykjalundar.
Fyrstu húsin eru þegar risin og gatnakerfið að verða
sýnilegt. Það eru heimamenn,
Mosfellingar, sem eru þarna
að verki. Byggingafélagið
Bakki og VGH verktakar ann-
ast gatnagerð og jarðvinnslu.
Góð yfirsýn yfir athafnasvæðið
er frá Sauðhóli og Reykjalundi.
Héðan og þaðan
Myndin er tekin árð 1950,
þegar uppbygging á
Reykjalundi stóð yfir. Ofar
sér í Sauðhól og efst í
gamla bæinn á Helgafelli.
Ef myndin prentast vel
má sjá sumarbústaðina
austur með fjallinu.
Þessi góði sveitungi, Pétur
Guðmundsson frá Garði,
kann vel til verka þegar
stórframkvæmdir eru undir.
Nýlega tekin mynd frá Sauð-
hóli yfir framkvæmdasvæðið