Mosfellingur - 11.03.2022, Side 34
Áskoranir
Vorið er að koma. Kannski er það
komið? Maður spyr sig. Það er
alla vega bjart yfir núna þegar þessar
línur eru skrifaðar, sólin skín og
fuglarnir syngja.
Núna er tíminn til að hrista
aðeins upp í sér og finna sér
skemmtilega áskorun fyrir sumarið.
Eitthvað sem þú getur notað næstu
vikur í að undirbúa og æfa fyrir. Þetta
getur verið áskorun sem þú býrð
sjálf/ur til. Eitthvað sem þig hefur
lengi langað til að gera. Eitthvað sem
þú gætir hugsanlega fengið aðra
með þér í. Eða ekki. Kannski langar
þig bara að gera þetta fyrir þig. Það
skiptir engu máli hvað öðrum finnst
um áskorunina þína. Það sem einum
finnst spennandi finnst öðrum
kannski tímasóun. Það sem einum
finnst of létt, finnst öðrum nánast
ómögulegt.
Aðalatriðið varðandi áskorunina
er að hún sé spennandi og
þannig að þú þurfir að gera eitthvað
aukalega til þess að ná henni. Hreyfa
þig meira, sofa betur, borða hollar
eða æfa öðruvísi. Ef þér dettur ekkert
í hug, þá er ég með eina hugmynd
að áskorun. KB þrautin verður
haldin 22. maí næstkomandi. Eftir
rúmlega 10 vikur. Þrautin er blanda
af fellagöngu, utanvegarhlaupi og
fjölbreyttum þrautum sem þátttak-
endur þurfa að komast í gegnum á
leiðinni. Það þarf að bera hluti milli
staða, klifra og skríða undir gaddavír
svo nokkuð sé nefnt. Þetta er þraut
fyrir alla, skemmtilegast er að taka
þátt með vinum eða fjölskyldumeð-
limum.
Það er líka hægt að tengja áskor-
anir við skemmtilega viðburði í
lífinu. Það verður einn slíkur í minni
fjölskyldu í lok ágúst. Ég er mjög
spenntur fyrir þeim viðburði og er
ekki einn um það. Konan mín byrj-
aði í síðustu viku á
áskorun sem hún
tengir við það sem
mun gerast í lok
ágúst. Áskorunin
er æfingatengd
og snýst um
endurtekningar og
vikufjölda. Lífið er
ljúft, njótum þess!
Heilsumolar gaua
- Heilsa34
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
www.fastmos.is
Inndælingarefni
í sprungur og
óþétt plötuskil
Desjamýri 8 Mosfellsbæ
s. 4204010 - www.murefni.is
Leka sprungurnar ?
Mikið úrval af efnum og verkfærum
til að stöðva lekann.
Fagleg ráðgjöf og þjónusta
www.samanhopurinn.is
Foreldrum er heimilt að stytta þennan tíma en ekki lengja. Bregða má út af reglu-
num þegar börn eru í fylgd með fullorðnum og börn 13-16 ára eru á heimleið frá
viðurkenndri skóla,- íþrótta- eða æskulýðssamkonu. Aldur miðast við fæðingarár.
FORELDRAR VERUM SAMTAKA!
ÚTIVISTAR-
REGLURNAR*
Á skólatíma 1. september til 1. maí
12 ára börn og yngri
mega lengst vera úti til kl. 20
13 – 16 ára börn mega
lengst vera úti til kl. 22
1. maí til 1. september
12 ára börn og yngri
mega lengst vera úti til kl. 22
13 – 16 ára börn mega
lengst vera úti til kl. 24
*Skv. 92 gr. laga nr. 80/2002
www.samanhopurinn.is
Foreldrum er heimilt að stytta þennan tíma en ekki lengja. Bregða má út af reglu-
num þegar börn eru í fylgd með fullorðnum og börn 13-16 ára eru á heimleið frá
viðurkenndri skóla,- íþrótta- eða æskulýðssamkonu. Aldur miðast við fæðingarár.
FORELDRAR VERUM SAMTAKA!
ÚTIVISTAR-
REGLURNAR*
Á skólatíma 1. september til 1. maí
12 ára börn og yngri
mega lengst vera úti til kl. 20
13 – 16 ára börn mega
lengst vera úti til kl. 22
1. maí til 1. september
12 ára börn og yngri
mega lengst vera úti til kl. 22
13 – 16 ára börn mega
lengs vera úti til kl. 24
*Skv. 92 gr. laga nr. 80/2002
www.samanhopurinn.is
Foreldrum er heimilt að stytta þennan tíma en ekki lengja. Bregða má út af reglu-
num þegar börn eru í fylgd með fullorðnum og börn 13-16 ára eru á heimleið frá
viðurkenndri skóla,- íþrótta- eða æskulýðssamkonu. Aldur miðast við fæðingarár.
FORELDRAR VERUM SAMTAKA!
ISTAR-
RNAR*
Á skólatíma 1. september til 1. maí
12 ára börn og yng i
mega lengst vera úti til kl. 20
13 – 16 ára börn mega
lengst vera úti til kl. 22
1. maí til 1. september
12 ára börn og yngri
mega lengst vera úti til kl. 22
13 – 16 ára börn mega
lengst vera úti til kl. 24
*Skv. 92 gr. laga nr. 80/2002