Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2018, Síða 16

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2018, Síða 16
16 Vonir bundnar við Helguvík þótt á ýmsu hafi gengið Sveitarfélögin á svæðinu vinna saman í að skipuleggja þessa framtíð, að sögn Kjartans, og ekki aðeins þá sem tengist flugvellinum og flugstöðinni heldur einnig öðrum verkefn- um sem tengjast þessari starfsemi með ýmsum óbeinum hætti. Þar á meðal er hafnarsvæðið í Helguvík. Kjartan segir að þótt á ýmsu hafi gengið þar og allt hafi ekki orðið að veruleika eins og að var stefnt séu bundnar vonir við frekari uppbyggingu hafntengdrar starfsemi þar. Stórt hafnarsvæði, sem er í svo mikilli nálægð við alþjóðaflugvöll, geti boðið ýmsa möguleika sem beri að skoða. Hann segir mörg tækifæri á Reykjanesi. „Náttúrufegurð er víða mikil og sérstæð – nokkuð sem ferðamenn sækjast eftir. Reykjanes Unesco Geopark hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu sem einn af 100 sjálfbærustu stöðum í heiminum. Þar er hægt að skoða jarðsöguna og margt fleira. Við erum með ströndina, hraunið, jarð- hitann og Bláa lónið í næsta nágrenni. Þegar þetta er skoðað í samhengi þá eru tækifærin mörg.“ Einhuga bæjarstjórn Talið berst að bæjarstjórninni. Hún hefur verið einhuga í að koma bæjarfélaginu á réttan kjöl, að sögn Kjartans. „Sem betur fer hafa bæjarfulltrúar borið gæfu til þess að vinna saman að þeim málum. Bæjarfulltrúum hefur tekist að vinna vel saman og það hefur eiginlega ekki verið hægt að tala um meiri- og minnihluta í því sambandi.“ Kjartan átti sjálfur sæti í bæjarstjórn á árunum 1998 til 2006. „Þá vorum við að vinna að einsetningu grunnskólans og mikil vinna og orka fór í þau mál undir forystu Ellerts Eiríkssonar, sem þá var bæjarstjóri og Skúla Skúlasonar, forseta bæjarstjórnar. Eftir það var hafist handa við umhverfismálin og bærinn hefur gjörbreytt um svip á þeim tíma sem liðinn er frá aldamótum. Ekkert af því verður tekið frá okkur en það kostaði líka sitt en við erum nú að vinna okkur út úr því.“ Reykjanesbær Vetur í bæ gæti þessi mynd heitið og sýnir Reykjanesbæ í snjóalögum. Horft yfir Innri-Njarðvík en þar fer nú fram mikil uppbygging vegna fjölgunar íbúa í Reykjanesbæ.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.