Mosfellingur - 11.03.2022, Qupperneq 14
- Okkar Mosó14
• Nýsmíði
• Viðhald
• BreytiNgar
• gluggar og gler
• Pallasmíði
• ÞakViðgerðir
• og margt fleira
Löggiltur húsasmíðameistari
og byggingastjóri
Sími 766 7876 • orSmidi@orSmidi.iS
gerum tilBoð að kostnaðarlausu
Erum að
taka niður
pantanir
fyrir
sumarið
Framkvæmd allra verkefna í lýðræðisverk-
efninu Okkar Mosó sem stóð yfir frá 2019-
2020 er nú lokið.
Verkefnin byggjast á samráðsverkefni
íbúa og bæjarins um forgangsröðun og út-
hlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda
og viðhaldsverkefna í Mosfellsbæ.
Þau byggjast á hugmyndum um
umræðulýðræði, þátttökulýðræði og þátt-
tökufjárhagsáætlunargerð og felur í sér að
virkja almenning til þátttöku í lýðræðislegri
umræðu og ákvarðanatöku, umfram það
sem gerist í hefðbundnu fulltrúalýðræði.
Tveggja ára framkvæmdatími
Fram komu 103 fjölbreyttar hugmyndir
og voru 30 verkefni valin og útfærð til kosn-
ingar fyrir íbúa. Alls voru 6.685 atkvæði
greidd, sem er um 19,1% þátttaka sem var
mesta þátttaka í sambærilegu verkefni
hérlendis.
Við úrvinnslu hugmynda var leitast við
að tryggja að verkefni sem kosið var um
væru landfræðilega dreifð innan sveitarfé-
lagsins, væru raunhæf í útfærslu og sam-
ræmdust skipulagi bæjarins.
Hugmyndirnar gátu varðað leik- og af-
þreyingarsvæði íbúa, göngustíga, miðbæj-
arsvæði eða umhverfið almennt.
Úthlutað var 35 milljónum króna í verk-
efnin á tveggja ára framkvæmdatíma þeirra
hugmynda sem fengu brautargengi.
Nánar um framkvæmd verkefnanna:
Saga Álafossverksmiðjunnar
Talsverðar umbætur hafa orðið á Ála-
fosskvos og nágrenni á undanförnum
árum, með uppbyggingu göngustíga, án-
ingarsvæða og lagfæringum á umhverfi
svæðisins. Álafossverksmiðjan á ríkan þátt í
sögu svæðisins og til að fræða íbúa og gesti
um merkilega sögu verksmiðjunnar var
sett upp fræðsluskilti sem segir frá stofnun
hennar og rekstri allt frá upphafi um 1896
og til dagsins í dag.
Ærslabelgur á Stekkjarflöt
Með uppsetningu á ærslabelg á Stekkjar-
flöt er útvistarsvæðið við Álafosskvos orðið
eitt það skemmtilegasta í bænum, en þar er
einnig að finna fleiri leiktæki, strandblak-
völl og útigrill.
Kósý Kjarni
Sett hefur verið upp hugguleg aðstaða
fyrir gesti og gangandi í Kjarna, sem hyggj-
ast heimsækja bæjarskrifstofur Mosfells-
bæjar, bókasafn eða aðra þjónustu sem þar
er að finna. Svæðið er tilvalið til að setjast
niður með góða bók eða bara til að hvíla
lúin bein í fallegu umhverfi.
Merkingar á toppum bæjarfella
Fellin í kringum Mosfellsbæ eru vinsæl
til útivistar og ánægju, enda hefur bærinn
í samstarfi við Skátafélagið Mosverja staðið
fyrir stikun gönguleiða á fellin, ásamt gerð
fræðsluskilta, upplýsingaskilta, vegvísa,
bílastæða o.fl.
Nú hafa einnig verið settar upp merk-
ingar á toppum helstu fellanna þar sem sjá
má nafn þeirra, hæð og hnitastaðsetningu.
Þessar merkingar hafa skipað stóran sess í
Tindaáskorun Mosverja sem hefur staðið
yfir í allan vetur, við miklar vinsældir.
Almenn ánægja hefur ríkt með fram-
kvæmd verkefnisins Okkar Mosó og því hef-
ur verið ákveðið að fara af stað með Okkar
Mosó í þriðja sinn á árinu 2021-2022. Það
er því um að gera að byrja að líta í kringum
sig og velta fyrir sér nýjum hugmyndum að
nýjum verkefnum til að gera bæinn okkar
enn betri.
Búið að framkvæma öll verkefni úr kosningunni Okkar Mosó 2019-2020 • Hugmyndasöfnun farin af stað á ný
Öll verkefni komin til framkvæmda
Álafosskvos – lýsing á malarstíg
frá Álafosskvos að Stekkjarflöt.
Betri lýsing á göngustíg –
milli Hulduhlíðar 30 og 32.
Flokkunarruslafötur – á þremur
stöðum við göngustíg við Varmá
neðan Helgafellshverfis.
Saga Álafossverksmiðjunnar
– uppsetning á fræðsluskilti í
Álafosskvos.
Ærslabelgur – settur upp á
Stekkjarflöt.
Kósý Kjarni – uppsetning á
notalegu kaffihorni umkringdu
lifandi plöntum.
Leiktæki fyrir yngstu börnin
– ungbarnarólur á leikvöllum við
Hagaland og Leirvogstungu.
Merkingar á toppum bæjarfella
– skilti sem sýna nafn fjalls, hæð
og GPS staðsetningu.
Miðbæjartorgið, gera torgið
skemmtilegt fyrir bæjarbúa
– uppsetning á leiktækjum.
Skíða- og brettaleiksvæði í
Ullarnesbrekku – sett upp nálægt
Varmárskóla.
Hvíldarbekkir og lýsing –
meðfram göngustíg við Varmá
neðan Helgafellshverfis.
11 verKeFni KoSin SíðaSt
ærslabelgur skilti í álafosskvoskósý kjarni