Mosfellingur - 11.03.2022, Blaðsíða 12

Mosfellingur - 11.03.2022, Blaðsíða 12
 - Bæjarblað allra Mosfellinga12 Ég gef mÉr tíma fyrir þig! - fagleg og persónuleg þjónusta Hringdu í 897-1533 davíð Ólafsson lög. fast. david@fastborg.is Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is Mosfellsbær hefur tekið í gagnið nýjan ráðningarvef. Öll laus störf hjá Mosfellsbæ og stofnunum má sjá og sækja um á nýjum ráðningarvef: www.mos.is/storf Laus störf í Mosfellsbæ Þ verholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is Deiliskipulagsbreyting í Bjarkarholti Mosfellsbær auglýsir hér með breytingu á deiliskipulagi miðbæjarins við Bjarkarholt, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boðið verður upp á rafrænan kynningarfund skv. gr. 5.6.1. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013. Tillaga að breyttu deiliskipulagi nær utan um lóðir Bjarkarholts 4-5. Breytingin sýnir uppbyggingu þjónustu- íbúða aldraða í tengslum við Eir að Hlaðhömrum. Ný hús eru 4-5 hæðir og tengjast nálægri starfsemi með göngubrúm. Hluti breytingar er heimild til þess að byggja eina hæð ofan á þjónustubyggingu við Hlaðhamra 2. Nýju húsin standa á bílakjallara sem hefur aðkomu sína frá Langatanga, gestastæði hafa tengingu um Bjarkarholt. Skipulag gefur heimild fyrir 108 litlum íbúðum. Uppbrot og ásýnd eru í samræmi við önnur hús í götunni. Breytingin er sett fram á tveimur uppdráttum. Miðvikudaginn 17. mars n.k. verður boðið upp á rafrænan kynningarfund. Hlekkur verður aðgengilegur samdægurs á vef Mosfellsbæjar, mos.is. Fundur verður frá kl. 17:00- 18:00 og streymt í beinni. Hægt er að senda spurningar fyrir fram á skipulag@mos.is, eða á meðan kynningu stendur. Guðjón Magnússon, arkitekt og hönnuður skipulags, kynnir breytinguna. Uppdrættir verða aðgengilegir á vef Mosfellsbæjar, mos.is/skipulagsauglysingar, en einnig á Upplýsingatorgi, Þverholti 2. Þeir sem vilja geta kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir, aðrir teljast samþykkir. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og þær skulu merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbær, eða berast í tölvupósti á skipulag@mos.is. Athugasemdafrestur er frá 11. mars til og með 26. apríl 2021. Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar SKIPTIMARKAÐUR Skiptimarkaður okkar með barnaföt er komin í gang aftur. Á miðvikudögum frá 16–18 í Þverholti 7, Mosfellsbæ. Hreinsum úr skápunum og finnum flíkur sem passa á börnin í staðinn. Allir vinna! Sjáumst þar! Öskudeginum var fagnað víða þrátt fyrir takmarkanir. Þessir félagar fóru á milli fyrirtækja. Flottir Félagar

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.