Mosfellingur - 11.03.2022, Side 6
- Bæjarblað allra Mosfellinga6
Kæri Mosfellsbæingur,
ég get bætt við mig eignum í sölu!
Ánægjuleg fasteignaviðskipti – það skiptir máli!
· Fasteignaráðgjöf og frítt verðmat þér að kostnaðarlausu
og án skuldbindinga
· Hafðu samband ef þú eða einhver sem þú þekkir
er í fasteignahugleiðingum
· Ég veiti framúrskarandi þjónustu sem skilar árangri
Ingimar Óskar Másson – Það er best að búa í Mosó!
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
ingimar@helgafellfasteignasala.is
612 2277
ingur,
Ný heilsugæsla opnar mánudaginn 29. mars • Bylting á starfsaðstöðu sem skilar sér í bættri þjónustu fyrir bæjarbúa
Mikil tilhlökkun að flytja í nútímalegri
heilsugæslustöð í Sunnukrika
Heilsugæsla Mosfellsumdæmis vinnur nú að því að flytja
starfsemi sína úr Kjarnanum í Sunnukrika 3 og er ráðgert
að opna á nýjum stað mánudaginn 29. mars. Síðar í apríl
verður svo formlegri opnun með hátíðarbrag.
„Þetta verður algjör bylting á starfsaðstöðunni
fyrir okkur,“ segir Dagný Hængsdóttir svæðisstjóri
Heilsugæslu Mosfellsumdæmis. „Húsnæðið býður
upp á tækifæri til að vinna betur í teymisvinnu
og stöðin er hönnuð með það í huga að nánara
samstarf verði milli hjúkrunarfræðinga og
lækna.“
Plássið farið að há starfseminni
„Þetta verður mikil breyting fyrir starfs-
fólkið en ekki síður fyrir þá sem nýta sér
þjónustuna,“ bætir Hörður Ólafsson við en
hann er fagstjóri lækninga. Þjónustan verð-
ur betri og vinnuaðstaðan gjörbreytist. Þar
af leiðandi getum við breytt öllu verklagi
og bætt við fleira fólki eftir þörfum.“
Nýja heilsugæslustöðin er hugsuð til
framtíðar með pláss til að geta vaxið enn
frekar í takt við bæjarfélagið. Plássleysið
var farið að há starfseminni í Kjarna. Gert
er ráð fyrir að lágmarki 10 læknum og von-
ast er til þess að nýja stöðin verði eftirsóttur
vinnustaður og sveitarfélaginu til sóma en
gert er ráð fyrir að hægt verði að sinna 12−15
þúsund manns.
Staðan batnað að undanförnu
„Því er ekki að leyna að við höfum verið und-
irmönnuð af læknum en staðan hefur batnað
mjög að undanförnu þótt við séum ekki alveg
orðin fullmönnuð,“ segir Dagný og bætir við
að flutningar á nýjan stað með bættri aðstöðu
muni hjálpa þar mikið til.
„Við vorum að bæta við síðdegisvakt á föstudögum
þannig að hún er nú starfrækt alla virka daga kl. 16-17. Á
morgnana erum við með stutta hraðvakt kl. 8:00-9:30 með
svipuðu fyrirkomulagi. Þá erum við einnig með skyndi-
móttöku allan daginn og fólk getur alltaf komið ef nauðsyn
krefur. Einnig erum við með öfluga símaþjónustu og svo
getur fólk auðvitað pantað sér tíma ef þannig ber undir.“
Flottasta heilsugæslan á landinu
Heilsugæslan hefur verið starfrækt í Kjarnanum í um 20
ár, frá því íbúafjöldi var um 5.000, þar til nú þegar bæjarbú-
ar eru að verða 13.000. Það er því ljóst að húsnæðið sem nú
þjónar umdæminu, 700 m², er löngu sprungið.
Nýja stöðin verður hinsvegar 1.220 m² og mun gjörbylta
allri aðstöðu. „Það er ekki hægt að líkja þessu saman. Stöð-
in verður öll nútímalegri og vinnuaðstaða fyrir starfsfólk og
aðkoma fyrir skjólstæðinga verður allt önnur. Þetta verður
flottasta heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu og líklega á
landinu og það er mikil tilhlökkun í okkar herbúðum,“ segir
Dagný Hængsdóttir svæðisstjóri Heilsugæslu Mosfellsum-
dæmis sem þjónar fyrst og fremst Mosfellsbæ, Kjalarnesi og
Kjósarhreppi, en allir eru velkomnir á stöðina.
Í sama húsi í Sunnukrika 2 mun opna apótek og önnur
heilsutengd þjónusta, Nettó, kjötbúð og þá verða einnig
íbúðir fyrir 60 ára og eldri í turninum.