Mosfellingur - 11.03.2022, Side 26
- Íþróttir26
N a m o e h f . - S m i ð j u v e g i 7 4 ( g u l g a t a ) - 2 0 0 K ó p a v o g i Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is
AftureldingAr
vörurnAr
fást hjá okkur sport íslandi
Strákum hefur fjölgað til muna hjá fimleikadeild Aftureld-
ingar veturinn 2020-2021. Í byrjun haustannar 2020 bjóst
fimleikadeildin við 16 strákum sem voru fæddir 2016 og fyrr.
Önnin byrjaði samkvæmt væntingum en rétt áður en Covid
lokunin skall á hafði fjöldi skráninga tvöfaldast.
Þeir strákar sem hafa verið hvað lengst hjá fimleikadeild-
inni mynda saman hópinn KKE og voru 8 saman í liði. Þeim
fjölgaði í 13 stráka og æfingahópurinn fór úr 8 strákum upp
í 24 stráka.
Þetta er frábær þróun fyrir fimleikadeildina og þá stráka
sem eru að finna sig í fimleikum.
Kynjaskipting næsta vetur
Fimleikadeildin hefur unnið að því að fá fleiri stráka til
æfinga og svo hefur Fimleikasamband Íslands verið með
verkefni sem heitir Fimleikar fyrir stráka (FFS) þar sem
sterkustu fimleikastrákar landsins ferðast um Ísland með
fimleikasýningu og fimleikakennslu.
Fimleikadeildin er búin að taka nokkur skref í þá átt að
fá inn fleiri stráka sem felast í ráðningum á þjálfurum og
uppbyggingu á æfingum. Einnig hefur deildin verið með
Parkour námskeið í vetur. Á vorönn 2020 varð strákaliðið
bikarmeistari sem vakti mikla athygli.
Fimleikadeildin er að kljást við svokallað lúxusvandamál
þar sem lítið er um pláss fyrir fleiri stráka. Næsta vetur ætlar
fimleikadeildin að kynjaskipta öllum krökkum fæddum 2013
og fyrr, byrja þá í fyrsta skipti með karladeild sem getur tekið
á móti meiri fjölda, styrkt uppbyggingu ungra drengja og gert
starfið skýrara.
Sprenging orðið hjá Aftureldingu
Strákum fjölgar
í fimleikum
Tilboð mánaðarins
Offer of the month
...............
1,990.kr
1. CHICKEN CASHEW NUTS
2. OYSTER SAUCE
3. YELLOW CURRY
5. PAD THAI VEGAN
4. PAD THAI
Chicken sauteed with cashew nuts, onion, mushrooms
Pork stir-fried with oyster sauce, onion, broccoli.
Chicken with yellow curry, coconut milk, potato and onion.
Fried rice noodles with chicken, egg and peanuts
Fried rice noodles with tofu, broccoli and peanuts
Pönnusteiktur kjúklingur með cashew hnetum, lauk, sveppum.
Steiktur svínakjöt með lauk, spergilkál í ostru sósu
Kjúklingur í gulu karrý, kókósmjólk, kartöflum og laukur.
Steiktar hrísnúðlur með kjúklingi, eggi, blaðlauk og hnetum.
Steiktur hrísnúðlur með tofu, spergikáli, blaðlauk og hnetum.
Nr 1, 2 and 3 including rice
Opnunartími : 17.00 – 20.00
Fös og Lau : 16.30 – 20.30
w w w . y a m . i s
yamrestaurant@gmail.com
Y A M
THAI FOOD RESTAURANT
2 7 0 M o s f e l l s b æ
TEL : 552 - 66 - 66
KJARNA, ÞVERHOLT 2
y a m @ y a m . i s
Við notum ekki MSG og auka efni
You never know
If you never try
Gott bragð og betri smekkur
Allur matur er eldaður eftir pöntun
því er enginn matur tilbúinn fyrirfram.
Þar af leiðandi er alltaf allavega
10 mínútna bið eftir matnum
stundum þegar mikið er að gera
getur því biðin verið löng.
Mán og Þri : Lokað
Helgina 13.-14. febrúar fór fram bikarmót 1 í Taek-
wondo. Um 150 keppendur tóku þátt í keppni í poomsae
(formum) og sparring (bardaga).
Keppendur frá Aftureldingu stóðu sig mjög vel og
fengu 11 gullverðlaun, 15 silfurverðlaun og 8 bronsverð-
laun. Afturelding er í öðru sæti á bikarmótaröðinni með
176 stig.
Þá voru Ásta Kristbjörnsdóttir og Wiktor Sobczynski
frá Aftureldingu valin kona og maður mótsins í sparring
(bardaga). Ásta var að keppa í bardaga eftir smá pásu og
kom inn með þvílíkum krafti. Wiktor, sem er í unglinga-
flokki, keppti samt sem áður í fullorðinsflokki þar sem
enginn unglingur lagði í að keppa við hann. Gerði hann
sér lítið fyrir og vann flokkinn með yfirburðum.
að lokinni fimleikaæfingu
Afturelding á bikarmóti í taekwondo
Ásta og Wiktor
slógu í gegn
ásta og wiktor