Mosfellingur - 11.03.2022, Blaðsíða 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
- Bæjarblaið í Mosfellsbæ4
Fermingar í Lágafellssókn hefjast sunnu-
daginn 21. mars og alls verður fermt í
18 guðsþjónustum til loka maí. Í þeim
guðsþjónustum verður helgihaldið ekki
auglýst vegna fjöldatakmarkana fyrir
gesti fermingarbarna.
Prestar, starfsfólk og sóknarnefnd
Lágafellssóknar óskar öllum ferming-
arbörnum innilega til hamingju með
tímamótin. Megi Guð og gæfan ykkur
geyma út í lífið.
sunnudagur 14. mars
Guðsþjónusta kl. 11 í Lágafellskirkju.
Sr. Arndís.
sunnudagaskóli kl. 13 í Lágafellskirkju.
Umsjón: Bogi, Petrína og Þórður.
safnaðarheimilis-sunnudagaskólar
Sunnudagana 21. og 28. mars verður
sunnudagaskólinn kl. 13 í safnaðar-
heimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 2.
hæð. Önnur staðsetning – sama fjörið!
Una býður sig fram til
forystu í Kraganum
Una Hildardóttir, varaþingmaður
Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi
og formaður lýðræðis- og mann-
réttindanefndar
Mosfellsbæjar,
sækist eftir 1. til
2. sæti í forvali
flokksins vegna
komandi þing-
kosninga. Una er
29 ára, uppalin í
Mosfellsbæ þar
sem hún býr ásamt eiginmanni og
dóttur. „Ég er fyrsti varaþingmaður
flokksins í kjördæminu og hef
tekið sæti á þingi sjö sinnum á
kjörtímabilinu. Ég hef tekið virkan
þátt í starfi VG frá árinu 2011. Ég
hef gegnt ýmsum störfum fyrir
flokkinn og í dag sit ég í flokksráði
hreyfingarinnar. Einnig hef ég
frá sveitastjórnakosningum árið
2018 verið formaður lýðræðis- og
mannréttindanefndar Mosfellbæjar
fyrir hönd VG.“
Foreldramorgnar hefjast á ný!
Fimmtudaginn 18. mars kl. 10–12 hefjast
aftur foreldramorgnar í safnaðarheimilinu
okkar, 2. hæð. Dagskrá: Skyndihjálp barna.
Gestur: Guðmundur Ingi.
Fimmtudaginn 25. mars kl. 10–12: Opið
hús í safnaðarheimilinu. Foreldrar með kríli
og krútt eru velkomin! Umsjón: Rut djákni.
ungmennakórinn Fermata
Kór fyrir ungt fólk 14–30 ára. Kórinn æfir á
þriðjudögum kl. 18–19:30 í safnaðarheim-
ilinu. Umsjón: Þórður organisti, Hákon og
Petrína. Nýir kórmeðlimir velkomnir!
Haustið 2020 fór fram ytra mati á Varm-
árskóla á vegum Menntamálastofnunar.
Í niðurstöðum þess mats komu fram vís-
bendingar um að skoða þyrfti nánar stjórn-
skipulag skólans.
Á fundi bæjarráðs hinn 4. júní 2020 sam-
þykkti bæjarráð að fela bæjarstjóra og fram-
kvæmdastjóra fræðslu- og frístundasviðs
að láta gera úttekt og mat á stjórnskipulagi
Varmárskóla og á þeim grunni setja fram
tillögur að breytingum ef tilefni væri til.
Úttekt fór fram haustið 2020 og var fenginn
til verksins Haraldur Líndal Haraldsson hjá
HLH ráðgjöf.
Á fundi bæjarráðs hinn 14. janúar 2021
var úttekt á stjórnskipulagi Varmárskóla
og tillögur að breytingum frá HLH ráðgjöf
lagðar fram.
kostir og gallar metnir
Í úttekt HLH ráðgjafar eru tilgreindir
kostir og gallar núverandi fyrirkomulags í
stjórnskipun skólans. Gallarnir voru metnir
fleiri en kostirnir sem að mati úttektaraðila
kölluðu á tillögur um breytt fyrirkomulag.
Þrjár sviðsmyndir til breytinga voru settar
fram. Sú sviðsmynd sem metin var best að
mati úttektaraðila var að skipta skólanum
upp í tvo sjálfstæða skóla með skólastjóra
í hvorum skóla, ásamt stjórnunarteymi
deildarstjóra.
Með slíkri skiptingu fengist markvissari
fagleg og fjárhagsleg stjórnun á málefnum
hvors skóla. Einnig var það mat úttektarað-
ila að skiptingin kalli ekki á aukinn rekstr-
arkostnað.
Dagana 14.-20. janúar fóru fram kynn-
ingar fyrir stjórnendur, starfsfólk og for-
eldra.
1.-6. bekkur og 7.-10. bekkur
Á fundi fræðslunefndar hinn 20. janúar
lagði nefndin til í umsögn sinni að bæjar-
ráð samþykkti þá tillögu að skólanum væri
skipt upp í tvo sjálfstæða skóla. Jafnframt
lagði nefndin áherslu á að fulltrúar hagað-
ila ættu aðkomu að vinnu við framkvæmd
skiptingarinnar.
Í skólaráði Varmárskóla var úttektin
kynnt á fundi 19. janúar og umsögn barst
27. janúar. Fulltrúar í skólaráði veittu sín
viðbrögð að höfðu samráð við þá sem þeir
eru fulltrúar fyrir en fulltrúar foreldrafé-
lagsins náðu ekki að fá viðbrögð innan þess
tímaramma sem gefinn var.
Á grundvelli samantektar á niðurstöðu
úttektaraðila, kynningum og umsögnum
var samþykkt á fundi bæjarráðs hinn 4.
febrúar að Varmárskóla yrði skipt upp í tvo
skóla, annars vegar grunnskóla fyrir 1.-6.
bekk og hins vegar grunnskóla fyrir 7.–10.
bekk frá og með 1. ágúst 2021.
Úttekt og mat á stjórnskipulagi Varmárskóla • Breytingin tekur gildi 1. ágúst
Varmárskóla verður skipt
upp í tvo sjálfstæða skóla
Nú er komið að þriðju hugmyndasöfnun-
inni vegna Okkar Mosó, samráðsverkefni
íbúa og bæjarins um forgangsröðun og út-
hlutun fjármagns til smærri framkvæmda í
nærumhverfi íbúa Mosfellsbæjar.
Verkefnið byggir á áherslum í lýðræðis-
stefnu Mosfellsbæjar um samráð og íbúa-
kosningar auk þess sem markmið verkefn-
isins er að virkja almenning til þátttöku í
lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku.
Okkar Mosó 2021 byggist á fyrri reynslu
sambærilegra verkefna árin 2017 og 2019.
Hugmyndasöfnun til 6. apríl
Íbúar Mosfellsbæjar eru hvattir til að
senda inn fjölbreyttar hugmyndir að góð-
um verkefnum í bænum. Hugmyndirnar
geta tengst því að gera Mosfellsbæ betri,
skapa eitthvað nýtt, efla hreyfingu, hafa
jákvæð áhrif á umhverfi og íbúa til útivistar
og samveru, bættrar lýðheilsu eða aðstöðu
til leikja og skemmtunar. Gert er ráð fyrir
að verja allt að 35 milljónum króna í þau
verkefni sem fá flest atkvæði.
Til að komast áfram í kosningu þurfa
hugmyndirnar sem sendar eru inn að
uppfylla eftirfarandi skilyrði:
• Nýtast hverfi eða íbúum bæjarins í heild.
• Vera til fjárfestinga en ekki rekstrar.
• Auðveldar í framkvæmd.
• Varða umhverfi á bæjarlandi en ekki á
landi í einkaeigu.
• Falla að skipulagi og stefnu Mosfells-
bæjar.
• Vera í verkahring sveitarfélagsins.
• Kostnaður hugmyndar taki ekki stóran
hluta af fjármagni verkefnisins.
kosið verður um bestu hugmyndirnar
Hver hugmynd þarf að vera vel útskýrð
og með nákvæma staðsetningu. Það auð-
veldar fólki að meta hugmyndina og hvort
það vilja gefa henni atkvæði. Athugið að
starfsmenn Mosfellsbæjar geta óskað eftir
nánari skýringum á hverri hugmynd.
Hugmyndir að framkvæmdum á íþrótta-,
sundlaugar- og skólasvæðum þarf að skoða
sérstaklega.
Kosið verður um bestu hugmyndirnar
dagana 31. maí til 6. júní.
Samráðsverkefni íbúa og bæjarins • Hugmyndasöfnun til 6. apríl • Kosið í byrjun sumars
Hugmyndasöfnun hafin fyrir
lýðræðisverkefnið Okkar Mosó
skilti á topp fella
voru kosin síðast
horft yfir skólasvæðið
Tveir nýir leikvellir
teknir í notkun
Tveir nýir leikvellir hafa verið
teknir í notkun í Mosfellsbæ, annar í
Helgafellshverfi og hinn í Leirvogs-
tunguhverfi. Leikvöllurinn í Helga-
fellshverfi er fyrir neðan Uglugötu
og hentar öllum aldri. Fjölbreytt
leiktæki eru á svæðinu sem eiga
að henta öllum, jafnt ungbörnum
sem fullorðnum. Völlurinn er langt
kominn en endanleg jarðvegsvinna
og gróðursetning verður með vor-
inu. Þá verður komið fyrir bekkjum
þannig að allir ungir sem aldnir geti
komið sér vel fyrir. Í Leirvogstungu
er nýi leikvöllurinn staðsettur
milli Laxatungu og Vogatungu. Sá
leikvöllur hentar einnig öllum aldri.
Þar eru hólar og hæðir sem hægt er
að nýta í hina ýmsu leiki svo sem
sleðabrekkur á veturna og í ýmsa
leiki á sumrin. Fjölbreytt leiktæki
eru á svæðinu og þar munu einnig
koma fjölbreyttar trjátegundir sem
er á áætlun að gróðursetja í vor.
MOSFELLINGUR
keMur næst út
1. apríl
mosfellingur@mosfellingur.is