Mosfellingur - 11.03.2022, Page 12
- Bæjarblað allra Mosfellinga12
Ég gef
mÉr tíma
fyrir þig!
- fagleg og persónuleg þjónusta
Hringdu í 897-1533
davíð Ólafsson lög. fast.
david@fastborg.is
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Mosfellsbær hefur tekið í gagnið nýjan ráðningarvef.
Öll laus störf hjá Mosfellsbæ og stofnunum
má sjá og sækja um á nýjum ráðningarvef:
www.mos.is/storf
Laus störf í Mosfellsbæ
Þ verholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Deiliskipulagsbreyting
í Bjarkarholti
Mosfellsbær auglýsir hér með breytingu á deiliskipulagi
miðbæjarins við Bjarkarholt, skv. 1. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010. Boðið verður upp á rafrænan
kynningarfund skv. gr. 5.6.1. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi nær utan um lóðir
Bjarkarholts 4-5. Breytingin sýnir uppbyggingu þjónustu-
íbúða aldraða í tengslum við Eir að Hlaðhömrum. Ný hús eru
4-5 hæðir og tengjast nálægri starfsemi með göngubrúm.
Hluti breytingar er heimild til þess að byggja eina hæð ofan
á þjónustubyggingu við Hlaðhamra 2. Nýju húsin standa
á bílakjallara sem hefur aðkomu sína frá Langatanga,
gestastæði hafa tengingu um Bjarkarholt. Skipulag gefur
heimild fyrir 108 litlum íbúðum. Uppbrot og ásýnd eru í
samræmi við önnur hús í götunni. Breytingin er sett fram á
tveimur uppdráttum.
Miðvikudaginn 17. mars n.k. verður boðið upp á rafrænan
kynningarfund. Hlekkur verður aðgengilegur samdægurs
á vef Mosfellsbæjar, mos.is. Fundur verður frá kl. 17:00-
18:00 og streymt í beinni. Hægt er að senda spurningar fyrir
fram á skipulag@mos.is, eða á meðan kynningu stendur.
Guðjón Magnússon, arkitekt og hönnuður skipulags, kynnir
breytinguna.
Uppdrættir verða aðgengilegir á vef Mosfellsbæjar,
mos.is/skipulagsauglysingar, en einnig á Upplýsingatorgi,
Þverholti 2. Þeir sem vilja geta kynnt sér tillöguna og
gert við hana athugasemdir, aðrir teljast samþykkir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu
upplýsingum um sendanda, og þær skulu merktar
skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbær,
eða berast í tölvupósti á skipulag@mos.is.
Athugasemdafrestur er frá 11. mars til og með 26. apríl
2021.
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
SKIPTIMARKAÐUR
Skiptimarkaður okkar með barnaföt er komin í gang aftur.
Á miðvikudögum frá 16–18
í Þverholti 7, Mosfellsbæ.
Hreinsum úr skápunum og finnum flíkur sem passa
á börnin í staðinn. Allir vinna! Sjáumst þar!
Öskudeginum var fagnað víða þrátt fyrir takmarkanir. Þessir félagar fóru á milli fyrirtækja.
Flottir Félagar