Mosfellingur - 24.02.2022, Page 10
Skátar í uppbyggingu
við Hafravatn
Skátasamband Reykjavíkur og
skátafélagið Mosverjar undirrituðu
á dögunum samning um samstarf
um uppbyggingu á útivistarsvæði
skáta við Hafravatn sem hefur verið
í umsjón skáta í Reykjavík síðan
1938 þegar Kvenskátafélag Reykja-
víkur fékk landið á leigu og nýtti
um áratugaskeið. Skátasamband
Reykjavíkur fékk svo landið til leigu
árið 1997 fyrst til 25 ára en árið 2020
var lóðarsamningurinn framlengd-
ur til ársins 2045. Fyrirhugað er að
setja upp salernisaðstöðu, geymslu
og grillskýli svo skátahópar geti
komið á svæðið og gist á tjaldsvæð-
inu og fengið lágmarksþjónustu.
Á landinu er gert ráð fyrir allt að
átta flokkaskálum sem á eftir að
hanna og verður það hlutverk
Hafravatnsráðs að ákveða útlit og
hönnun á skálunum. Á myndinni
má sjá Dagbjörtu Brynjarsdóttur
félagsforingja Mosverja og Helga
Þór Guðmundsson formann SSR.
- Fréttir úr bæjarlífinu10
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Öll laus störf hjá Mosfellsbæ og stofnunum
má sjá og sækja um á ráðningarvef bæjarins:
www.mos.is/storf
Laus störf í Mosfellsbæ
Rúmlega þúsund greiddu atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins • Jana náði öðru sæti
Ásgeir Sveinsson nýr odd-
viti Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins í Mosfellsbæ
fór fram laugardaginn
5. febrúar. 17 frambjóð-
endur gáfu kost á sér
og greiddu alls 1.044
manns atkvæði.
Haraldur Sverrisson
bæjarstjóri gaf ekki kost
á sér til áframhaldandi
setu.
Ásgeir Sveinsson for-
maður bæjarráðs fékk
afgerandi kosningu
í 1. sæti eða um 70%
atkvæða. „Ég hlakka til að halda áfram að
gera Mosfellsbæ að enn betra samfélagi
með því kraftmikla og hæfileikaríka fólki
sem mun mynda samheldinn og sterkan
lista flokksins í kosningunum í vor.
Endanlegur listi var samþykktur af full-
trúaráði flokksins en Kolbrún Þorsteins-
dóttir (4) og Kristín Ýr (11) þáðu ekki þau
sæti sem þær lentu í og mun Helga Jóhann-
esdóttir varabæjarfulltrúi skipa 4. sætið.
1. Ásgeir Sveinsson
2. Jana Katrín Knútsdóttir
3. Rúnar Bragi Guðlaugsson
4. Helga Jóhannesdóttir
5. Hjörtur Örn Arnarson
6. Arna Hagalínsdóttir
7. Hilmar Stefánsson
8. Brynja Hlíf Hjaltadóttir
9. Helga Möller
10. Ragnar Bjarni Zoëga
11. Davíð Örn Guðnason
Framboðslisti sjálFstæðisFlokksins
12. Júlíana Guðmundsdóttir
13. Gunnar Pétur Haraldsson
14. Kári Sigurðsson
15. Þóra Björg Ingimundardóttir
16. Franklin Ernir Kristjánsson
17. Ragnheiður Ríkharðsdóttir
18. Alfa Regína Jóhannsdóttir
19. Davíð Ólafsson
20. Elín María Jónsdóttir
21. Ari Hermann Oddsson
22. Bjarney Einarsdóttir
Sterkur og fjölbreyttur
listi fyrir kosningar
„Ég er mjög þakklátur fyrir það sterka
umboð sem ég fékk til þess að leiða
listann,“ segir Ásgeir Sveinsson.
Það voru 17 manns sem tóku þátt í
prófkjörinu og 15 af þeim munu taka
sæti á listanum
okkar sem er mjög
ánægjulegt. Listinn
er fjölbreyttur í
þekkingu, reynslu
og aldri, mjög
öflugir nýliðar sem
bætast í hópinn
okkar sem er mjög
jákvætt. Það var mjög mikill áhugi á
prófkjörinu og það gefur okkur mik-
inn kraft og bjartsýni inn í baráttuna
fyrir kosningarnar 14. maí.
Meirihlutasamstarf D- og V-lista
hefur gengið ákaflega vel á þessu
kjörtímabili, við höfum náð að
uppfylla allflest okkar markmið
sem komu fram í málefnasamningi
flokkana. Fram undan hjá okkur er
málefnavinna og við munum eins og
áður leitast eftir samtali við íbúa um
hugmyndir inn í þá vinnu.
Jana Katrín Knútsdóttir, hjúkrunar- og viðskiptafræðingur
hafnaði í 2. sæti í prófkjörinu með 380 atkvæði.
Jana er fædd og uppalin í Mosfellsbæ og segist afar þakklát
fyrir stuðninginn.
,,Ég veit að verkefnið er verðugt og ég hlakka til að vinna með
þeim fjölbreytta og sterka hópi sem prýðir listann. Ég er sann-
færð um að saman getum við gert góða hluti í þágu bæjarbúa,“
segir Jana Katrín.
Saman getum við gert góða hluti í þágu bæjarbúa
Störfin sem um ræðir eru:
• Yfirflokksstjóri í Vinnuskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 23 ára á árinu)
• Flokksstjóri í Vinnuskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 20 ára á árinu)
• Aðstoðarflokksstjóri í Vinnuskóla (18-20 ára)
• Flokksstjóri í Þjónustustöð / garðyrkjudeild (lágmarksaldur 20 ára árinu)
• Reynsla af garðyrkju kostur
• Almenn störf í Þjónustustöð / garðyrkjudeild (lágmarksaldur 17 ára á árinu)
• Þjónustustörf og sundlaugargæsla íþróttamiðstöðvum Varmá og Lágafelli (lágmarksaldur 18 ára á árinu)
• Yfirumsjón með stuðningi í sumarstarfi fyrir fötluð börn og ungmenni (lágmarksaldur 23 ára á árinu)
• Aðstoð við fötluð börn og ungmenni (lágmarksaldur 18 ára á árinu)
hjá Mosfellsbæ
Vinsamlegast athugið að ekki
verður tekið við umsóknum sem
að berast eftir 13. mars. Þeir
sem sækja um en fá ekki starf
í fyrstu umferð fara sjálfkrafa á
biðlista eftir sumarstarfi.
Nánari upplýsingar er að finna á ráðningarvef
Mosfellsbæjar (www.mos.is/storf).
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Starfsmannafélags Mosfellsbæjar og
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknar-
frestUr er
tiL 13. mars
mosfeLLsbær aUgLýsir LaUs sUmarstörf tiL Umsóknar
UMsókNARFRestUR eR tiL 13. MARs 2022
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á ráðningarvef Mosfellsbæjar.
Sótt er um störfin á ráðningarvef Mosfellsbæjar. Þeir ganga fyrir um sumarstörf sem eiga lögheimili í Mosfellsbæ.
Opnað verður fyrir umsóknir
fimmtudaginn 24. febrúar 2022
Covid-kastalinn á
Blákjarna í býgerð
Börn og starfsfólk á Bláakjarna voru
í kastalagerð þegar Ómíkron skall á
Reykjakot. „Framkvæmdir töfðust
vegna sóttkvíar og einangrunar en
við sjáum fram á betri tíma,“ segir
Þórunn Ósk Þórarinsdóttir leik-
skólastjóri. Starfið í leikskólanum
fer vonandi að komast í eðlilegra
horf með hækkandi sól.
Hluti listans í Kjarna: Efri röð: Rúnar Bragi, Helga,
Ragnheiður, Ásgeir, Jana og Elín María. Neðri
röð: Hjörtur, Bjarney, Hilmar og Brynja Hlíf.